Ferill 266. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 271 — 266. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um nýja Ölfusárbrú.
Frá Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur.
1. Hvað líður byggingu nýrrar Ölfusárbrúar? Hvenær má eiga von á að framkvæmdir hefjist?
2. Hvernig hefur undirbúningi verið háttað við framkvæmdaraðila í kjölfar samþykkts útboðs og bráðabirgðasamnings?
3. Eru sérstakar ástæður fyrir því að framkvæmdin hefur frestast óhóflega? Ef svo er, hverjar eru þær?
Skriflegt svar óskast.