Ferill 261. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 265 — 261. mál.
Beiðni um skýrslu
frá fjármála- og efnahagsráðherra um aðgerðir fyrir Grindvíkinga í kjölfar eldsumbrota á Reykjanesskaga.
Frá Gísla Rafni Ólafssyni, Ásmundi Friðrikssyni, Ásthildi Lóu Þórsdóttur, Birgi Þórarinssyni, Guðbrandi Einarssyni, Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur, Jóhanni Friðriki Friðrikssyni, Oddnýju G. Harðardóttur og Vilhjálmi Árnasyni.
Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að fjármála- og efnahagsráðherra flytji Alþingi skýrslu um mótvægisaðgerðir í kjölfar eldsumbrota á Reykjanesskaga. Í skýrslunni verði fjallað um:
a. Allar aðgerðir sem ráðist var í á Reykjanesskaga vegna eldsumbrota sem hófust í mars árið 2021.
b. Allar mótvægisaðgerðir sem ráðist var í, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki í Grindavík.
c. Uppkaup ríkisins á húsnæði í Grindavík í gegnum fasteignafélagið Þórkötlu, hver heildarkostnaður aðgerðarinnar var og hvernig fyrirkomulaginu var háttað.
d. Hversu margir féllu utan fyrirkomulags um uppkaup á húsnæði og hvert heildarverðmæti eigna sem féllu utan fyrirkomulags var, sundurliðað eftir reglum um:
1. að þurfa að hafa átt lögheimili í fasteign sinni í Grindavík,
2. að einungis sé hægt að selja eina eign,
3. að eignir lögaðila falli ekki innan fyrirkomulags,
4. að atvinnuhúsnæði verði ekki bætt,
5. eignir búseturéttarfélaga.
e. Hversu margir gátu nýtt þá aðstoð við uppkaup sem í boði var, hversu margir uppfylltu ekki skilyrði fyrir aðstoð og hversu mörg vafamál komu upp.
f. Hvernig úrlausn vafamála fór fram og niðurstaða þeirra.
g. Hversu marga leigusamninga Þórkatla hefur gert við Grindvíkinga sem seldu Þórkötlu fasteign sína.
h. Fjölda fasteigna sem féll undir skilyrði Náttúruhamfaratryggingar og fjölda fasteigna sem ekki féll þar undir. Yfirlit óskast sundurliðað eftir því hvort eignir teljast til altjóns að mati Náttúruhamfaratryggingar eða ekki.
i. Hvernig þær eignir voru metnar þar sem púði undir fasteign og lóð eru skemmd eða ónýt vegna jarðhræringa.
j. Hversu margar íbúðir leigufélagið Bríet keypti fyrir Grindvíkinga og hve margar þeirra eru enn í útleigu.
k. Hversu margir fengu leigustuðning og hversu margir þiggja hann enn.
l. Hve margir Grindvíkingar eru enn á leigumarkaði sem áttu fasteign í Grindavík og hverjar ástæður þess eru.
m. Hve mörg einingahús hafa verið byggð og hvernig þeirri vinnu miðar.
n. Hvort umönnunarsamningar eru komnir í virkni og hve margir hafa sótt um slíkan samning.
Greinargerð.
Með þessari skýrslubeiðni er þess farið á leit að teknar verði saman allar tiltækar upplýsingar um aðgerðir sem ráðist var í vegna eldsumbrota á Reykjanesskaga og uppkaup ríkisins á húsnæði í Grindavík. Fjárhagur og velferð Grindvíkinga á óvissutímum sem þessum hefur verið í brennidepli og hafa Grindvíkingar beðið óþreyjufullir eftir úrlausn sinna mála. Óvissan bætist ofan á það áfall að missa heimili sín og samfélag og því er afar brýnt að unnið sé hratt og vel að því að finna varanlegar lausnir. Því telja flutningsmenn mikilvægt að skýrsla þessi endurspegli hvernig vinnubrögð og biðtími eftir aðstoð hefur haft áhrif á velferð og fjárhag Grindvíkinga. Vonast er til að svörin nýtist til þess að áætla umfang þess fjárhagslega vanda sem skapaðist í kjölfarið hjá þeim sem féllu á milli í kerfinu.