Ferill 269. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 274 — 269. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um aðgerðir gegn ágengum framandi lífverum í höfnum.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hvernig er staðið að vöktun framandi lífverutegunda í höfnum og mati á því hvort um sé að ræða ágengar tegundir?
2. Hvaða reglur og verklag gilda um hvenær gripið er til aðgerða og hvaða aðgerðum er beitt þegar framandi lífverur finnast í höfnum og ástæða er til að ætla að þær ógni líffræðilegri fjölbreytni og hafi veruleg áhrif á lífríkið?
Skriflegt svar óskast.