Ferill 240. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 243  —  240. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um áhrif Sundabrautar á umferð á Vesturlandi.

Frá Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur.


     1.      Verður gerð umferðargreining á áhrifum Sundabrautar á umferð á Vesturlandi svipuð þeirri umferðargreiningu sem verið er að gera á höfuðborgarsvæðinu?
     2.      Er tekið tillit til þess í samgönguáætlun að umferð um Vesturland eykst örugglega með tilkomu Sundabrautar, sérstaklega í ljósi þess að vegir á Vesturlandi eru ekki í því ástandi nú að þola meiri umferð og í sumum tilvikum eru vegir þar nú þegar með mun meiri og þyngri umferð en þeir bera?


Skriflegt svar óskast.