Ferill 90. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 90  —  90. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, nr. 57/2005 (viðhaldssaga bifreiða).

Flm.: Birgir Þórarinsson, Jón Gunnarsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Vilhjálmur Árnason.


1. gr.

    Á eftir 9. gr. laganna kemur ný grein, 9. gr. a, svohljóðandi:
    Í viðskiptum með notaðar bifreiðar skal seljandi upplýsa kaupanda um viðhaldssögu og ástand viðkomandi bifreiðar óski kaupandi þess. Með viðhaldssögu er átt við þjónustu- og viðgerðarsögu bifreiðar hjá þjónustuaðilum.
    Eigandi bifreiðar á rétt á upplýsingum um viðhaldssögu og ástand bifreiðarinnar frá þjónustuaðilum.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. júní 2025.

Greinargerð.

    Langflest dauðsföll af völdum slysa á Íslandi má rekja til umferðaróhappa og þar af leiðandi til bifreiða. Bifreiðar eru óneitanlega mikilvægur samgöngumáti, en um leið býður notkun þeirra upp á mikla hættu ef eitthvað bregður út af við akstur eða bifreiðina sjálfa. Því er mikilvægt að ökumenn geti aflað sér upplýsinga um ástand bifreiðar sinnar og séu meðvitaðir um eiginleika hennar og galla, ef við á. Gildandi lagaumhverfi er að mati flutningsmanna ekki nægjanlega skýrt um rétt bifreiðaeigenda til upplýsinga um bifreið sína, en uppi hefur verið ágreiningur um heimild þjónustuaðila til að afhenda bifreiðaeigendum viðhaldssögu bifreiðar sinnar með vísan til ákvæða laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018.
    Af orðalagi laganna verður þó að ætla að vinnsla persónuupplýsinga með þeim hætti sem frumvarp þetta snýr að sé nú þegar heimil samkvæmt gildandi lögum. Vísast þar m.a. til úrskurðar Persónuverndar frá 25. júní 2017, í máli nr. 2016/1262, þar sem eigandi bifreiðar sendi inn kvörtun til Persónuverndar vegna þess að þjónustuaðili, sem framkvæmt hafði viðgerð á bíl hans, miðlaði upplýsingum um ástand bifreiðarinnar til þess fyrirtækis sem kvartandi hafði falið að sjá um uppboð á bifreiðinni. Persónuvernd féllst ekki á að þjónustuaðilinn hefði brotið gegn ákvæðum persónuverndarlaga. Vinnsla persónuupplýsinganna, þ.e. uppfletting á þjónustusögu bíls kvartanda hjá þjónustuaðila, var í því skyni að verja hagsmuni þjónustuaðilans annars vegar og mögulegs nýs eiganda hins vegar og því heimil skv. 7. tölul. 1. mgr. 8. gr. þágildandi persónuverndarlaga, nr. 77/2000, enda gerð í lögmætum tilgangi. Ákvæði eldri laga um persónuvernd eru að þessu leyti efnislega þau sömu og ákvæði gildandi persónuverndarlaga. Því má ætla að þau girði ekki fyrir vinnslu persónuupplýsinga eins og framangreindur úrskurður Persónuverndar hefur staðfest.
    Til að taka af allan vafa um heimild til upplýsingagjafar um viðhaldssögu bíla til þeirra er það varðar er lagt til í frumvarpinu að seljanda bifreiðar verði skylt að upplýsa væntanlegan kaupanda um viðhaldssögu og ástand bifreiðar, ef kaupandi óskar þess. Jafnframt verði lögfestur réttur eiganda bifreiðar til upplýsinga um viðhaldssögu og ástand hennar, svo sem í ástandsskýrslum, frá þjónustuaðilum. Telja verður að kaupendur bifreiða og eigendur þeirra hafi lögmæta hagsmuni af því að fá upplýsingar um ástand bifreiðanna, sérstaklega með tilliti til öryggissjónarmiða og fjárhagslegra hagsmuna, enda er oft og tíðum um dýrar fjárfestingar að ræða.
    Markmið frumvarpsins er að framkvæmd sölu bifreiða verði að mestu leyti sambærileg framkvæmdinni í Svíþjóð, sem byggist á samningi samtaka bifreiðaiðnaðarins í Svíþjóð (sæ. Motorbranschens Riksförbund, MRF) við sænsku neytendastofuna. Samkvæmt samningnum ber bílasala að útbúa vörulýsingu þegar hann selur notaðan bíl, sem skal undirrituð af bæði kaupanda og seljanda. Þó ber að hafa í huga að framkvæmdin í Svíþjóð byggist ekki á ákvæðum laga heldur samningi, sem samkvæmt efni sínu gildir einungis um þá bílasala sem eru félagsmenn í samtökum bifreiðaiðnaðarins. Því gildir umræddur samningur ekki um alla bílasala þar sem heimilt er að standa utan samtakanna. Í frumvarpi þessu er ekki lögð til sú kvöð að seljandi verði að útbúa vörulýsingu þegar selja á notaða bifreið líkt og framkvæmdin er í Svíþjóð, heldur einungis að kveðið verði á um rétt væntanlegs kaupanda til mikilvægra upplýsinga um bifreiðina, sem skipt geta sköpum við ákvörðun hans um hvort hann láti verða af kaupunum eður ei. Verði frumvarpið að lögum verður seljanda skylt að veita kaupanda þær upplýsingar og getur hann aflað þeirra frá þjónustuaðilum ef svo ber við.