Ferill 233. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 234 — 233. mál.
Stjórnartillaga.
Tillaga til þingsályktunar
um sjávarútvegsstefnu til ársins 2040.
Frá matvælaráðherra.
Alþingi ályktar að unnið verði samkvæmt eftirfarandi sjávarútvegsstefnu til ársins 2040. Stefnan verði leiðbeinandi við ákvarðanatöku um sjávarútveg til að stuðla að hagkvæmri og sjálfbærri nýtingu sjávarauðlinda í sátt við umhverfi og samfélag.
1. Framtíðarsýn.
Framtíðarsýn í sjávarútvegi verði eftirfarandi:
1. Rannsókna- og nýsköpunarstarf viðhaldi sjálfbærni og auki mælanlega fjölbreytni og verðmætasköpun í sjávarútvegi.
2. Samstarf hagaðila við hafrannsóknir auki vísindalega þekkingu á umhverfi og vistkerfum hafsins.
3. Ísland sé í fremstu röð ríkja þegar kemur að verndun hafsvæða og vistkerfa.
4. Nýting sjávarauðlinda sé sjálfbær og fari fram á grundvelli vistkerfisnálgunar og varúðarnálgunar, þar sem stuðlað er að verndun og eflingu líffræðilegrar fjölbreytni.
5. Nýting sjávarauðlinda sé hagkvæm og fyrirsjáanleg með sveigjanleika til nýsköpunar, hagræðingar, aukinnar verðmætasköpunar og uppbyggingu staðbundinnar þekkingar. Fullnýting sjávarafurða sé tryggð í virðiskeðju sjávarútvegs.
6. Ákvarðanir um nýtingu sjávarauðlinda taki mið af jöfnuði óháð efnahag, kyni, uppruna og búsetu og hag samfélagsins í efnahagslegu tilliti.
7. Ísland sé leiðandi í hugviti og tæknibreytingum sem stuðla að sjálfbærum sjávarútvegi.
8. Framleiðsla í sjávarútvegi sé arðbær, samkeppnishæf og styðji við uppbyggingu staðbundinnar þekkingar.
9. Ísland sé í fremstu röð ríkja í arðbærri framleiðslu og sölu á hágæða afurðum úr hafinu og sjávarútvegur samkeppnishæfur við sambærilega matvælaframleiðslu.
10. Endurgjald fyrir nýtingu nytjastofna sjávar renni til þjóðarinnar.
11. Sjávarútvegur sé leiðandi í loftlagsmálum og orkuskiptum og verði kolefnishlutlaus.
12. Fjölbreytt byggðaþróun og öflugar sjávarbyggðir verði í kringum landið.
13. Haflæsi almennings aukist og teknar séu upplýstar og ábyrgar ákvarðanir sem styðja við heilbrigði hafsins.
14. Menntun tengd hafinu mæti þörfum umhverfis, samfélags og atvinnulífs.
15. Sjávarútvegur og málefni hafsins sé spennandi starfsvettvangur sem laðar að sér starfsfólk með hæfni og getu til að takast á við áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi.
16. Stjórnsýsla sé skilvirk og einföld og eftirlit og rannsóknir fylgi framþróun við nýtingu sjávarauðlinda.
2. Gildi.
1. Sjálfbærni – Nýting og stjórnun auðlinda sjávar sé sjálfbær og byggist á öflugum grunnrannsóknum og upplýsingum um náttúrulega þætti í lífríki hafsins.
2. Hagkvæmni – Nýting sjávarauðlinda sé hagkvæm með áherslu á aukna verðmætasköpun með fullnýtingu afurða og markaðssetningu íslenskra sjávarafurða.
3. Fyrirsjáanleiki – Stjórnun nýtingar sjávarauðlinda sé skýr, rannsóknir stuðli að fyrirsjáanleika við nýtingu og stjórnsýslulegum óvissuþáttum við auðlindanýtingu fækkað.
4. Gagnsæi – Upplýsingar um auðlindanýtingu og umgengni við vistkerfi hafsins séu traustar, rekjanlegar og gagnsæjar.
3. Áherslur.
Til þess að framtíðarsýnin verði að veruleika verði lögð áhersla á eftirfarandi viðfangsefni:
1. Sjálfbæra auðlindanýtingu í hafi.
2. Vöktun og viðbrögð við breytingum lífríkisins.
3. Aukna þekkingu á hafinu með rannsóknum og menntun.
4. Hagkvæmni og verðmætasköpun.
5. Samfélagið.
6. Jafnrétti.
7. Fæðuöryggi.
8. Matvælaöryggi.
4. Stefnan í framkvæmd.
Til að hrinda sjávarútvegsstefnu til ársins 2040 í framkvæmd verði gerðar áætlanir um aðgerðir til fimm ára í senn. Áætlanir þessar verði yfirfarnar og endurskoðaðar árlega og uppfærðar ef þörf þykir.
Greinargerð.
Markmið með sjávarútvegsstefnu er hagkvæm og sjálfbær nýting auðlinda úr hafi í sátt við umhverfið. Samhliða vinnu við verkefnið Auðlindin okkar á vegum matvælaráðuneytisins, þar sem kortlagðar voru áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi, voru unnin drög að stefnu um sjávarútveg sem m.a. byggjast á matvælastefnu til ársins 2040. Sjávarútvegsstefna inniheldur framtíðarsýn íslensks sjávarútvegs til ársins 2040, gildi sjávarútvegsins og áherslur.
2. Tilgangur stefnu um sjávarútveg.
Sjávarútvegsstefnu er ætlað að vera leiðbeinandi við ákvarðanatöku til að stuðla að hagkvæmri og sjálfbærri nýting sjávarauðlinda í sátt við umhverfi og samfélag. Mörg tækifæri eru í sjávarútvegi og mikilvægt að nýta þau með samræmdum aðgerðum. Tilgangur stefnunnar er að setja fram skýr og mælanleg markmið sem nýtast við ákvarðanatöku í sjávarútvegi og varða sjálfbæra nýtingu lifandi auðlinda hafsins.
Meginmarkmið stefnunnar byggist á þremur stoðum sjálfbærrar þróunar: umhverfi, efnahag og samfélagi. Sjálfbær nýting sjávarauðlinda felur í sér að nýting fari ekki umfram þau mörk sem náttúran setur. Markmið stefnunnar taka m.a. mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Sjálfbær nýting auðlinda vísar til þess að auðlind sé nýtt með þeim hætti að hún leiði ekki til langtíma hnignunar hennar.
3. Meginefni tillögunnar.
Svo tryggja megi að framtíðarsýnin verði að veruleika er lögð áhersla á eftirfarandi viðfangsefni:
Sjálfbær auðlindanýting í hafi.
Stefna stjórnvalda í fiskveiðistjórn er að nytjastofnar sjávar séu nýttir á sjálfbæran hátt. Markmið um að koma í veg fyrir ofveiði og ólöglegar veiðar er vel á veg komið. Á Íslandi hefur verið byggt upp fiskveiðistjórnunarkerfi sem stuðlar að ábyrgum fiskveiðum á sjálfbærum grunni og góðri umgengni um vistkerfi hafsins og byggist vistkerfis- og varúðarnálgun á víðtækum rannsóknum á nytjastofnum og vistkerfum sjávar.
Sjávarútvegur byggist á nýtingu nytjastofna sjávar og hefur því áhrif á vistkerfi hafsins. Náttúruleg takmörk ráða því hversu mikið er hægt að nýta úr sjó, og ólíklegt er að hægt verði að auka afla að neinu marki nema nýjar nytjategundir og ný tækni við nýtingu þeirra komi til. Áhersla er því lögð á að auðlindanýting í hafi sé byggð á góðri þekkingu á vistkerfum hafsins og öflugum hafrannsóknum.
Tryggja þarf að veiðistofnar verði í jafnvægi en veiðar hafa bein áhrif á þær tegundir og stofna sem þeim er beint að en einnig getur slík auðlindanýting haft áhrif á aðrar tegundir, tegundasamsetningu og samspil tegunda. Ákvarðanir íslenskra stjórnvalda um vernd og nýtingu nytjastofna sjávar og verndun vistkerfisins er byggð á vísindalegri ráðgjöf. Verndarsvæði í hafi er mikilvægur þáttur í sjálfbærri nýtingu auðlinda sjávar og hefur Ísland skuldbundið sig til að vernda 30% hafsvæða fyrir 2030. OSPAR-samningurinn og samningurinn um líffræðilega fjölbreytni (e. Convention on biology diversity: CBD) leggja grunn að sýn stjórnvalda á verndun mikilvægra og viðkvæmra vistkerfa sjávar. Áfram verður unnið að markvissari og mælanlegri vernd á þeim grunni.
Vöktun og viðbrögð við breytingum í lífríkinu.
Vakta þarf umhverfisþætti og gera grunnrannsóknir m.a. á áhrifum loftslagsbreytinga og breytinga á líffræðilegri fjölbreytni á mismunandi lífverur og vistkerfi sjávar. Leggja þarf reglulega mat á hagræn og samfélagsleg áhrif mögulegra breytinga á sjávarútveg og stuðla að því að fyrirtæki, stofnanir og aðilar í sjávarútvegi vinni saman að vöktun og greiningu á aðlögunarþörf greinarinnar.
Íslensk stjórnvöld hafa sett fram markmið um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda árið 2030 og kolefnishlutleysi árið 2040. Leggja þarf því reglulega mat á losun vegna matvælaframleiðslu. Í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum eru ýmsar aðgerðir sem snúa að matvælaframleiðslu, en meðal þeirra helstu eru aðgerðir sem snúa að orkuskiptum í sjávarútvegi og útfösun kælimiðla í skipum.
Í nýlegri stefnu stjórnvalda, Í ljósi loftslagsvár, er fjallað um aðlögun að loftslagsbreytingum. Í stefnunni eru sett fram grunnmarkmið fyrir ýmsa þætti en lögð er áhersla á að markmið stjórnvalda taki mið af samfélagslegum áhrifum loftslagsbreytinga, svo sem breytingum á íbúafjölda, búsetumynstri, atvinnutækifærum og matvælaframleiðslu.
Aukin þekking á hafinu með rannsóknum og menntun.
Hafsvæðið í kringum Ísland og vistkerfi þess er lítið rannsakað en rannsóknir eru undirstaða sjálfbærrar nýtingar og verðmætaaukningar. Auka þarf þekkingu á hafinu og tryggja nægt framboð á menntun sem tengist hafinu. Menntun tengd hafinu leggur grunn að sjálfbærum og framsæknum sjávarútvegi sem spennandi starfsvettvangi óháð efnahag, kyni og uppruna. Greina þarf til hlítar og vakta lífríki sjávar og vinna að því að rannsóknir verði fordæmi fyrir opnum vísindum sem stuðli að samstarfi og betri nýtingu gagna um hafið.
Hagkvæmni og verðmætasköpun.
Stuðlað verður að áframhaldandi hagkvæmri og skynsamlegri nýtingu sjávarauðlinda og sjálfbærum veiðum. Eftirtektarverður árangur hefur náðst í sjálfbærum veiðum og nýtingu sjávarauðlinda síðustu áratugi sem hefur verulega aukið verðmæti heildarafla á Íslandi. Þennan árangur er að hluta til að þakka miklum fjárfestingum í rannsóknum og nýsköpun. Sú vinna hefur leitt til bættra vinnsluferla, betri nýtingar, bættra gæða og nýrra leiða til að nýta hliðarafurðir. Þessi vinna hefur jafnframt skilað sér í umtalsvert meiri verðmætum á hvert kíló veidds afla. Til þess að viðhalda áframhaldandi hagkvæmni í íslenskum sjávarútvegi þarf að byggja áfram á sjálfbærri nýtingarstefnu og fjárfesta í framþróun sjávarútvegs. Efla þarf hringrásarhagkerfið með því að auka hlutfall þeirra afurða í sjávarútvegi sem eru fullunnar og seldar þannig og draga úr útflutningi á óunnum matvælum. Lágmarka þarf nýtingu umbúða í sjávarútvegi og tryggja endurnýtingu þeirra. Einnig þarf að auka skilvirkni við förgun alls úrgangs sem fellur til við matvælaframleiðslu í sjávarútvegi.
Samfélagið.
Sjávarútvegur og vinnsla sjávarafurða er sú matvælaframleiðsla sem hefur staðið undir stærstum hlut vergrar landsframleiðslu. Til þess að viðhalda áframhaldandi velsæld á Íslandi þarf fjárfestingar í sjálfbærum vexti efnahagslífs. Hlutur matvælaframleiðslu í þeirri auknu verðmætasköpun getur verið umtalsverður. Í skýrslunni Staða og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi kemur fram að til þess að spár um vaxandi virði framleiðslu sjávarafurða gangi eftir þurfi að hlúa að styrkleikum íslensks sjávarútvegs, svo sem nýtingarstefnu fiskistofna, fiskveiðistjórnunarkerfinu og öflugu samspili hefðbundinna sjávarútvegsfyrirtækja og tækni- og þekkingarfyrirtækja. Styrkja þurfi rannsóknarinnviði, efla innlendar rannsóknir og auka samstarf innlendra rannsóknarsjóða. Á þessum grunni verði framrás sjávarútvegsins reist, en jafnframt þurfi íslensk fyrirtæki að grípa þau tækifæri sem gefast á nýjum mörkuðum og með breyttri neysluhegðun neytenda samfara auknum kröfum um gæði, heilnæmi og sjálfbærni afurða.
Bæta þarf enn frekar upplýsingagjöf um nýtingu sjávarauðlinda og um sjávarútveg í heild sinni. Tryggja þarf aukið haflæsi og skilning á því hvernig nýting sjávarauðlinda fer fram.
Í mörgum sveitarfélögum er sjávarútvegur burðarás í atvinnulífinu. Mikilvægt er að huga að því hvaða matvæli eru aðgengileg í nærumhverfi og að framleiðsla matvæla byggist á því hvers er neytt og neytt sé meira af því sem er framleitt. Þræðir matvælaframleiðslu liggja einnig mjög víða um samfélagið þar sem atvinnugreinin tengist mörgum öðrum atvinnugreinum, ekki síst tækni- og nýsköpunargreinum og ferðaþjónustu.
Í stefnu stjórnvalda er áhersla lögð á að fólk þurfi að eiga raunverulegt val um hvar það býr og starfar. Því er lögð áhersla á að styðja við frjótt umhverfi um allt land, þannig að grónar atvinnugreinar geti dafnað og nýskapandi hugsun laði fram ný tækifæri . Nýting sjávarauðlinda getur verið staðbundin að hluta og því gegnir sjávarútvegur mikilvægu hlutverki þegar kemur að traustri byggð og atvinnu í kringum landið.
Greiða þarf endurgjald fyrir afnot og hagnýtingu á auðlindum hafsins. Endurgjaldinu er m.a. ætlað að mæta kostnaði ríkisins við rannsóknir, stjórn, eftirlit og umsjón með nýtingu sjávarauðlinda og til að tryggja þjóðinni í heild beina og sýnilega hlutdeild af ávinningi við nýtingu nytjastofna sjávar.
Jafnrétti.
Áhersla skal lögð á jafnrétti í allri matvælaframleiðslu og að nýting auðlinda taki m.a. mið af jöfnuði, óháð efnahag, kyni, uppruna og búsetu. Hagur heildarinnar verði þannig hafður að leiðarljósi við nýtingu auðlinda. Sjávarútvegur hefur hingað til verið karllæg atvinnugrein og þar starfar hærra hlutfall karla en kvenna, eins og í öllum greinum matvælaframleiðslu. Ljóst er að töluvert ójafnvægi er milli kynja í sjávarútvegi og því er lögð áhersla á að auka fjölbreytni þess hóps fólks sem starfar í sjávarútvegi til framtíðar, sbr. skýrsluna Auðlindin okkar – Sjálfbær sjávarútvegur (2023).
Fæðuöryggi.
Áhersla er lögð á aukna nýsköpun í nýtingu nytjastofna sjávar og framleiðslu matvæla og þar með að stuðla að aukinni sjálfbærni auðlindanýtingar og eflingu hringrásarhagkerfis. Áhersla er á að draga úr losun við framleiðslu matvæla úr hafi og auka framleiðslu matvæla með lágu kolefnisspori. Við töku ákvarðana verði fæðuöryggi þjóðarinnar í heild haft að leiðarljósi.
Matvælaöryggi.
Áhersla er lögð á að matvæli sem framleidd eru úr auðlindum úr hafi hér á landi séu örugg og heilnæm. Tryggja þarf að matvælaeftirlit lagi sig að nýjum greinum og framleiðsluaðferðum í nýtingu nytjastofna sjávar. Hugmyndafræði einnar heilsu (e. One Health) skal höfð að leiðarljósi.
4. Samráð.
Þingsályktunartillaga þessi er samin í matvælaráðuneytinu og varðar sjávarútvegsstefnu til ársins 2040. Umfangsmikið samráð var við mótun stefnu þessarar í gegnum verkefnið Auðlindin okkar á árunum 2022–2024 en verkefnið var opið og gagnsætt. Fjölmargir aðilar komu að verkefninu. Til að tryggja aðgengi að helstu gögnum verkefnisins var hinn 4. október 2022 opnuð vefsíðan audlindinokkar.is. Þar er m.a. að finna yfirgripsmikið gagnasafn um sjávarútveg, þær fjölmörgu skýrslur sem ritaðar hafa verið um sjávarútveg á síðustu áratugum ásamt yfirliti yfir lög, dóma, frumvörp til Alþingis, álit og úrskurði er varða sjávarútveg. Einnig er þar að finna yfirlit yfir fundi samráðsnefndar og starfshópana, sem og yfirlit yfir þá hagaðila sem starfshóparnir fjórir ræddu við. Starfshóparnir fjórir kynntu fyrstu hugmyndir, kveikjur (verkefni sem mætti fara strax í að þróa og koma í framkvæmd), aðrar verkefnahugmyndir og rannsóknarspurningar á fundi með samráðsnefnd um gerð sjávarútvegsstefnu hinn 5. október 2022.
Þá var hinn 21. október 2022 birt í samráðsgátt stjórnvalda greinargerð um stöðu vinnu við gerð sjávarútvegsstefnu og veittur frestur til að veita umsögn um verkefnið og koma á framfæri ábendingum og athugasemdum (mál nr. S- 201/2022). Umsagnarfrestur var veittur til og með 20. nóvember 2022. Þá voru haldnir fjórir opnir fundir hringinn í kringum landið þar sem verkefnið Auðlindin okkar var kynnt og kallað var eftir ábendingum og skoðunum landsmanna sem nýst hafa við vinnu starfshópanna. Opnu fundirnir fóru fram á Ísafirði 25. október 2022, Eskifirði 1. nóvember 2022, Vestmannaeyjum 8. nóvember 2022 og Akureyri 15. nóvember 2022. Samtals sóttu um 400 manns opnu fundina og tæplega 5.000 manns fylgdust með fundunum í streymi, en upptökur af fundum eru aðgengilegar á vefsíðu verkefnisins audlindinokkar.is. Á tímabilinu ágúst 2022 til maí 2023 ræddu starfshóparnir við 122 sérfræðinga og hagaðila frá meira en 50 stofnunum, fyrirtækjum og samtökum. Allar ábendingar sem hafa bárust í verkefninu voru gefnar út í Riti 3 við lokaskýrslu starfshópanna og voru m.a. nýttar við útfærslu tillagna og í drögum að sjávarútvegsstefnu.
Skýrslan Auðlindin okkar – sjálfbær sjávarútvegur, þar sem drög að sjávarútvegsstefnu voru m.a. birt, var birt í samráðsgátt stjórnvalda 29. ágúst 2023 (mál nr. S-15/2023). Samtals bárust 15 umsagnir um skýrsluna og litið var til þeirra við vinnslu stefnunnar. Drög að stefnunni voru birt öðru sinni með drögum að frumvarpi til laga um sjávarútveg í samráðsgátt stjórnvalda 24. nóvember 2023 (mál nr. S-245/2023). Samtals bárust 93 umsagnir um stefnuna og drög að frumvarpinu. Almennt voru umsagnir jákvæðar um drög að stefnunni og ánægja með áherslu á sjálfbærni og varúðarnálgun í auðlindanýtingu í hafi.
5. Mat á áhrifum.
Sjávarútvegsstefna þessi markar framtíðarsýn í sjávarútvegi til ársins 2040 Ráðgert er að henni muni fylgja aðgerðaáætlun en drög að aðgerðaráætlun voru birt í samráðsgátt í skýrslunni Auðlindin okkar – sjálfbær sjávarútvegur, árið 2023. Ekki er búist við að stefnan ein og sér, án aðgerðaáætlunar, leiði til aukins kostnaðar eða hafi önnur áhrif á hagsmunaaðila, jafnrétti kynjanna, umhverfi og sjálfbæra þróun.