Ferill 277. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 283  —  277. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um brottfall lífeyrisgreiðslna vegna dvalar á stofnun.

Frá Guðmundi Inga Kristinssyni.


     1.      Hversu margir einstaklingar hafa misst rétt til lífeyrisgreiðslna almannatrygginga vegna dvalar á stofnun hluta árs, sbr. 38. gr. laga um almannatryggingar, á hverju ári undanfarin fjögur ár?
     2.      Hvað myndi það kosta ríkissjóð ef lífeyrisgreiðslur féllu ekki niður vegna dvalar á stofnun hluta árs, heldur aðeins þegar ljóst er að um varanlega dvöl er að ræða?


Skriflegt svar óskast.