Ferill 245. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 248  —  245. mál.




Fyrirspurn


til utanríkisráðherra um apaflutninga frá Asíu og Afríku til Evrópu og Bandaríkjanna um Keflavíkurflugvöll.

Frá Bjarna Jónssyni.


     1.      Veitti ráðuneytið leyfi til eða er því kunnugt um flutninga íslenska flugfélagsins Bláfugls á þúsundum apa frá Asíu og Afríku til Evrópu og Bandaríkjanna á undanförnum mánuðum?
     2.      Ef slíkt leyfi var gefið, á hvaða grundvelli var heimild veitt til slíkra flutninga?
     3.      Var gengið úr skugga um að uppruni apanna væri rekjanlegur og dýrin sjálf laus við sjúkdóma og sýkla áður en þau voru flutt um Ísland?
     4.      Með hvaða hætti var gætt að dýravelferð, fjölda dýra, meðferð og umhirðu við flutning 5.000 apa um Keflavíkurflugvöll í sjö flugferðum Bláfugls?
     5.      Fékk ráðuneytið upplýsingar um hvers konar vísindatilraunir, meðhöndlun eða vist biði þessara þúsunda apa sem höfðu viðkomu í Keflavík?
     6.      Telur ráðuneytið að þessir apaflutningar um Keflavík, sjúkdómavarnir, meðferð dýranna og þau örlög sem þeim eru búin standist íslenska löggjöf þar um og þær alþjóðlegu skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist?
     7.      Hefur ráðuneytið í hyggju að fara yfir siðferðileg álitamál sem tengjast slíkum flutningum?


Skriflegt svar óskast.