Ferill 206. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 207 — 206. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um grænar fjárfestingar.
Frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.
1. Hversu hátt hlutfall af fjárfestingum ríkisins undanfarin tvö ár telst til grænna fjárfestinga í þeim skilningi að vera til þess fallnar að draga úr losun mengandi gróðurhúsalofttegunda, vernda vistkerfi eða stuðla með öðrum hætti að því að Ísland uppfylli alþjóðlegar skuldbindingar sínar á sviði loftslagsmála? Hver er fjárhæð þessara fjárfestinga?
2. Telur ráðherra þessar fjárfestingar til þess fallnar að stuðla að því að íslensk stjórnvöld nái fram markmiðum sínum í loftslagsmálum?
Skriflegt svar óskast.