Ferill 243. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 246  —  243. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um erindi hjá kærunefnd jafnréttismála.

Frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur.


     1.      Hversu margar kærur, fyrirspurnir og önnur erindi hafa borist kærunefnd jafnréttismála á grundvelli laga um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, nr. 85/2018, frá gildistöku laganna til dagsins í dag? Svar óskast sundurliðað eftir tegund erindis og árum.
     2.      Hversu margar ákvarðanir, úrskurði, aðrar leiðbeiningar eða erindi hefur kærunefnd jafnréttismála afgreitt á grundvelli laganna á sama tímabili? Svar óskast sundurliðað eftir tegund erindis og árum.


Skriflegt svar óskast.