Ferill 62. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 62  —  62. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (afnám þjónustusviptingar).

Flm.: Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Andrés Ingi Jónsson, Björn Leví Gunnarsson, Halldóra Mogensen, Gísli Rafn Ólafsson, Guðbrandur Einarsson, Oddný G. Harðardóttir, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir.


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 33. gr. laganna:
     a.      8. mgr. orðast svo:
                  Þegar Útlendingastofnun hefur hafnað umsókn ríkisborgara EES- eða EFTA-ríkis um alþjóðlega vernd á hann ekki rétt á þjónustu samkvæmt grein þessari.
     b.      9. mgr. fellur brott.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta var áður lagt fram á 154. löggjafarþingi ( 113. mál) og er nú lagt fram að nýju óbreytt. Sú þjónustusvipting sem komið var á með lögum nr. 14/2023 í 8. mgr. 33. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, í mars 2023 hafði fyrirséðar alvarlegar afleiðingar fyrir hóp umsækjenda um alþjóðlega vernd. Líkt og bent var á af hálfu stjórnarandstöðu vorið 2023 við þinglega meðferð frumvarpsins (382. mál) þá hefur ekki verið gengið úr skugga um að ákvæðið standist stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands á sviði mannréttinda. Um er að ræða óforsvaranlega meðferð á varnarlausu fólki, sem bitnar á þeim sem síst skyldi og er ekki lausn á neinum vanda. Flytjendur þessa frumvarps leggja því eindregið til að ákvæðinu verði komið í fyrra horf.