Ferill 228. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 229 — 228. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um endurskoðun barnalaga.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hvað líður vinnu sifjalaganefndar, sem fram kom í svari ráðherra á 154. löggjafarþingi (759. mál) að ætlað væri að skila ráðherra drögum að heildarendurskoðun á barnalögum og hjúskaparlögum fyrir 1. september 2024?
2. Hvenær má vænta þess að ráðherra taki ákvörðun um hvort heimila skuli sjálfkrafa skráningu samkynja foreldra sem eru í hjúskap eða í skráðri sambúð? Má vænta frumvarps þess efnis á yfirstandandi löggjafarþingi, þótt það sé ekki að finna á þingmálaskrá?
Skriflegt svar óskast.