Ferill 68. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Prentað upp.
Þingskjal 68 — 68. mál.
Fyrirsögn, flutningsmenn.
Tillaga til þingsályktunar
um trúarbragðafræði sem valgrein í framhaldsskólum.
Flm.: Birgir Þórarinsson, Ásmundur Friðriksson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Óli Björn Kárason, Vilhjálmur Árnason.
Alþingi ályktar að fela barna- og menntamálaráðherra að tryggja að í framhaldsskólum landsins verði boðið upp á kennslu í trúarbragðafræði sem valgrein.
Greinargerð.
Í nágrannalöndunum hefur á undanförnum árum og áratugum átt sér stað mikil umræða um stöðu og hlutverk trúarbragðafræðslu í fjölmenningarlegum samfélögum nútímans. Benda má á að Evrópuráðið hefur sent frá sér skýrslur og greinargerðir sem árétta mikilvægi trúarbragðafræðslu sem þátt í almennri menntun á tímum vaxandi menningarlegs og trúarlegs margbreytileika. Rauður þráður í þessum skýrslum er mikilvægi þess að vinna gegn fordómum, staðalímyndum og misskilningi á trúarbrögðum, og auka víðsýni og umburðarlyndi með því að efla þekkingu og skilning á ólíkum trúarbrögðum og lífsviðhorfum, bæði eigin og annarra.
Í þessu sambandi má benda á skýrsluna Toledo Guiding Principles on Teaching About Religions and Beliefs in Public Schools, sem hefur að geyma ítarlegar leiðbeiningar um kennslu um trúarbrögð og lífsviðhorf í opinberum skólum (ODHIR, 2007, bls. 13–14). Meginniðurstöður skýrslunnar fela í sér ríka áherslu á gildi þekkingar á trúarbrögðum. Í henni er því haldið fram að sú þekking geti stuðlað að viðurkenningu á mikilvægi þess að virða rétt allra til að ástunda trúarbrögð sín eða lífsviðhorf, enda er trúfrelsi algild mannréttindi, enn fremur að góð þekking á trúarbrögðum og lífsviðhorfum geti aukið skilning á félagslegum margbreytileika, eflt félagslega samloðun og dregið úr ágreiningi og átökum sem stafa af skorti á skilningi á trú annarra. Jafnframt stuðli hún að betri skilningi á sögu, bókmenntum og listum, og efli menningarlega víðsýni.
Flutningsmenn telja að á þessum grundvelli sé mikilvægt að í framhaldsskólum bjóðist tækifæri til menntunar á sviði trúarbragðafræði þar sem nemendur njóta faglegrar og vandaðrar kennslu og eigi kost á málefnalegri samræðu um helstu trúarbrögð og lífsviðhorf. Það stuðli að víðsýni og umburðarlyndi og virðingu fyrir trú og lífsviðhorfum og réttindum annarra.