Ferill 156. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 156  —  156. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um afnám vasapeningafyrirkomulags.


Flm.: Inga Sæland, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon, Tómas A. Tómasson.


    Alþingi ályktar að fela félags- og vinnumarkaðsráðherra að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um málefni aldraðra, fyrir árslok 2025, sem tryggi afnám svokallaðs vasapeningafyrirkomulags og að lífeyrisþegi sem flytur á dvalar- eða hjúkrunarheimili haldi óskertum lífeyris- og bótagreiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins. Markmið frumvarpsins verði að aldraðir fái notið lögbundins fjárræðis og sjálfræðis.

Greinargerð.

    Þingsályktunartillaga þessi var áður lögð fram á 149., 150., 151., 152., 153. og 154. löggjafarþingi ( 152. mál) og er nú lögð fram að nýju óbreytt.
    Eldri borgarar hafa í mörg ár barist fyrir því að breytingar verði gerðar á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, þannig að eldri borgarar haldi sjálfræði sínu og fjárhagslegu sjálfstæði óháð heimilisfesti. Í V. kafla laganna er fjallað um kostnað við öldrunarþjónustu. Þar er einnig fjallað um þátttöku heimilismanna dvalarheimila í greiðslu þess kostnaðar.
    Þegar einstaklingur flytur inn á dvalar- eða hjúkrunarheimili fellur réttur viðkomandi til ellilífeyris niður. Ef tekjur viðkomandi ná ekki 153.877 kr. á mánuði getur hann átt rétt á ráðstöfunarfé, eða vasapeningum, sem á árinu 2024 er að hámarki 100.020 kr. á mánuði. Kostnaðarþátttakan er umtalsverð og margir verða af nær öllum sínum tekjum þegar ellilífeyrir fellur niður. Afleiðingin er sú að fólk þarf í flestum tilvikum að láta vasapeningana duga fyrir öllum útgjöldum. Þá skerðast vasapeningarnir um 65% vegna annarra tekna.
    Með tillögu þessari er lagt til að ráðherra verði falið að leggja fram lagafrumvarp sem tryggi sjálfræði og fjárræði aldraðra einstaklinga þegar þeir fara inn á hjúkrunarheimili og að greiðsluþátttöku íbúa á dvalar- og hjúkrunarheimilum verði breytt þannig að íbúar haldi lífeyrisgreiðslum sínum og greiði milliliðalaust fyrir húsaleigu, mat og annan kostnað sem fylgir heimilishaldi. Almennar reglur um þá heilbrigðisþjónustu sem veitt er á heimilunum verði þó óbreyttar. Gert verði ráð fyrir að íbúar geti átt rétt á húsnæðisbótum og kostnaðarþátttaka einstaklinga á dvalar- eða hjúkrunarheimilum verði tekjutengd og falli niður hjá þeim sem hafi lágar tekjur.
    Árið 1989 fékk Halldór Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður Dalbæjar á Dalvík, leyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins til að breyta hluta Dalbæjar, heimilis aldraðra á Dalvík, í verndaðar þjónustuíbúðir. Halldór skrifaði skýrslu til heilbrigðisráðuneytisins og stjórnar Dalbæjar í október 1990, nokkrum mánuðum eftir að tilraunaverkefninu lauk. Tilrauninni var ætlað að gefa öldruðum kost á að halda fjárhagslegu sjálfstæði. Fjórir karlar og fjórar konur tóku þátt í tilrauninni og niðurstöðurnar voru að þátttakendur í tilrauninni sýndu aukna virkni, félagslífið jókst og ferðir út í bæ urðu fleiri. Þessi tilraun leiðir líkur að því að hið hefðbundna dvalarheimilisform sé neikvætt og hafi alið af sér ótímabæra hrörnun einstaklinga.
    Afnám vasapeningafyrirkomulagsins hefur verið á döfinni í mörg ár án þess að þær hugmyndir hafi skilað sér í neinu haldbæru. Árið 1990 var sambærilegu fyrirkomulagi í Danmörku breytt. Lífeyris- og bótaþegar sem bjuggu á stofnunum héldu sínum tekjum en borguðu fyrir sig. Það hafði ekki endilega í för með sér að þeir hefðu meira fé handa á milli, en það þýddi að þeir voru fjárhagslega sjálfstæðir.
    Árið 2015 vakti Guðrún Einarsdóttir mikla athygli þegar hún boðaði til blaðamannafundar í hjúkrunarrými sínu. Guðrún boðaði til fundarins til að vekja athygli á og mótmæla vasapeningafyrirkomulaginu svokallaða. Í kjölfar þessa fundar fékk Guðrún fund með þáverandi félagsmálaráðherra, Eygló Harðardóttur, sem sagðist binda vonir við að brátt yrði hægt að taka upp breytt kerfi.
    Árið 2016 skipaði Eygló Harðardóttir starfshóp til að skoða hvort breyta mætti greiðsluþátttöku vegna dvalar á hjúkrunarheimilum. Vinna þess starfshóps virðist hafa dagað uppi við ríkisstjórnarskiptin 2017.
    Í september 2019 skipaði Ásmundur Einar Daðason, þáverandi félags- og barnamálaráðherra, starfshóp um lífskjör og málefni aldraðra, sem m.a. skyldi skoða hvort ástæða væri til að breyta greiðsluþátttöku íbúa á hjúkrunarheimilum. Sá starfshópur skilaði lokatillögum í september 2021. Þar var lagt til að taka vasapeningafyrirkomulagið til endurskoðunar sem lið í heildarstefnumótun um fyrirkomulag öldrunarþjónustu.
    Í júní 2022 skipaði félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, verkefnastjórn sem skilaði síðan drögum að heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk.
Drögin urðu svo, vorið 2023, að þingsályktun um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk. Í aðgerðaáætluninni sagði um vasapeningafyrirkomulagið: „Stofnað verði teymi um nýjungar í búsetufyrirkomulagi eldra fólks sem er í þörf fyrir fjölbreytta þjónustu. Teymið hafi það hlutverk að greina fyrirliggjandi tillögur, m.a. varðandi greiðsluþátttöku íbúa á hjúkrunarheimilum.“ Afrakstur af átta ára vinnu ráðuneytanna er því að skipa enn einn starfshópinn, þann fjórða á átta árum. Eftir stendur vasapeningafyrirkomulagið óbreytt.
    Með þessari þingsályktunartillögu er því beint til félags- og vinnumarkaðsráðherra að endurskoða strax vasapeningafyrirkomulagið þannig að aldraðir haldi sjálfræði inni á stofnunum í eins ríkum mæli og kostur er svo að sem minnstar breytingar verði á högum fólks og háttum þegar það þarf á breyttu búsetuúrræði að halda.