Ferill 65. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Prentað upp.

Þingskjal 65  —  65. mál.
Flutningsmenn.




Frumvarp til laga


um breytingu á ýmsum lögum til að bæta stöðu trans fólks (nöfn og skilríki).

Flm.: Andrés Ingi Jónsson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson, Dagbjört Hákonardóttir, Gísli Rafn Ólafsson, Guðbrandur Einarsson, Halldóra Mogensen, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.


I. KAFLI
Breyting á lögum um mannanöfn, nr. 45/1996.
1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:
              a.      Í stað orðanna „föður- eða móðurnöfn“ í 1. mgr. kemur: foreldrisnöfn.
              b.      Í stað orðanna „föður eða móður“ í 1. og 2. málsl. 2. mgr. kemur: foreldris.
              c.      Í stað orðsins „föður“ í 3. málsl. 2. mgr. kemur: foreldris.
              d.      Í stað orðanna „afa síns“ í 4. málsl. 2. mgr. kemur: stórforeldris síns.
              e.      3. mgr. orðast svo:
                     Foreldrisnöfn eru mynduð þannig að á eftir eiginnafni eða eiginnöfnum og millinafni, ef því er að skipta, kemur nafn foreldris í eignarfalli með eða án viðbótarinnar son, dóttir eða bur.
              f.      Orðin „hvort heldur er í karllegg eða kvenlegg“ í 5. mgr. falla brott.
              g.      Í stað orðanna „föður eða móður“ í 6. mgr. kemur: foreldris.

II. KAFLI
Breyting á lögum um kynrænt sjálfræði, nr. 80/2019.
2. gr.

    2. málsl. 2. mgr. 6. gr. laganna orðast svo: Í vegabréfum skal tákna hlutlausa skráningu kyns með bókstafnum X, en fólki með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá skal heimilt, óháð skráningu kyns í þjóðskrá, að velja þá kynskráningu sem handhafi vegabréfsins kýs.

3. gr.

    7. gr. orðast svo:
    Hafi breyting á skráningu kyns samkvæmt lögum þessum og samhliða nafnabreyting verið gerð er heimilað að breyta henni að nýju sé meira en eitt ár liðið frá síðustu breytingu.
    Þrátt fyrir 1. mgr. skal heimilt að breyta skráningu þó að ekki sé liðið eitt ár ef sérstaklega stendur á og skal þá leggja fram skriflega greinargerð um ástæðu beiðninnar til Þjóðskrár Íslands.

III. KAFLI
Breyting á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.
4. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. laganna:
              a.      Á eftir 13. tölul. 1. mgr. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Útgáfa ökuskírteinis vegna leiðréttingar á skráningu kyns skal vera gjaldfrjáls.
              b.      Við 2. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þrátt fyrir 1.–3. tölul. skal útgáfa vegabréfa vegna leiðréttingar á skráningu kyns vera gjaldfrjáls. Útgáfa vegabréfs vegna endurnýjunar skal fara eftir 1.–3. tölul.

IV. KAFLI
Breyting á lögum um nafnskírteini, nr. 55/2023.
5. gr.

    Við 2. mgr. 2. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Útgáfa nafnskírteinis vegna leiðréttingar á skráningu kyns skal vera gjaldfrjáls.

6. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 31. mars 2025.

Greinargerð.

    Með frumvarpi þessu eru lagðar til ferns konar breytingar til að bæta stöðu trans fólks í samfélaginu. Verði frumvarpið að lögum verður fólki frjálst að velja endingu foreldrisnafns óháð opinberri kynskráningu. Þá verður öryggi fólks á ferðalögum aukið með því að heimila fólki með hlutlausa skráningu kyns að velja kynskráningu í vegabréfi sínu óháð kynskráningu í þjóðskrá. Enn fremur er réttur fólks til að skilgreina kyn sitt styrktur með því að einfalda skráningarferli fyrir þau sem kjósa að breyta skráningu kyns oftar en einu sinni. Að lokum er lagt til að ekkert gjald verði tekið vegna endurnýjunar þeirra persónuskilríkja sem nauðsynleg eru vegna breyttrar kynskráningar.

Umfjöllun á fyrri þingum.
    Frumvarpið var áður lagt fram á 154. löggjafarþingi ( 103. mál). Að lokinni 1. umræðu gekk það til allsherjar- og menntamálanefndar sem sendi það til umsagnar. Alls bárust átta umsagnir við málið. Breiður samhljómur ríkir á meðal umsagnaraðila um nauðsyn þess að bæta stöðu kynsegin fólks og tryggja öryggi þess. Sjónarmið og áherslur á milli umsagnaraðila haldast að mestu í hendur en einstaka athugasemdir voru gerðar m.a. um tæknilegar áskoranir og öryggisáhættur við útgáfu aukavegabréfa.
    Að mati Kvenréttindafélags Íslands felur frumvarp þetta í sér löngu tímabæra réttarbót fyrir kynsegin fólk sem mikilvægt er að vinna hratt og vel, ekki síst vegna bakslags í réttindabaráttu hinsegin fólks sem átt hefur sér stað bæði hérlendis og erlendis á síðustu misserum. Samtökin Trans Ísland og Intersex Ísland taka í sama streng og Kvenréttindafélagið og leggja þau áherslu á að frekari skref þurfi að taka til að tryggja öryggi og réttindi kynsegin fólks, sérstaklega í sambandi við ferðafrelsi og útgáfu vegabréfa. Ferðaskilríki er nauðsynlegt öryggistól fyrir ferðalanga til að komast á milli staða. Sem öryggistól þarf það að vera öruggt fyrir öll. Því er mikilvægt að útgáfa ferðaskilríkja sé gerð í samræmi við öryggisþarfir handhafa þeirra. Sé ferðaskilríki ekki í samræmi við öryggisþarfir viðkomandi getur það haft neikvæð áhrif á öryggi og ferðafrelsi háns. Að mati Trans Íslands fjarlægir tillagan um val á skráningu kyns í vegabréf stóra hindrun sem nú stendur í vegi kynsegin fólks sem íhugar að skrá kyn sitt hlutlaust. Með því að fjarlægja þessa hindrun er fleirum gert kleift að fá kynvitund sína opinberlega viðurkennda, sem er afar mikilvægt fyrir sjálfsmynd og geðheilsu einstaklinga, án þess þó að takmarka ferðafrelsi þeirra.
    Umsagnir Trans Íslands, Intersex Íslands og Reykjavíkurborgar varpa ljósi á mikilvægi þess að leyfa einstaklingum að breyta kynskráningu sinni oftar en einu sinni, þar sem kynvitund er flæðandi og getur þróast yfir tíma. Mannréttindaskrifstofa Íslands tekur undir þau sjónarmið og telur mikilvægt að slaka á ströngum reglum er varða breytingu á kynskráningu. Intersex Ísland nefnir í umsögn sinni að mörg dæmi séu um það að fólk komi fyrst um sinn út úr skápnum sem trans en síðar sem kynsegin og því leggja samtökin til að breyta megi kynskráningu oftar en einu sinni og að 6–12 mánuðir séu hæfilegur biðtími þess á milli. Reykjavíkurborg vill ganga enn lengra og leggur til að fjarlægja allar hömlur tengdar tíma milli breytinga á kynskráningu, þar sem slíkt takmarki frelsi einstaklinga til að endurspegla raunverulega kynvitund sína. Að auki er gjaldfrjáls útgáfa skilríkja mikilvæg í þessu samhengi til að tryggja að fjárhagslegar hindranir standi ekki í vegi fyrir nauðsynlegum breytingum á persónuskilríkjum. Mannréttindaskrifstofa Íslands, Trans Ísland og Íslandsdeild Amnesty International undirstrika mikilvægi þess að útgáfa skilríkja sem tengjast breytingum á kyn- eða nafnskráningu sé gjaldfrjáls, til að fjarlægja fjárhagslegar hindranir sem geta staðið í vegi fyrir nauðsynlegum breytingum á skilríkjum.
    Í þeirri útgáfu frumvarps þessa sem var til umfjöllunar á 154. löggjafarþingi var lagt til að heimila kynsegin fólki að bera aukavegabréf með annarri kynskráningu en hlutlausri til að gæta öryggis þess í alþjóðlegum ferðalögum. Þjóðskrá Íslands studdi þær grundvallarbreytingar sem frumvarpið lagði til en vakti jafnframt athygli á þörfinni fyrir tæknilegar og öryggistengdar úrbætur varðandi útgáfu aukavegabréfa. Samkvæmt Þjóðskrá er útgáfa aukavegabréfa flókin í framkvæmd vegna tæknilegra áskorana og öryggisáhættu. Að mati Þjóðskrár gæti gríðarleg öryggisáhætta falist í því að veita heimild til útgáfu aukavegabréfa með annarri kynskráningu. Tiltölulega einfalt er að breyta kynskráningu sinni hjá Þjóðskrá og heimild til útgáfu aukavegabréfa gæti orðið til þess að óprúttnir aðilar myndu misnota úrræðið. En burt séð frá öryggisvinklinum þá bjóða kerfi Þjóðskrár ekki upp á tvöfalda kynskráningu og því væri það kerfislega óframkvæmanlegt nema kerfin yrðu endurskrifuð með tilheyrandi kostnaði. Í umsögn Þjóðskrár voru lagðar til aðrar lausnir sem eru framkvæmanlegar og myndu ná sömu markmiðum án þess að fela í sér öryggisáhættu. Annars vegar er bent á að með nýjum lögum um nafnskírteini hafi ríkið hafið útgáfu nafnskírteina sem jafnframt eru gild ferðaskilríki innan Schengen-svæðisins. Í framkvæmd hefur sú leið verið valin að ekki er skráð kyn handhafa slíkra nafnskírteina. Hér er um að ræða skref í rétta átt, en hængurinn á þeirri lausn er að slíkt gildir aðeins innan Schengen-svæðisins og því væri ferðafrelsi kynsegin fólks takmarkað við þann hluta heimsins væri það eina lausnin í boði. Hins vegar lagði Þjóðskrá til aðra lausn sem snýr að því að í stað þess að heimila útgáfu aukavegabréfa verði kynsegin fólki heimilt að velja hvaða kyn það vill skrá í vegabréf sitt óháð því hver kynskráning þess er í Þjóðskrá. Slíkt takmarkar ekki ferðafrelsi kynsegin einstaklinga og getur veitt þeim meira öryggi þegar þau ferðast á svæði þar sem þau eru ekki fyllilega örugg vegna kynvitundar sinnar eða kynhneigðar. Kvenréttindafélag Íslands og Intersex Ísland benda einmitt á í umsögnum sínum að einstaklingar ættu að geta valið kynskráningu á vegabréfum sínum sem best tryggir öryggi þeirra, sérstaklega þegar ferðast er til landa þar sem hinsegin fólk kann að mæta fordómum eða beinum ofsóknum.
    Tekið hefur verið tillit til þeirra ábendinga sem fram komu í umsögn Þjóðskrár Íslands, þannig að ekki er lengur lagt til að gefin verði út aukavegabréf til einstaklinga með hlutlausa skráningu kyns, heldur verði þeim einfaldlega gert kleift að velja kynskráningu í vegabréfi sínu óháð kynskráningu í þjóðskrá. Þannig verði þeim sjálfum eftirlátið að meta hvernig þau geti best tryggt öryggi sitt á ferðalögum.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Í 1. gr. frumvarpsins er lagt til að kynskráning stýri því ekki hvers konar foreldrisnöfn fólk má velja sér. Með því er ætlunin að leiðrétta skekkju sem fylgdi samþykkt laga um kynrænt sjálfræði, vegna tveggja hliðstæðra en ólíkra breytinga á lögum um mannanöfn.
    Annars vegar var fellt brott ákvæði 5. gr. mannanafnalaga sem kvað á um að stúlku skyldi gefa kvenmannsnafn og dreng karlmannsnafn. Samkvæmt greinargerð þótti eðlilegt í ljósi breyttra viðhorfa og efnis frumvarps um kynrænt sjálfræði að fella brott ákvæði sem byggðist alfarið á tvíhyggju um kyn.
    Hins vegar bættist nýr málsliður við 8. gr. sem heimilar einstaklingum með hlutlausa kynskráningu í þjóðskrá að nota föður- eða móðurnafn, þ.e. nafn föður eða móður í eignarfalli án viðbótarinnar -son eða -dóttir eða með viðbótinni -bur. Sú breyting gagnast hins vegar þrengri hópi þar sem hún stendur aðeins til boða þeim kynsegin einstaklingum sem velja að taka upp hlutlausa kynskráningu í þjóðskrá.
    Af svörum dómsmálaráðherra (152. löggjafarþing, þskj. 932, 445. mál) og forsætisráðherra (152. löggjafarþing, þskj. 1203, 670. mál) að dæma telja stjórnvöld hér ekki vera um vandamál að ræða, en raunin er önnur sé leitað beint til kynsegin fólks. Þannig kemur fram í rannsókn sem unnin var fyrir Kvenréttindafélag Íslands að mörg kvár veigra sér við að breyta kynskráningu sinni af ótta við mismunun eða skrifræðislegar hindranir. Hlutlaus skráning kyns getur líka skapað hindranir í stjórnsýslu heilbrigðiskerfisins, en hún styðst við skráningu kyns í þjóðskrá og boðar t.d. ekki kvár með leg í leghálskrabbameinsskimanir eða kvár með blöðruhálskirtil í blöðruhálskrabbameinsskimanir. Breytt kynskráning getur einnig haft ófyrirséðar afleiðingar þar sem nokkurt bakslag hefur orðið í baráttu hinsegin fólks bæði hérlendis og erlendis og fólk óttast hvað framtíðin kunni að bera í skauti sér.
    Það orkar tvímælis að á sama tíma og krafa um kynjaskipt eiginnöfn var fjarlægð úr mannanafnalögum hafi slíkt hið sama ekki verið gert gagnvart foreldrisnöfnum. Núverandi fyrirkomulag stendur í vegi fyrir því að hluti kynsegin fólks geti að fullu nýtt rétt sinn til að breyta nafni sínu. Þetta stangast á við það markmið laga um kynrænt sjálfræði að tryggt sé að kynvitund fólks njóti viðurkenningar, enda er rétturinn til nafns stór þáttur í rétti fólks til að skilgreina kyn sitt. Því er hér lagt til að allar útgáfur foreldrisnafna sem gildandi lög heimila standi einstaklingum til boða óháð kynskráningu viðkomandi.
    Meginbreytingin felst í e-lið 1. gr. en aðrir stafliðir snúa að lagfæringum sem leiða af þeirri breytingu.

Um 2. gr.

    Mörg kvár veigra sér við að leiðrétta skráningu kyns í þjóðskrá. Þetta er verulega bagalegt því að mikilvægt er að greina tölfræðiupplýsingar eftir kyni til að rannsaka og koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns, sbr. markmið laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020. Fyrrgreind rannsókn Kvenréttindafélags Íslands bendir til þess að ein helsta ástæða þess að kynsegin einstaklingar leiðrétta ekki skráningu kyns sé vegna þess að henni fylgir jafnframt skráning í ferðaskilríki.
    Víða er réttindabarátta hinsegin fólks komin mun skemur á veg en hérlendis. Hlutlaus skráning kyns í vegabréf kann því að verða einstaklingum til trafala á ferðalögum erlendis og jafnvel hættuleg. Það er því mikilvægt öryggisatriði fyrir einstaklinga með hlutlausa skráningu kyns að vera ekki bundin ferðaskilríki sem kveður á um hinseginleika þeirra. Dæmi eru um að hlutlaus skráning kyns hafi fengið óæskilega athygli í landamæraeftirliti og öryggisleit og skapað vandamál við bókun flugmiða. Samkvæmt vegabréfastöðlum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar er kyn vegabréfshafa meðal þess sem skrá ber í vegabréf. Það gæti því reynst erfitt fyrir íslensk stjórnvöld að afleggja slíka skráningu einhliða í íslenskum vegabréfum. Öðru máli gegnir um nafnskírteini sem gilda sem ferðaskilríki innan Schengen-svæðisins. Líkt og fram kemur í umsögn Þjóðskrár við frumvarpið á 154. löggjafarþingi er ekki gerð krafa um skráningu kyns á nýja tegund nafnskírteina sem gefin eru út á grundvelli laga um nafnskírteini, nr. 55/2023. Þar sem slík nafnskírteini eru gild ferðaskilríki innan Schengen-svæðisins var þar um að ræða skref í rétta átt til að tryggja öryggi kynsegin fólks á ferðalögum. Til að stíga skref í átt að fullu ferðafrelsi er hins vegar mikilvægt að breyta jafnframt útfærslu vegabréfa sem ólíkt nafnskírteinum takmarkast ekki við Schengen-svæðið.
    Því er lagt til í 2. gr. frumvarpsins að heimila fólki með hlutlausa kynskráningu í þjóðskrá að velja kynskráningu í vegabréf óháð skráningu viðkomandi í þjóðskrá. Þannig verður sett í hendur einstaklinganna sjálfra að velja þá kynskráningu í ferðaskilríki sem þau telja ólíklegasta til að verða þeim til ama á ferðalögum. Með því að bjóða upp á þennan sveigjanleika geta stjórnvöld með einföldum hætti unnið að auknu öryggi kynsegin einstaklinga. Svo virðist sem ekki hafi verið hugsað fyrir þessum veruleika þegar lög um kynrænt sjálfræði voru sett. Markmið þessa frumvarps er að bæta úr því og bregðast þannig við ákalli þeirra einstaklinga sem lögum um kynrænt sjálfræði var ætlað að standa vörð um.

Um 3. gr.

    Hér er lagt til að auðvelda skráningarferli fyrir þau sem kjósa að breyta skráningu kyns oftar en einu sinni. Í gildandi lögum skal breyting á skráningu kyns einungis heimiluð einu sinni nema sérstakar ástæður séu til annars, en lagt er til að í staðinn verði einföld tímamörk þannig að heimilt sé að breyta skráningu kyns sé meira en eitt ár liðið frá síðustu breytingu og að heimilt sé að breyta skráningu fyrr ef sérstakar ástæður liggja fyrir.

Um 4. og 5. gr.

    Í 4. og 5. gr. er lagt til að í lögum um aukatekjur ríkissjóðs og lögum um nafnskírteini sé tekið fram að ekkert gjald skuli innheimta vegna útgáfu þeirra opinberu persónuskilríkja sem endurnýja þarf þegar einstaklingur leiðréttir kynskráningu sína í þjóðskrá.

Um 6. gr.

    Greinin þarfnast ekki skýringar.