Ferill 243. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 278 — 243. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur um erindi hjá kærunefnd jafnréttismála.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margar kærur, fyrirspurnir og önnur erindi hafa borist kærunefnd jafnréttismála á grundvelli laga um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, nr. 85/2018, frá gildistöku laganna til dagsins í dag? Svar óskast sundurliðað eftir tegund erindis og árum.
2. Hversu margar ákvarðanir, úrskurði, aðrar leiðbeiningar eða erindi hefur kærunefnd jafnréttismála afgreitt á grundvelli laganna á sama tímabili? Svar óskast sundurliðað eftir tegund erindis og árum.
Lög um jafna meðferð utan vinnumarkaðar tóku gildi 1. september 2018 en hétu þá lög um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna. Hinn 13. júlí 2022 varð heiti laganna lög um jafna meðferð utan vinnumarkaðar eftir gildistöku laga nr. 63/2022, um breytingu á lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, nr. 85/2018 (fjölgun mismununarþátta).
Frá gildistöku laga um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, nr. 85/2018, hafa kærunefnd jafnréttismála borist tíu kærur á grundvelli þeirra. Þar af bárust tvær kærur árið 2022, þrjár kærur árið 2023 og fimm kærur hafa borist það sem af er ári 2024. Ekki hafa borist fyrirspurnir eða önnur erindi á grundvelli laganna.
Kærunefnd jafnréttismála hefur kveðið upp úrskurði í sex þessara mála, einu máli árið 2022, þremur árið 2023 og fjórum það sem af er ári 2024. Þrjú mál bíða úrskurðar nefndarinnar en kæra var afturkölluð í einu máli.