Ferill 223. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 224  —  223. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um réttindi þegar fleiri en tveir foreldrar standa að fjölskyldu.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


     1.      Telur ráðherra ástæðu til að breyta reglum um fæðingarorlof, þannig að þær taki tillit til þess að hinsegin fjölskyldur samanstanda oft frá fyrstu stundu af fleiri en tveimur foreldrum?
     2.      Telur ráðherra ástæðu til að endurskoða lög sem snúa að stöðu fjölskyldunnar svo hægt sé að tryggja börnum og aðstandendum þeirra jöfn réttindi miðað við fjölskyldur sem samanstanda aðeins af tveimur foreldrum?


Munnlegt svar óskast.