Ferill 270. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 275 — 270. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um eftirlit með kjölfestuvatni.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hversu oft hafa eftirlitsaðilar skoðað kjölfestudagbók á grundvelli reglugerðar um kjölfestuvatn, nr. 515/2010, frá gildistöku reglugerðarinnar? Hverjar hafa niðurstöður þeirra úttekta verið?
2. Hversu oft hafa eftirlitsaðilar tekið sýni af kjölfestuvatni skips á sama tímabili? Hverjar hafa niðurstöður hverrar sýnatöku verið?
Skriflegt svar óskast.