Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 194  —  1. mál.

1. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2025.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


Skv. frv.
m.kr.
Breyting
m.kr.
Samtals
m.kr.
Breytingar á sundurliðun 2:
27 Örorka og málefni fatlaðs fólks
Við 27.40 Aðrar örorkugreiðslur (Önnur          velferðarmál, lífeyristrygg.)
a.     Rekstrartilfærslur
378,7 1.175,0 1.553,7
b.      Framlag úr ríkissjóði
367,6 1.175,0 1.542,6


Greinargerð.

    Lagt er til 1.175 m.kr. framlag vegna skattfrjálsrar og sértækrar eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega sem kemur til viðbótar hefðbundnum orlofs- og desemberuppbótum lífeyrisþega. Þetta er sambærileg upphæð og var greidd í fjáraukalögum fyrir árið 2023 upp á 1.600 m.kr. og miðast við verðlagsþróun áranna 2024 og 2025 samkvæmt fjárlagafrumvarpi. Gert er ráð fyrir því að eingreiðslan sé vegna tímabilsins janúar 2025 til loka ágúst 2025, eða þangað til ný lög um almannatryggingar taka gildi með tilheyrandi kerfisbreytingum.