Ferill 219. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 220  —  219. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um útboð á rekstri tollfrjálsrar verslunar á Akureyrarflugvelli.


Flm.: Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Vilhjálmur Árnason.


    Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að gera nauðsynlegar ráðstafanir svo að bjóða megi út rekstur verslunar með tollfrjálsar vörur á flugvallarsvæðinu á Akureyrarflugvelli.

Greinargerð.

    Markmið tillögu þessarar er að fagaðilum verði falinn rekstur verslunar með tollfrjálsar vörur á Akureyrarflugvelli. Mælst er til þess að fjármála- og efnahagsráðherra geri viðeigandi ráðstafanir svo að Innanlandsflugvöllum, dótturfélagi Isavia ohf. sem starfar á grundvelli laga nr. 65/2023, sé kleift að bjóða út rekstur tollfrjálsrar verslunar á Akureyrarflugvelli, í því skyni að auka samkeppnishæfni flugvallarins í þágu neytenda.
    Akureyrarflugvöllur gegnir þýðingarmiklu hlutverki fyrir íbúa og atvinnulíf á Norðausturlandi ásamt því að þar fer um lífsnauðsynlegt sjúkra- og neyðarflug. Þá skiptir gríðarlegu máli að með Akureyrarflugvelli sé rekinn öflugur og tryggur varaflugvöllur svo að leiðir til og frá landinu séu greiðfærar komi til náttúruhamfara við Keflavíkurflugvöll.
    Mikilvægt er að Akureyrarflugvöllur sé vel búinn og geti tekið vel á móti ferðamönnum í því skyni að dreifa umferð ferðamanna betur um landið. Með þessu má efla atvinnulíf og ferðaþjónustu á Norðausturlandi.
    Í samkeppnismati OECD á íslenskri ferðaþjónustu og byggingariðnaði frá 2020 er vísað til skýrslunnar „Airport Benchmarking Report 2019“ þar sem fram kom að Isavia sé með minnstu samkeppnishæfni reiknað út frá kostnaði (e. least cost-competitive) allra rekstraraðila flugvalla í Evrópu. Flutningsmenn tillögu þessarar telja það fyrsta skref í átt að aukinni samkeppnishæfni Isavia að boðinn verði út rekstur á tollfrjálsri verslun á Akureyrarflugvelli.