Ferill 119. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
2. uppprentun.

Þingskjal 119  —  119. mál.
Flutningsmenn.




Frumvarp til laga


um hnefaleika.

Flm.: Ágúst Bjarni Garðarsson, Þórarinn Ingi Pétursson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.


1. gr.

    Heimil er keppni, sýning og kennsla hnefaleika, bæði áhugamanna- og atvinnumannahnefaleika.

2. gr.

    Heimil er sala og notkun hnefaleikahanska, annars búnaðar og annarra tækja við iðkun og þjálfun hnefaleika ásamt mótshaldi tengdu hnefaleikum.

3. gr.

    Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands setur reglur um iðkun og þjálfun hnefaleika ásamt mótshaldi tengdu hnefaleikum á Íslandi. Reglurnar skulu vera samdar með hliðsjón af öryggi iðkenda, þjálfara, dómara og annarra aðila sem koma að iðkun, þjálfun og mótshaldi tengdu hnefaleikum.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.
    Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög um að banna hnefaleika, nr. 92/1956, og lög um áhugamannahnefaleika, nr. 9/2002.

Greinargerð.


    Frumvarp þetta sem var áður flutt á 153. löggjafarþingi ( 921. mál) er samið með það að markmiði að heimila bæði áhugamanna- og atvinnumannahnefaleika hér á landi. Ólympískir hnefaleikar hafa verið heimilaðir hér á landi síðan 20. febrúar 2002 með lögum um áhugamannahnefaleika, nr. 9/2002, en frá árinu 1956 hafði bann verið sett á hnefaleika almennt með lögum um að banna hnefaleika, nr. 92/1956. Með frumvarpinu er settur nýr lagabálkur, sem fjallar um hnefaleika hvort sem þeir eru stundaðir af áhuga- eða atvinnumönnum, en það er nýnæmi að atvinnumannahnefaleikar séu gerðir löglegir hér á landi. Með samþykkt frumvarpsins falla framangreind lög nr. 92/1956 og 9/2002 úr gildi.
    Hnefaleikar, stundum kallaðir „box“ í almennu tali, eru meðal þekktustu íþróttagreina heims. Íþróttin er bardagaíþrótt og er stunduð í nokkrum þyngdarflokkum þar sem tveir einstaklingar keppa hvor gegn öðrum við það að koma sem flestum löglegum höggum á hinn eða ná tæknilegu rothöggi (þar sem andstæðingurinn fellur niður í kjölfar höggs og stendur ekki upp innan tíu sekúndna). Það getur verið að við fyrstu sýn líti hnefaleikar út eins og almenn áflog tveggja manna en það er langt frá því að vera raunin. Ýmsar reglur gilda um lögmæti höggs, öryggisráðstafana er gætt í hvívetna og högg eru mismunandi skilgreind hvað varðar stigagjöf. Ásamt þessu eru ýmis brögð og stílar til staðar sem hnefaleikakappar, eða „boxarar“, hafa varið árum saman í að fullkomna. Þeir sem æfa og stunda hnefaleika reglulega eru almennt í góðu líkamlegu formi og lifa heilbrigðum lífsstíl. Hnefaleikar, eins og allar aðrar íþróttir, eru góðir fyrir líkama og sál. Það er enginn grundvallarmunur á hnefaleikum, eða öðrum bardagaíþróttum, og öðrum íþróttum sem viðurkenndar eru hér á landi. Hins vegar hafa hnefaleikar sem og margar aðrar bardagaíþróttir verið misskildar eða sætt fordómum í áranna raðir hér á landi og víðar.
    Hnefaleikar eiga sér langa sögu sem má rekja aftur til tíma Súmera, sem eru taldir hafa myndað fyrsta siðmenningarsamfélag jarðarinnar. Fyrstu reglur um hnefaleika voru settar árið 1867 á Englandi og kallast Marquess of Queensberry-reglurnar. Þær hafa legið til grundvallar öllum þeim reglum sem gilda um íþróttina enn þann dag í dag.
    Íþróttin hefur verið ólympíuíþrótt frá árinu 1904, en keppt hefur verið í ólympískum hnefaleikum alla sumarólympíuleika síðan þá, að undanskildum Ólympíuleikunum í Stokkhólmi árið 1912. Það var vegna lögbanns á hnefaleika í Svíþjóð á þeim tíma. Hnefaleikar hösluðu sér völl á Íslandi árið 1916 með kennslu í leikfimisal Landakotsspítala. Í kjölfarið jókst áhugi Íslendinga á hnefaleikum töluvert og íþróttafélög á borð við Íþróttafélagið Ármann og Íþróttafélag Reykjavíkur tóku hnefaleika á starfsskrá sína. Fyrsta viðurkennda hnefaleikamót á Íslandi var haldið 22. apríl í Gamla bíói. Eftir það var reglulegt mótshald í hnefaleikum hér á landi þar til lögbann var samþykkt 29. desember 1956.
    Í dag eru sjö hnefaleikafélög starfrækt hér á landi. Þau reka skipulagt íþróttastarf á sviði hnefaleika. Hnefaleikasamband Íslands (HNÍ) var stofnað 30. september 2015 og gegnir veigamiklu hlutverki fyrir íþróttina á Íslandi. Það sinnir fræðslu- og kynningarhlutverki á íþróttinni, sér um að mótshald sé í samræmi við reglur, er fulltrúi íþróttarinnar á alþjóðlegri grundu fyrir hönd Íslands, sér til þess að stefnur og reglur hér á landi séu í takt við alþjóðlegar reglur og staðla ásamt því að veita dómurum og þjálfurum fræðslu og aðhald með skipulögðum námskeiðum. HNÍ er sérsamband innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
    Hnefaleikar hafa verið vinsæl íþrótt bæði meðal áhorfenda og iðkenda hér á landi og um allan heim. Hnefaleikamenn hafa verið meðal launahæstu íþróttamanna heims síðastliðin ár, enda er nánast alltaf slegist um miða á hvern hnefaleikaviðburð ásamt því að fólk um allan heim borgar háar fjárhæðir fyrir að horfa á viðburði, hvort sem það er í sjónvarpi eða á netinu. Margir hnefaleikamenn eru meðal frægustu einstaklinga heims, en þar má t.d. nefna Muhammad Ali, Mike Tyson, Floyd Mayweather, Manny Pacquiao, Oscar De La Hoya og George Foreman. Síðastliðin ár hafa vinsældir hnefaleika aukist aftur í fyrra horf eftir örlitla lægð. Nú seljast miðar óðfluga á hnefaleikaviðburði hefðbundinna hnefaleikamanna, frægra stjarna og annarra íþróttamanna, sem höfðu skapað sér vinsældir fyrir iðkun annarra íþrótta.
    Flutningsmenn eru meðvitaðir um áhættu þess að stunda hnefaleika. Öllum íþróttagreinum fylgir hætta á meiðslum hvort sem þau eru alvarleg eða minni háttar. Með réttum búnaði, öryggisráðstöfunum o.fl. er þeirri áhættu haldið í lágmarki. Nú er ómögulegt að bera öryggisbúnað- og ráðstafanir sem fylgja íþróttaiðkun saman við það sem tíðkaðist fyrir mörgum áratugum, t.d. þegar umdeilt bann við hnefaleikum var lögfest hér á landi. Reglur hafa breyst töluvert, sérstaklega hvað varðar pörun andstæðinga, heilbrigðiseftirlit með keppendum og öryggisráðstafanir á viðburðum, t.d. ef til rothöggs eða meiðsla kemur. Reglum um hönnun hanska og bindingar á höndum hafa einnig breyst, aðallega til að sporna við meiðslum þeirra sem veita höggið hverju sinni. Einnig hefur lotum verið fækkað í atvinnumannahnefaleikum til að sporna enn frekar við alvarlegum meiðslum, en þær breytingar áttu sér stað í kjölfar alvarlegs atviks árið 1982. Í ólympískum hnefaleikum stendur hver viðureign í þrjár lotur en viðureign í atvinnumannahnefaleikum getur staðið í allt að tólf lotur, þó ávallt með þeim fyrirvara að viðureign getur klárast fyrr, aðallega með tæknilegu rothöggi. Nú er nær enginn munur á atvinnuhnefaleikum og ólympískum hnefaleikum utan fjölda lotna. Hjálmur hefur til að mynda verið fjarlægður í ólympískum hnefaleikum hjá körlum en hann er enn til staðar hjá konum, þótt þær séu margar farnar að mótmæla þeirri ákvörðun og því aðeins tímaspursmál hvenær því verður breytt. Talið er að minni líkur séu á heilahristingi sé hjálmurinn ekki til staðar, eins ótrúlega og það hljómar. Nú er einnig læknir á öllum stórum bardögum sem passar upp á að bardagi sé stöðvaður áður en illa fer.
    Með framangreindu banni við hnefaleikum skertist frelsi bæði til iðkunar og atvinnu. Frelsi til iðkunar áhugamannahnefaleika hefur þegar verið veitt aftur, sem dregur úr banni frá 1956. Hins vegar telja flutningsmenn að bann við atvinnumannahnefaleikum skerði atvinnufrelsi. Í 75. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, segir: „Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa.“ Það frelsi má þó takmarka með lögum ef almannahagsmunir krefjast þess. Ekki er talið að almannahagsmunir krefjist þess að takmarka skuli frelsi til atvinnu hvað hnefaleika varðar og núna eru einstaklingar á Íslandi sem hafa atvinnu af hnefaleikum. Þessir einstaklingar neyðast til að fara erlendis, til dæmis til Noregs, Svíþjóðar eða Bandaríkjanna, til að stunda sína atvinnu. Hér má því segja að um ákveðið réttlætismál sé að ræða hvað varðar frelsi atvinnuréttinda. Á undanförnum árum hafa nær allar þjóðir í kringum okkur, í það minnsta þær sem við berum okkur gjarnan saman við, leyft atvinnumannahnefaleika þar sem einstaklingnum er í sjálfsvald sett hvort hann stundar, keppir eða sýnir hnefaleika og aðrar bardagaíþróttir, hvort heldur sem er í atvinnu- eða áhugaskyni. Enginn er neyddur í bardaga sem hann vill ekki fara í og iðkandinn er ávallt hafður í fyrirrúmi.
    Í Danmörku og Finnlandi hafa hnefaleikar aldrei verið bannaðir. Í Danmörku hefur hins vegar verið reglugerð í gildi frá árinu 2017 um tiltekna opinbera bardaga innan ramma bardagaíþrótta 1 . Í henni er kveðið á um leyfi sem þörf er á að fá, standi til að halda opinberan bardaga. Þar er einnig krafa um að veittar séu upplýsingar um tíma og staðsetningu viðburðar og áætlaðan fjölda áhorfenda. Þá er þar einnig mælt með því að læknir sé til staðar á viðburðinum svo tryggja megi öryggi og heilsu keppenda. Sá læknir hefur þá heimild til að stöðva bardagann, skapist þess lags aðstæður.
    Í Svíþjóð hafa, frá árinu 2007, verið í gildi lög um leyfisskilyrði vegna tiltekinna bardagaíþróttaviðburða 2 . Fram að þeirri löggjöf voru í gildi lög um bann við atvinnumannahnefaleikum, en þau lög féllu úr gildi við gildistöku nýju laganna. Fyrir þann tíma höfðu bæði ólympískir hnefaleikar og áhugamannahnefaleikar verið leyfðir, sem er einnig raunin hér. Löggjöfin í Svíþjóð, líkt og í Danmörku, kveður á um veitingu leyfa til að halda bardagaíþróttaviðburði sem fela í sér viljandi högg í höfuð andstæðings. Þar hafa yfirvöld eftirlit með því að farið sé eftir lögum og reglum.
    Í Noregi má finna nýjasta dæmið er varðar það sem hér um ræðir. Árið 2014 voru lög um bann við atvinnuhnefaleikum afnumin. Fyrir þann tíma höfðu þá bæði ólympískir hnefaleikar og áhugamannahnefaleikar verið leyfðir. Þó hafa, frá árinu 2002, verið í gildi lög um skipulagða bardaga þar sem rothögg eru leyfð 3 . Þar, líkt og í Danmörku, þarf að fá samþykki fyrir keppnum, sýningum og æfingabardögum þar sem rothögg eru leyfð. Til að fá það samþykki þarf að leggja mat á hvort nægilegt mið sé tekið af heilsu og öryggi keppendanna. Í Noregi gilda fjölmargar aðrar reglur sem norska hnefaleikasambandið styðst við en það er það samband sem hvað mest er litið til af nágrannaþjóðunum.
    Á Íslandi eru í gildi íþróttalög, nr. 64/1998. Í 14. gr. þeirra laga segir að ráðherra hafi forgöngu um setningu reglna um öryggisráðstafanir í íþróttamannvirkjum, þar á meðal um eftirlit og að því er varðar íþróttaáhöld og annan búnað. Þá segir enn fremur í 15. gr. sömu laga að ráðherra geti í reglugerð sett nánari ákvæði um framkvæmd laganna. Ráðherra sem fer með íþróttamál í landinu í samvinnu við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefði forgöngu um samningu sérreglna um hnefaleika.
    Landfræðileg lega Íslands skiptir máli við ákvörðun um að samþykkja lög sem heimila atvinnuhnefaleika. Ísland er t.d. hlutlaus höfn hvað varðar staðsetningu á stórum bardögum sem fram fara á milli t.d. hnefaleikamanna í Bandaríkjunum annars vegar og hnefaleikamanna í Evrópu hins vegar. Nú þegar er vitað af fjölda bardagamanna sem myndu gjarnan vilja keppa á Íslandi ef sá möguleiki væri fyrir hendi. Hnefaleikaiðnaðurinn hleypur á milljörðum króna á ári hverju.
    Flutningsmenn telja að með samþykkt frumvarpsins verði staða hnefaleika, þessarar vinsælu íþróttagreinar, styrkt hér á landi og um leið auknir möguleikar á því að atvinnumenn í hnefaleikum geti komið frá Íslandi í náinni framtíð.



1     Bekendtgørelse om visse offentlige kampe inden for kampsport
www.retsinformation.dk/eli/lta/2016/1445
2     Lag om tillståndsplikt för vissa kampsportsmatcher (2006:1006)
www.riksdagen.se/sv/dokument-och-lagar/dokument/svensk-forfattningssamling/lag-20061006-om-tillstandsplikt-for-vissa_sfs-2006-1006/
3     Lov om organisert kampaktivitet som tillater knockout [knockoutloven]
lovdata.no/dokument/NL/lov/2001-06-15-73