Ferill 204. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 205 — 204. mál.
Fyrirspurn
til menningar- og viðskiptaráðherra um auglýsingasölu RÚV.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hverjar voru niðurstöður starfshóps um málefni Ríkisútvarpsins hvað varðar veru RÚV á auglýsingamarkaði og takmörk á sölu RÚV á auglýsingum?
2. Hyggst ráðherra bregðast við veru RÚV á auglýsingamarkaði?
3. Hyggst ráðherra leggja til að sala RÚV á auglýsingum verði takmörkuð?
4. Hvernig samræmast áætlanir RÚV um auknar auglýsingatekjur á árinu markmiðum um minni umsvif RÚV á auglýsingamarkaði?
Skriflegt svar óskast.