Ferill 298. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 305  —  298. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

Frá fjármála- og efnahagsráðherra.



1. gr.

Gildissvið.

    Lög þessi gilda um einstaklinga og lögaðila sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi í Grindavíkurbæ, hófu starfsemina fyrir 10. nóvember 2023 og bera ótakmarkaða skattskyldu hér á landi skv. 1. eða 2. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003. Lögin gilda ekki um opinbera aðila, svo sem stofnanir, byggðasamlög og fyrirtæki í eigu ríkis eða sveitarfélaga.

2. gr.

Markmið.

    Markmið laga þessara er að viðhalda atvinnustarfsemi rekstraraðila í Grindavíkurbæ, einkum minni rekstraraðila sem hafa orðið fyrir tekjufalli vegna jarðhræringa á sunnanverðu Reykjanesi, eða eftir atvikum til að aðstoða rekstraraðila til að byggja upp starfsemi annars staðar á landinu.

3. gr.

Orðskýringar.

    Í lögum þessum er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir:
     1.      Atvinnurekstur eða sjálfstæð starfsemi: Starfsemi aðila sem greiðir laun skv. 1. eða 2. tölul. 5. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, og er skráður á launagreiðendaskrá, svo og á virðisaukaskattsskrá þegar það á við.
     2.      Föst starfsstöð: Föst atvinnustöð þar sem starfsemi rekstraraðila fer að nokkru eða öllu leyti fram, sbr. ákvæði laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, sbr. einnig reglugerð um fasta starfsstöð, nr. 1165/2016.
     3.      Rekstraraðili: Einstaklingur eða lögaðili sem fellur undir gildissvið laga þessara skv. 1. gr.
     4.      Rekstrarkostnaður: Rekstrarkostnaður skv. 1. tölul. 31. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, að frátöldum niðurfærslum og fyrningum eigna.
     5.      Stuðningslán: Lán með ábyrgð ríkissjóðs skv. 4. og 5. gr.
     6.      Tekjur: Skattskyldar tekjur skv. B-lið 7. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, að frátöldum hagnaði af sölu rekstrareigna.

4. gr.

Skilyrði.

    Ríkissjóður ábyrgist, eftir því sem nánar greinir í 2. mgr. 5. gr., stuðningslán sem lánastofnun, á grundvelli samnings skv. 13. gr., veitir fyrir 1. júní 2025 til rekstraraðila sem uppfyllir öll eftirtalin skilyrði:
     1.      Rekstraraðili var með fasta starfsstöð í Grindavíkurbæ 10. nóvember 2023.
     2.      Tekjur hans á 60 daga samfelldu tímabili frá 10. nóvember 2023 til 10. október 2024 voru a.m.k. 40% lægri en á sama 60 daga tímabili árin 2022 og/eða 2023 og lækkunina má rekja til áhrifa af jarðhræringum á Reykjanesskaga. Hafi hann hafið starfsemi það seint að ekki er unnt að bera saman tekjur hans á sama 60 daga tímabili bæði ár skulu tekjur hans á 60 daga samfelldu tímabili frá 10. nóvember 2023 bornar saman við meðaltekjur hans á 60 dögum frá því að hann hóf starfsemi til 31. október 2023.
     3.      Tekjur hans á rekstrarárinu 2022 voru að lágmarki 15 millj. kr. og að hámarki 1.500 millj. kr. Hafi hann hafið starfsemi eftir 1. janúar 2023 skal umreikna tekjur þann tíma sem hann starfaði til 31. október 2023 á ársgrundvöll.
     4.      Rekstraraðili hefur ekki greitt út arð eða óumsamda kaupauka, keypt eigin hlutabréf, greitt af víkjandi láni fyrir gjalddaga eða veitt eigendum eða nákomnum aðilum lán eða aðrar greiðslur sem eru ekki nauðsynlegar til að viðhalda rekstri og rekstrarhæfi sínu frá 10. nóvember 2023 og skuldbindur sig til að svo verði ekki þann tíma sem ábyrgðar ríkissjóðs nýtur við. Hugtakið nákominn aðili skal túlkað til samræmis við 3. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991.
     5.      Rekstraraðili er ekki í vanskilum með opinber gjöld, skatta og skattsektir sem komnar voru á eindaga fyrir 10. nóvember 2023 og álagðir skattar og gjöld byggjast ekki á áætlunum vegna vanskila á skattframtölum og skýrslum, þ.m.t. staðgreiðsluskilagreinum og virðisaukaskattsskýrslum, til Skattsins síðastliðin þrjú ár áður en umsókn barst eða síðan hann hóf starfsemi ef það var síðar. Að auki skal hann, eftir því sem við á og á sama tímabili, hafa staðið skil á ársreikningum, sbr. lög um ársreikninga, upplýst um raunverulega eigendur, sbr. lög um skráningu raunverulegra eigenda, og staðið skil á skýrslu um eignarhald á CFC-félagi, sbr. 10. gr. reglugerðar um skattlagningu vegna eignarhalds í lögaðilum á lágskattasvæðum, nr. 1102/2013.
     6.      Rekstraraðili hefur ekki verið tekinn til slita eða bú hans til gjaldþrotaskipta.
    Rekstraraðili getur fengið allt að tvö stuðningslán en samanlögð fjárhæð má þó ekki verða hærri en leiðir af 5. gr.

5. gr.

Fjárhæð og lánstími.

    Stuðningslán getur numið allt að 20% af tekjum rekstraraðila á rekstrarárinu 2022. Hafi rekstraraðili hafið starfsemi eftir 1. janúar 2023 skal umreikna tekjur þann tíma sem hann starfaði til 10. nóvember 2023 á ársgrundvöll. Stuðningslán geta þó ekki orðið hærra en 49 millj. kr.
    Ríkissjóður ábyrgist 90% af fjárhæð stuðningsláns skv. 1. mgr., auk vaxta skv. 11. gr. í sama hlutfalli.
    Lánstími stuðningslána skal að hámarki vera 72 mánuðir.

6. gr.

Umsókn.

    Umsókn um stuðningslán skal beint til lánastofnunar sem samið hefur verið við um veitingu stuðningslána með ábyrgð ríkissjóðs, sbr. 13. gr.
    Ríkisábyrgð skv. 2. mgr. 5. gr. heldur gildi sínu gagnvart lánveitanda þótt í ljós komi að stuðningslán hafi verið veitt án þess að öll skilyrði fyrir ríkisábyrgð hafi verið uppfyllt nema sýnt sé fram á að lánveitandi hafi bersýnilega mátt ætla að umsókn byggðist á ófullnægjandi upplýsingum.
    Þrátt fyrir ákvæði 117. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, er Skattinum heimilt, samkvæmt beiðni lánastofnunar skv. 1. mgr., að miðla tiltækum upplýsingum sem eru nauðsynlegar skv. 1. gr. og 2.–5. tölul. 1. mgr. 4. gr. til að meta hvort umsækjandi um stuðningslán uppfylli skilyrði fyrir lánveitingu og hvert hámark hennar geti orðið. Lánastofnanir sem fá aðgang að slíkum gögnum eru bundnar þagnarskyldu um veittar upplýsingar og er óheimilt að nýta þær í öðrum tilgangi. Rekstraraðili skal staðfesta við umsókn að honum sé kunnugt um að Skatturinn kunni að veita upplýsingar á þessum grundvelli og um úrvinnslu þeirra.

7. gr.

Afgreiðsla.

    Lánastofnun afgreiðir stuðningslán með ríkisábyrgð til rekstraraðila sem fullnægir skilyrðum 4. gr. og ákvarðar fjárhæð og lánstíma þess í samræmi við 5. gr.
    Ákvæði laga þessara standa ekki í vegi að lánastofnun veiti rekstraraðila hærra lán en mælt er fyrir um í 5. gr., en lán umfram hámarksfjárhæð skv. 5. gr. verður án ríkisábyrgðar.

8. gr.

Rafræn skuldabréf.

    Rafrænt skuldabréf vegna stuðningsláns sem undirritað hefur verið með fullgildri rafrænni undirskrift skal teljast uppfylla áskilnað í öðrum lögum um frumrit skuldabréfs. Þá skal rafræn móttaka slíks skuldabréfs teljast uppfylla áskilnað í öðrum lögum um framlagningu frumrits skuldabréfs.

9. gr.

Nýting.

    Stuðningslán má aðeins nýta til að standa undir rekstrarkostnaði lánþega eða til að byggja upp starfsemi utan Grindavíkurbæjar telji rekstraraðili að ekki séu forsendur fyrir áframhaldandi rekstri á svæðinu vegna jarðhræringa. Óheimilt er að nýta stuðningslán til að borga af eða endurfjármagna önnur lán.

10. gr.

Lánskjör.

    Stuðningslán er óverðtryggt og ber vexti sem eru jafnháir vöxtum af sjö daga bundnum innlánum lánastofnana hjá Seðlabanka Íslands hverju sinni.
    Lánastofnun er heimilt að innheimta þóknun sem skal dregin frá upphæð stuðningsláns við útborgun þess til að standa undir kostnaði við umsýslu stuðningslána.

11. gr.

Endurgreiðsla.

    Stuðningslán, að meðtöldum vöxtum, skal að jafnaði endurgreitt með jöfnum greiðslum síðustu 36 mánuði lánstímans, með fyrirvara um vanefndaúrræði lánastofnunar. Lántaka er heimilt að greiða upp eða inn á stuðningslán án uppgreiðsluþóknunar hvenær sem er á lánstíma. Um höfuðstólsfærslu vaxta fer skv. 1. mgr. 12. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001.


12. gr.

Ofgreiðsla.

    Hafi rekstraraðili fengið stuðningslán umfram það sem hann átti rétt á ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var með áföllnum vöxtum skv. 1. mgr. 10. gr.

13. gr.

Samningar við lánastofnanir.

    Ráðherra er heimilt að semja við lánastofnanir um framkvæmd þeirra á stuðningslánum og samskipti þeirra vegna umsýslu lánanna, þar á meðal um uppgjör ábyrgðar ríkissjóðs á lánunum og upplýsingagjöf lánastofnana til viðkomandi aðila. Í samningi við lánastofnanir skal eftir atvikum fjallað þóknanir lánastofnana, sbr. 2. mgr. 10. gr.
    Ráðherra er heimilt að fela öðrum ríkisaðila eða semja við sérhæfða aðila á almennum markaði um að annast umsýslu vegna ábyrgðar ríkissjóðs á stuðningslánum, þar á meðal uppgjör ábyrgðar.

14. gr.

Reglugerðarheimild.

    Ráðherra getur kveðið nánar á um framkvæmd laga þessara í reglugerð.

15. gr.

Lagaskil.

    Stjórnsýslulög, nr. 37/1993, upplýsingalög, nr. 140/2012, og lög um umboðsmann Alþingis, nr. 85/1997, eiga ekki við um ákvarðanir um veitingu stuðningslána á grundvelli laga þessara.

16. gr.

Gildistaka.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frumvarp þetta er lagt fram í kjölfar jarðhræringa á Reykjanesskaga, sem hafa haft veruleg áhrif á atvinnulíf í Grindavíkurbæ. Jarðhræringarnar hafa skapað fjárhagslega erfiðleika fyrir fjölmarga rekstraraðila í bænum. Með frumvarpinu verður þeim boðin aðstoð í formi stuðningslána til að viðhalda atvinnustarfsemi og draga úr neikvæðum áhrifum á svæðið. Þá er rekstraraðilum einnig gefinn kostur á að nýta lánaúrræðið til að byggja upp starfsemi annars staðar á landinu telji þeir að takmarkaðar rekstrarforsendur séu fyrir starfseminni vegna áhrifa jarðhræringanna á Reykjanesinu. Sambærileg lög hafa áður verið sett í kjölfar náttúruhamfara í öðrum landsvæðum og var frumvarpið undirbúið með hliðsjón af þeirri reynslu. Það byggist einnig á viðtölum við rekstraraðila og framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur sem hafa komið með tillögur að úrræðum.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Jarðhræringar á svæðinu hafa leitt til þess að fjölmörg fyrirtæki í Grindavíkurbæ hafa orðið fyrir verulegum fjárhagserfiðleikum þar sem starfsemi hefur annaðhvort stöðvast eða dregist saman umtalsvert. Án þessara aðgerða er líklegt að mörg fyrirtæki þurfi að hætta starfsemi með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á atvinnulíf og samfélagið í heild. Markmið lagasetningarinnar er að veita tímabundna fjárhagslega aðstoð í formi stuðningslána til rekstraraðila til að tryggja áframhaldandi starfsemi og uppbyggingu á svæðinu, sem er nauðsynlegt fyrir efnahag og atvinnulíf í bænum. Aðgerðir sem ekki fela í sér lánveitingar eða aðra fjárhagslega aðstoð myndu líklega ekki nægja til að koma til móts við þessa bráðu þörf.

3. Meginefni frumvarpsins.
    Með frumvarpinu er lagt til að ríkissjóður ábyrgist 90% stuðningslána sem fjármálastofnanir veiti rekstraraðilum sem stundað hafa atvinnustarfsemi í Grindavíkurbæ á tilteknu tímabili og orðið fyrir verulegu tekjutapi vegna áhrifa jarðhræringa á Reykjanesskaga. Lánið má rekstraraðili einungis nýta til að standa undir rekstrarkostnaði eða til að byggja upp starfsemi á nýjum stað. Ráðherra mun gera samning við lánastofnanir um lánveitinguna og hvernig staðið verður að greiðslu ábyrgðar ríkissjóðs ef til kemur. Úrræðið á sér samsvörun í stuðningslánum sem voru veitt rekstraraðilum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Umfang þessa úrræðis er hins vegar líklegt til að vera talsvert minna og því er ráðgert að öll umsýsla og yfirbygging vegna þess verði einfaldari.
    Í frumvarpinu er einnig fjallað um þau skilyrði sem rekstraraðilar þurfa að uppfylla til að fá stuðningslán með ríkisábyrgð. Þau eru eftirfarandi:
     *      Rekstraraðili hafi verið með fasta starfsstöð í Grindavíkurbæ 10. nóvember 2023.
     *      Tekjur á rekstrarárinu 2022 hafi verið að lágmarki 15 millj. kr. og að hámarki 1.500 millj. kr. og að þær tekjur hafi dregist saman um 40% á einhverju 60 daga samfelldu tímabili eftir 10. nóvember 2023 til 10. október 2024.
     *      Rekstraraðili hafi ekki greitt út arð eða kaupauka, keypt eigin hlutabréf eða gert aðrar sambærilegar ráðstafanir frá 10. nóvember 2023 út þann tíma sem ábyrgðar ríkissjóðs nýtur við.
     *      Rekstraraðili sé ekki í vanskilum með opinber gjöld eða skatta sem komin voru á eindaga fyrir 10. nóvember 2023.
    Í frumvarpinu er einnig fjallað um fjárhæð stuðningsláns sem lagt er til að geti numið allt að fimmtungi af tekjum rekstraraðila á rekstrarárinu 2022. Fjárhæð lánsins getur þó að hámarki numið 49 millj. kr., sem tekur mið af hámarksfjárhæð samkvæmt reglum um minniháttaraðstoð (e. de minimis aid), sem er hluti af XV. viðauka EES-samningsins. Stuðningur sem uppfyllir skilyrði þeirra reglna telst ekki til ríkisaðstoðar í skilningi 61. gr. EES-samningsins. Vextir lánanna skuli jafnháir vöxtum af sjö daga bundnum innlánum hjá Seðlabanka Íslands hverju sinni og lánið skal endurgreiða með jöfnum greiðslum síðustu 36 mánuði lánstímans, en lánstíminn er að hámarki 72 mánuðir.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið er meginreglan sú að bannað er að veita ríkisaðstoð sem raskar eða er til þess fallin að raska samkeppni, svo sem með því að ívilna ákveðnum fyrirtækjum eða framleiðslu ákveðinnar vöru, að því leyti sem aðstoðin hefur áhrif á viðskipti milli samningsaðila. Sú aðstoð sem lögð er til í frumvarpinu fellur undir reglur um minniháttaraðstoð og felur því ekki í sér ríkisaðstoð í skilningi samningsins. Samkvæmt reglum um minniháttaraðstoð er heimilt að veita fyrirtæki aðstoð fyrir allt að 300 þús. evrur yfir þriggja ára tímabil hverju sinni. Samkvæmt frumvarpi þessu nemur hámarksfjárhæð stuðningsláns 49 millj. kr. og er 90% ríkisábyrgð á þeirri fjárhæð sem nemur um 44 millj. kr. miðað við almennt gengi evru þann 21. október 2024.
    Frumvarpið þykir að öðru leyti ekki fela í sér álitaefni sem kalli á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar.

5. Samráð.
    Frumvarpið snertir fyrst og fremst rekstraraðila í Grindavíkurbæ og sveitarfélagið sjálft. Hinn 17. maí 2024 voru kynntar tillögur um frekari stuðning fyrir heimili og fyrirtæki í Grindavíkurbæ þar sem m.a. kom fram að til stæði að leggja fram frumvarp um stuðningslán til rekstraraðila með starfsstöð í Grindavíkurbæ. Í ljósi þess að ríkisstjórnin hafði tilkynnt áformin opinberlega þótti ekki þörf á að viðhafa sérstakt samráð í samráðsgátt um áformin sem slík.
    Við undirbúning frumvarpsins var haft samráð við bæjaryfirvöld í Grindavíkurbæ, Samband íslenskra sveitarfélaga og framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur. Einnig var haft samráð við Skattinn.
    Drög að frumvarpi voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is 16. október 2024 (nr. S-215/2024) þar sem veittur var sex daga frestur til að skila inn umsögnum. Til stóð að viðhafa ítarlegra samráð um efni frumvarpsins en ekki gafst tími til þess í kjölfar þess að boðað var til kosninga 30. nóvember nk.
    Ein umsögn barst í samráðsgátt frá einstaklingi sem gaf ekki tilefni til breytinga á frumvarpinu.

6. Mat á áhrifum.
    Samþykkt frumvarpsins mun hafa jákvæð áhrif á atvinnulíf og samfélagið í Grindavíkurbæ þar sem það veitir rekstraraðilum í bænum svigrúm til að halda starfsemi gangandi, hvort sem er í Grindavíkurbæ eða á nýjum stað. Það mun stuðla að efnahagslegri endurreisn svæðisins. Fjárhagslegt mat bendir til þess að samfélagslegur ávinningur af lánveitingunum muni vera meiri en hugsanlegur kostnaður ríkisins vegna ríkisábyrgðar. Skv. 9. gr. verður heimilt að nýta stuðningslán til að byggja upp starfsemi utan Grindavíkurbæjar. Þannig er stutt við viðnámsþrótt fyrirtækja sem störfuðu í Grindavíkurbæ óháð því hvort rekstrarforsendur fyrir starfsemi í bænum séu enn til staðar. Þá er einnig komið í veg fyrir að stuðningslánin hindri aðlögun fólks og fyrirtækja að breyttum aðstæðum. Á hinn bóginn kunna lánin að veita fyrirtækjum sem þau nýta samkeppnisforskot yfir önnur fyrirtæki sem hafa ekki möguleika á fjármögnun á eins hagfelldum kjörum. Fjárhæð lánanna er hins vegar ekki slík að talið sé að þeim fylgi óeðlilegt inngrip í samkeppnismarkað, en eins og kemur fram í 4. kafla um samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar er um að ræða minni háttar aðstoðar samkvæmt EES-samningnum. Einnig hefur verið metið að frumvarpið hafi jákvæð áhrif á jafnrétti þar sem það nýtist jafnt stórum sem smáum rekstraraðilum óháð starfsgrein. Hins vegar hefur ekki verið gerð sérstök greining á kynjahlutföllum þeirra sem stunda eða stunduðu atvinnurekstur í Grindavíkurbæ og því liggja ekki fyrir áhrif þess að því leyti.

6.1. Áhrif á ríkissjóð.
    Í frumvarpinu er lagt til að ríkissjóður ábyrgist 90% af fjárhæð stuðningslána frá lánastofnunum til rekstraraðila. Meðal skilyrða fyrir stuðningslánum eru að rekstrartekjur lántaka á rekstrarárinu 2022 hafi numið á bilinu frá 15 millj. kr. að 1.500 millj. kr. og og tekjur hans á 60 daga samfelldu tímabili frá 10. nóvember 2023 til 10. október 2024 hafi verið a.m.k. 40% lægri en á sama 60 daga tímabili árin 2022 og/eða 2023 auk þess sem rekstraraðilinn skal hafa verið með starfsstöð í Grindavíkurbæ fyrir 10. nóvember 2023. Lánsfjárhæð getur verið allt að 20% af rekstrartekjum fyrirtækja á árinu 2022, þó að hámarki 50 millj. kr.
    Upplýsingar sem fjármála- og efnahagsráðuneytið aflaði frá Skattinum benda til þess að 73 fyrirtæki uppfylli bæði skilyrði um rekstrartekjur frá 15 millj. kr. að 1.500 millj. kr. og um 40% tekjufall á 60 daga samfelldu tímabili frá 10. nóvember 2023 til 10. október 2024 miðað við sama 60 daga tímabil árin 2022 og/eða 2023. Af þeim fyrirtækjum voru 12 fyrirtæki sem á samfelldu 60 daga tímabili miðað við árið áður voru með 100% tekjufall. Heildarfjárhæð ríkisábyrgðar á stuðningslánum getur því að hámarki numið 1,2 milljörðum kr. Þá er gengið út frá því að öll fyrirtækin nýti úrræðið að fullu en í reynd er óvíst um ásókn fyrirtækja í úrræðið.
    Áhrifamatið byggist á upplýsingum um veltu fyrirtækja í Grindavíkurbæ fyrir tímabilið nóvember 2022 til júní 2024. Viðmiðunartímabil tekjufalls í frumvarpinu nær til október 2024 og því kann kostnaðarmatið að vera vanmetið þar sem fleiri fyrirtæki gætu uppfyllt skilyrði frumvarpsins í lok tímabilsins en áhrifamatið miðar við. Á móti kemur að ekki er byggt á upplýsingum er varða 4.–6. tölul. 4. gr., en mögulega uppfylla einhver fyrirtæki ekki þau skilyrði.
    Í heimsfaraldri kórónuveiru voru áþekk stuðningslán í boði fyrir rekstraraðila á landinu öllu. Þá var metið að um 14.000 fyrirtæki uppfylltu skilyrði stuðningslánanna um tekjur og kostnað og að teknu tilliti til heildarfjölda sem stóðust skilyrði um tekjufall og sóst gætu eftir slíkum lánum að stuðningslánin gætu samtals numið um 28 milljörðum kr. Veitt voru stuðningslán fyrir 10,1 milljarð kr. til 997 lántaka. Eftirspurn fyrirtækja eftir úrræðinu var því ekki eins mikil og gert var ráð fyrir í fyrstu. Þá hefur ríkisábyrgð vegna þeirra lána ekki virkjast til þessa í nema innan við 10% tilvika. Jafnvel þó að vanskilahlutfallið yrði tvöfalt á við það sem hefur orðið af stuðningslánum vegna kórónuveiru verður kostnaður ríkissjóðs vegna ábyrgðarinnar nokkuð lægri en 100 millj. kr.
    Við mat á kostnaði úrræðisins er vert að athuga að enginn kostnaður leggst á ríkissjóð nema að fyrirtæki standi ekki í skilum á stuðningslánum. Þrátt fyrir að vanskilaáhætta af lánum til fyrirtækja sem hyggjast starfa áfram í Grindavíkurbæ sé meiri en ella sökum óvissu um öryggi í sveitarfélaginu og umtalsverðri fólksfækkun þá er ólíklegt að ríkissjóður þurfi að greiða út ríkisábyrgð vegna allra lánanna. Þessi áhætta var lítil sem engin þegar stuðningslán voru veitt í heimsfaraldrinum en þá þurftu fyrirtækin ekki að færa sig um set vegna faraldursins og í flestum tilfellum var áfram rekstrargrundvöllur fyrir fyrirtækin á þeim svæðum sem þau þjónustuðu.

6.2. Áhrif á lántakendur.
    Meðallán mun nema tæpum 20 millj. kr., að því gefnu að 61 fyrirtæki hafi ekki orðið fyrir algjöru tekjufalli og uppfylli því skilyrði frumvarpsins um stuðningslán og nýti úrræðið að fullu. Hámarksfjárhæð lána er breytileg eftir fyrirtækjum og tekur mið af veltu þeirra og tekjufalli líkt og forsendur frumvarpsins. Dreifing þeirra er sýnd á mynd 1.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Mynd 2 sýnir kostnað ríkisábyrgðar stuðningslána miðað við mismunandi nýtingarhlutfall. Bláa línan sýnir kostnað stuðningslána til fyrirtækja með 40–99% tekjufall en rauða línan tekur einnig til fyrirtækja sem voru með 100% tekjufall.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Sem fyrr ríkir mikil óvissa um hve lengi jarðhræringar og eldgos munu standa yfir í og við Grindavíkurbæ og hve mikil og langvarandi áhrif á byggð og atvinnustarfsemi verða þegar upp er staðið. Sú óvissa eykur útlánaáhættu á svæðinu og getur dregið úr útlánavilja lánastofnana til fyrirtækja í Grindavíkurbæ. Stuðningslán með ríkisábyrgð stuðla að markmiðum stjórnvalda um að styðja við og viðhalda atvinnustarfsemi í Grindavíkurbæ með því að tryggja að fyrirtæki hafi áfram aðgengi að lánsfé. Fjárhæðartakmörk lánanna tryggja að þau beinast einkum að smærri fyrirtækjum sem í einhverjum tilfellum eiga sérstaklega erfitt um vik með fyrirgreiðslu hjá lánastofnunum, svo sem vegna skorts á veðum. Engu að síður er freistnivandi óhjákvæmilegur og vel þekktur fylgifiskur lána með ríkisábyrgð. Hann felst í því að fyrirtæki sem njóta ríkisábyrgðar hafa tilhneigingu og hvata til að taka meiri áhættu í rekstri en fyrirtæki sem hafa ekki aðgang að ríkisábyrgð þar sem mögulegt tap er að hluta borið af skattgreiðendum í gegnum ríkissjóð.

Um einstakar greinar frumvarpsins.

Um 1. gr.

    Aðeins einstaklingar og lögaðilar sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi í Grindavíkurbæ sem þeir hófu fyrir 10. nóvember 2023 og bera ótakmarkaða skattskyldu hér á landi geta fengið stuðningslán samkvæmt ákvæðum frumvarpsins. Miðað er við 10. nóvember 2023 því að þann dag var öllum íbúum gert skylt að rýma Grindavíkurbæ. Í greininni kemur fram að gildissviðið takmarkist við aðila sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi í Grindavíkurbæ og tekur það mið af skilyrðum fyrir stuðningsláni um að rekstraraðili þurfi að vera í skilum með opinber gjöld og að hann hafi ekki verið tekinn til slita eða bú hans til gjaldþrotaskipta, sbr. 5. og 6. tölul. 1. mgr. 4. gr. Liggi starfsemi rekstraraðila niður tímabundið vegna ákvarðana almannavarna um lokun inn í bæinn, en rekstraraðili teljist að öðru leyti rekstrarhæfur, yrði litið svo á að hann uppfylli skilyrði um að stunda virkan atvinnurekstur.
    Atvinnurekstur og sjálfstæð starfsemi er skilgreind í 1. tölul. 3. gr. Aðili telst hafa hafið atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi í skilningi frumvarpsins þegar hann hefur verið skráður á launagreiðendaskrá og, þegar það á við, virðisaukaskattsskrá. Ótakmörkuð skattskylda skv. 1. eða 2. gr. laga um tekjuskatt felur að meginreglu í sér skyldu til að greiða tekjuskatt hér á landi af öllum skattskyldum tekjum einstaklings eða lögaðila.
    Frumvarpið nær ekki til opinberra aðila, svo sem stofnana, byggðasamlaga og fyrirtækja í eigu ríkis eða sveitarfélaga. Fyrirtæki telst í eigu ríkis eða sveitarfélaga í skilningi frumvarpsins ef ríki og sveitarfélög eiga samanlagt meira en helming eignarhluta í því. Að öðru leyti vísast til skilgreiningar á hugtakinu opinber aðili í lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, þar sem fram kemur að viðkomandi sé sá aðili sem fer með ríkis- eða sveitarstjórnarvald og þær stofnanir, sjóði og fyrirtæki sem eru að hálfu eða í meiri hluta í eigu ríkis eða sveitarfélaga.
    Í 3. tölul. 3. gr. er skilgreining á rekstraraðilum sem falla undir gildissvið frumvarpsins.

Um 2. gr.

    Markmið frumvarpsins er að styðja við minni rekstraraðila innan marka Grindavíkurbæjar sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli vegna jarðhræringa á sunnanverðu Reykjanesi með veitingu stuðningslána með ríkisábyrgð. Með þessu er ætlunin að aðstoða rekstrarhæf fyrirtæki í Grindavíkurbæ við að viðhalda starfsemi á óvissutímum líkt og gert var með lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020.

Um 3. gr.

     Um 1. tölul. Með atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi er átt við starfsemi aðila sem greiða laun skv. 1. eða 2. tölul. 5. gr. um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987. Undir það fellur bæði endurgjald fyrir vinnu starfsfólks og reiknað endurgjald vegna vinnu við eiginn rekstur. Það er jafnframt hluti af skilgreiningunni að launagreiðandi hafi verið skráður á launagreiðendaskrá. Skv. 19. gr., sbr. 5. og 7. gr., laga um staðgreiðslu opinberra gjalda ber hverjum þeim sem greiðir laun í skilningi laganna að tilkynna sig sem launagreiðanda. Að lokum er það einnig skilyrði að viðkomandi sé skráður á virðisaukaskattsskrá þegar það á við. Skv. 5. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, ber hverjum þeim sem er skattskyldur samkvæmt þeim lögum að tilkynna ríkisskattstjóra um atvinnurekstur sinn eða starfsemi.
     Um 2. tölul. Með fastri starfsstöð er átt við fasta atvinnustöð þar sem starfsemi fyrirtækis fer að nokkru eða öllu leyti fram. Hugtakið tekur einkum til aðseturs framkvæmdastjórnar, útibús, skrifstofu, verksmiðju, verkstæðis og annars staðar þar sem náttúruauðlindir eru nýttar, sbr. ákvæði reglugerðar nr. 1165/2016 um fasta starfsstöð. Í reglugerðinni er einnig að finna skýringar á því hvað telst ekki vera föst starfsstöð og vísast til hennar til nánari skýringar á hugtakinu.
     Um 3. tölul. Rekstraraðilar samkvæmt frumvarpinu eru einstaklingar og lögaðilar sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi í Grindavíkurbæ, hófu starfsemina fyrir 10. nóvember 2023 og bera ótakmarkaða skattskyldu hér á landi, sbr. 1. gr.
     Um 4. tölul. Rekstrarkostnaður samkvæmt frumvarpinu er skv. 1. tölul. 31. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003. Í því ákvæði kemur fram að frá tekjum lögaðila og þeim tekjum manna sem stafa af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi eða eru tengdar slíkum rekstri megi draga rekstrarkostnað, þ.e. þau gjöld sem eiga á árinu að ganga til að afla teknanna, tryggja þær og halda þeim við. Niðurfærslur og fyrningar eigna eru þó undanskildar því að rekstraraðili þarf ekki að inna af hendi fé til að standa undir þeim.
     Um 5. tölul. Stuðningslán samkvæmt frumvarpinu er lán til rekstraraðila sem ríkissjóður ábyrgist á grundvelli 5. gr., sbr. 4. gr., verði frumvarpið að lögum.
     Um 6. tölul. Tekjur samkvæmt frumvarpinu eru tekjur sem eru skattskyldar skv. B-lið 7. gr. laga um tekjuskatt, þ.e. allar tekjur af atvinnurekstri og sjálfstæðri starfsemi. Tekjur vegna sölu varanlegra rekstrarfjármuna eru þó undanskildar sérstaklega. Þær geta verið verulegar en eru almennt óreglulegar og gefa ekki rétta mynd af þeim tekjum sem rekstraraðili hefur alla jafna. Miða skal við almennar reglur laga um tekjuskatt við ákvörðun á því hvenær tekjur hafi orðið til, sbr. einkum 2. mgr. 59. gr. laganna þar sem fram kemur að tekjur skuli að jafnaði telja til tekna þegar þær verða til, þ.e. þegar myndast hefur krafa þeirra vegna á hendur einhverjum, nema um óvissar tekjur sé að ræða.

Um 4. gr.

    Lagt er til að lánastofnanir sem gert hafa samning við ráðherra, eða aðila sem ráðherra hefur falið að annast umsýsluna, geti veitt rekstraraðila sem uppfyllir tilgreind skilyrði stuðningslán með ábyrgð ríkissjóðs. Lánastofnanir eru viðskiptabankar, sparisjóðir og lánafyrirtæki, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 1. gr. a og 1.–3. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Ábyrgð ríkissjóðs er einföld ábyrgð. Ábyrgðin verður því ekki virk nema hefðbundnar innheimtutilraunir lánastofnunar hafi reynst árangurslausar og fullreynt að ekki fáist greiðsla frá lántaka.
    Þau skilyrði sem rekstraraðilar þurfa að uppfylla til að geta fengið stuðningslán eru nánar útfærð í greininni. Er þar horft til þess að heildstætt afmarki skilyrðin þann hóp sem ætlunin er að styðja við.
     Um 1. tölul. Markmið stuðningsúrræðisins er að hjálpa rekstrarhæfum fyrirtækjum í Grindavíkurbæ að viðhalda starfsemi á óvissutímum og er því gerð krafa um að rekstraraðili hafi verið með fasta starfsstöð innan marka Grindavíkurbæjar 10. nóvember 2023. Er þá jafnframt miðað við mörk sveitarfélagsins eins og þau hafa verið skilgreind. Þá kemur einnig fram að markmið frumvarpsins sé að aðstoða rekstraraðila í Grindavíkurbæ að byggja upp starfsemi annars staðar á landinu kjósi þeir það fremur.
     Um 2. tölul. Stuðningslánum er ætlað að styðja við rekstraraðila sem hafa orðið fyrir verulegum skakkaföllum vegna jarðhræringa á Reykjanesi. Af þeim sökum er lagt til að það verði gert að skilyrði fyrir stuðningsláni að rekstraraðili hafi orðið fyrir a.m.k. 40% tekjufalli á 60 daga samfelldu tímabili frá 10. nóvember 2023 til 10. október 2024, eða sem nemur 10 mánaða tímabili eftir Grindavíkurbær var fyrst rýmdur, samanborið við sama tímabil á árunum 2022 og/eða 2023. Með því að miða við 60 daga tímabil er reynt að líta til þess tímaramma þar sem mestra áhrifa gætir og draga úr áhrifum tímabundinna sveiflna. Valkvætt er við hvaða tímabil innan þessa ramma er miðað en miða verður við sömu tímabil frá fyrra ári. Ef t.d. væri miðað við tekjur 12. mars til 10. maí 2024 bæri að bera þær saman við tekjur 12. mars til 10. maí 2023. Ef rekstraraðili hóf starfsemi það seint á árinu að ekki er unnt að bera saman sama 60 daga tímabil skulu tekjur hans á 60 daga samfelldu tímabili 2023 þó bornar saman við meðaltekjur hans á 60 dögum frá því að hann hóf starfsemi til loka október 2023. Sem dæmi má nefna rekstraraðila sem hóf ekki starfsemi fyrr en 1. júlí 2023 og hafði því starfað í 123 daga í lok október. Hafi hann haft 10 millj. kr. tekjur frá upphafi voru meðaltekjur hans á 60 daga tímabili þá 4.878.049 kr. (10 millj. kr. * 60 dagar / 123 dagar). Tekjur hans á því 60 daga tímabili sem valið er eftir 10. nóvember til 10. maí mega því ekki hafa verið meiri en 2.926.829 kr. (4. 878.049 kr. * 60%).
     Um 3. tölul. Lágmarksviðmiði töluliðarins er ætlað að tryggja að um fullburða atvinnustarfsemi hafi verið að ræða en ekki aðeins hliðarstarf eða áhugamál. Skattskyldar tekjur 2022 þurfa að hafa verið a.m.k. 15 millj. kr., eða 1.250 þús. kr. á mánuði að meðaltali. Við ákvörðun um fjárhæðina var litið til þeirra viðmiða sem voru lögð til grundvallar þegar sambærilegu úrræði var komið á vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Hámarksviðmiðinu er þá ætlað að tryggja að stuðningslánin nýtist einkum minni rekstraraðilum til samræmis við markmið frumvarpsins. Hafi rekstraraðili hafið starfsemi eftir 1. janúar 2023 skal umreikna tekjur þann tíma sem hann starfaði til loka október 2023 á ársgrundvöll. Hafi hann t.d. starfað frá 12. febrúar 2023 til 10 nóvember 2023 ætti að margfalda skattskyldar tekjur á tímabilinu með ríflega 1,3 (365 dagar / 272 dagar) til að kanna hvort skilyrðum töluliðarins sé fullnægt.
     Um 4. tölul. Stuðningslánum er ætlað að stuðla að því að rekstraraðilar geti viðhaldið starfsemi sinni á óvissutímum. Talið er óeðlilegt að eigendur greiði sér samhliða út arð eða að ráðist sé í aðrar svipaðar ráðstafanir. Ábyrgð ríkissjóðs á stuðningslánum fellur ekki niður þótt lántaki brjóti gegn skilyrðinu á lánstíma en um slík brot gilda ákvæði almennra hegningarlaga.
     Um 5. tölul. Ekki er talið eðlilegt að ríkissjóður veiti rekstraraðilum sem voru í vanskilum með opinber gjöld áður en áhrifa jarðhræringa fór að gæta hér á landi sérstaka fyrirgreiðslu. Því er það gert að skilyrði fyrir stuðningslánum að rekstraraðili sé ekki í vanskilum með opinber gjöld sem voru komin á eindaga fyrir 10. nóvember 2023.
     Um 6. tölul. Frumvarpinu er ætlað að styðja við starfandi rekstraraðila og viðhalda þannig atvinnustigi í Grindavíkurbæ. Því er lagt til að rekstraraðili geti ekki fengið stuðningslán ef bú hans hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta eða rekstraraðilinn hefur verið tekinn til slita. Um gjaldþrotaskipti gilda lög um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991. Upphaf gjaldþrotaskipta miðast almennt við úrskurð héraðsdómara um gjaldþrotaskipti. Um slit lögaðila fer samkvæmt þeim lögum sem gilda um starfsemi og félagaform viðkomandi rekstraraðila. Um slit einkahlutafélaga fer t.d. samkvæmt lögum um einkahlutafélög, nr. 138/1994.
    Í 2. mgr. er lagt til að rekstraraðili geti að hámarki gengið tvö stuðningslán. Nokkur umsýsla fylgir því að veita og halda utan um hvert stuðningslán og því er ekki ætlunin að unnt verði að nýta lánin sem ígildi yfirdráttar eða lánalínu. Talið er unnt að girða fyrir það, en tryggja um leið að úrræðið verði áfram sveigjanlegt með því að heimila hverjum rekstraraðila að fá allt að tvö stuðningslán þannig að rekstraraðilum verði ekki ýtt út í að sækja strax um hámarksfjárhæð stuðningsláns. Samanlögð fjárhæð stuðningslána til hvers rekstraraðila má þó ekki verða hærri en 50 millj. kr., sbr. 5. gr. frumvarpsins.

Um 5. gr.

    Í 1. mgr. kemur fram sú meginregla að stuðningslán geti numið allt að 20% af tekjum rekstraraðila á rekstrarárinu 2022. Er í þessu sambandi horft til þess að fastur eða tregbreytanlegur kostnaður smærri fyrirtækja er að meðalaltali um 20–25% af tekjum á ári. Erfitt er að spá fyrir um það hver þróunin jarðhræringa á Reykjanesinu verður. Í ljósi þeirrar miklu óvissu er horft til þess að veruleg áhrif vegna jarðhræringa gætu varað í talsverðan tíma til viðbótar. Stuðningslánið ætti því að geta nýst til að greina fastan kostnað rekstraraðila í um 12 mánuði. Sem dæmi má nefna að hafi tekjur rekstraraðila 2023 verið 150 millj. kr. getur stuðningslán til hans hæst orðið 15 millj. kr. (150 millj. kr. * 10%). Stuðningslán getur ekki verið hærra en 50 millj. kr. Hafi rekstraraðili hafið starfsemi eftir 1. janúar 2023 skal umreikna tekjur þann tíma sem hann starfaði til 10. nóvember 2023 á ársgrundvöll.
    Í 2. mgr. kemur fram að ríkissjóður ábyrgist gagnvart lánastofnun 90% af fjárhæð hvers stuðningsláns og vexti af því í sama hlutfalli.
    Í 3. mgr. kemur fram að lánstími stuðningslána sé að hámarki 72 mánuðir eða sex ár. Er með því tekið tillit til þeirrar óvissu sem ríkir um þróun jarðhræringa á Reykjanesi.

Um 6. gr.

    Í 1. mgr. kemur fram að umsókn rekstraraðila skuli beint til lánastofnunar sem ráðuneyti semur við vegna veitingar stuðningslána. Ákveðið hagræði er talið felast í því að lánveitendur nýti sín eigin umsóknarkerfi til að taka við lánum af þessu tagi í stað þess að útbúið verði sérstakt miðlægt umsóknarkerfi á vegum ríkisins fyrir umsóknirnar, sérstaklega að því virtu að fjöldi umsókna verður ólíklega slíkur að umsýslan hafi teljandi áhrif á lánastofnanir.
    Í 2. mgr. kemur fram að ríkisábyrgð á veittu láni haldi gildi sínu gagnvart lánveitenda þótt í ljós komi síðar að öll skilyrði fyrir stuðningsláni hafi ekki verið fyrir hendi, enda verði ekki sýnt fram á að lánveitandi hafi bersýnilega mátt ætla að umsókn byggðist á ófullnægjandi upplýsingum. Áhætta af óréttmætum lánsumsóknum mun samkvæmt þessu liggja að mestu hjá ríkissjóði til að tryggja skilvirka framkvæmd úrræðisins og takmarka flækjustig við ákvörðun um lánveitingu.
    Í 3. mgr. er mælt fyrir um skyldu Skattsins til að miðla tiltækum upplýsingum sem eru nauðsynlegar til að leggja mat á hvort umsækjandi um stuðningslán uppfylli skilyrði fyrir lánveitingu og hvert hámark hennar geti orðið. Í ljósi þess að með ákvæðinu er gerð undanþága frá ákvæðum laga um tekjuskatt sem girða fyrir miðlun upplýsinga frá Skattinum er talin ástæða til að kveða sérstaklega á um að aðilar sem fái aðgang að gögnum frá Skattinum séu bundnir þagnarskyldu um veittar upplýsingar og þeim sé óheimilt að nýta þær í öðrum tilgangi. Kemur þessi þagnarskylda til viðbótar við þagnarskyldu sem hvílir á starfsmönnum lánastofnana samkvæmt ákvæðum laga um fjármálafyrirtæki.

Um 7. gr.

    Lánastofnanir sem samið verður við á grundvelli ákvæði frumvarpsins munu annast yfirferð lánsumsókna og greiðslu stuðningslána til þeirra sem eiga rétt á þeim. Þær ákvarða einnig fjárhæðir stuðningslána innan þess ramma sem mælt er fyrir um í 5. gr. Gert er ráð fyrir að framkvæmd lánanna verði að öðru leyti nánar útlistuð í samningi ráðherra við lánastofnanir, sbr. 13. gr.

Um 8. gr.

    Miðað er við að mögulegt verði að gefa út rafræn skuldabréf vegna veittra stuðningslána til rekstraraðila. Með ákvæðinu er hnykkt á því að skuldabréf sem undirrituð hafa verið með fullgildri rafrænni undirritun teljast uppfylla áskilnað í öðrum lögum um frumrit skuldabréfs. Þá telst rafræn móttaka slíks rafræns skuldabréfs einnig uppfylla áskilnað í öðrum lögum um framlagningu frumrits skuldabréfs. Helstu lagaákvæði þar sem krafist er frumrits skuldabréfs er að finna í 2. mgr. 10. gr. laga um aðför, nr. 90/1989, og 3. mgr. 11. gr. laga um nauðungarsölu, nr. 90/1991. Með því að kveða á um að rafrænt skuldabréf vegna stuðningsláns sem undirritað hefur verið með fullgildri rafrænni undirskrift teljist uppfylla áskilnað í öðrum lögum um frumrit skuldabréfs og framlagningu þess, og að ákvæði 2. málsl. 1. mgr. 37. gr. stjórnsýslulaga eigi ekki við, á að vera ljóst að sýslumenn, og aðrir þeir sem lögum samkvæmt skulu krefjast frumrits skuldabréfs, eigi að samþykkja rafrænt skuldabréf vegna stuðningslána sem hefur verið undirritað með fullgildri rafrænni undirskrift sem frumrit.

Um 9. gr.

    Stuðningslánum samkvæmt frumvarpinu er ætlað að aðstoða rekstraraðila við að standa undir rekstrarkostnaði til skamms tíma eða til að koma starfsemi upp á nýjum stað. Því er lagt til að nýting stuðningslána verði takmörkuð. Stuðningslánum er ekki ætlað að endurfjármagna önnur lán í starfsemi rekstraraðila.

Um 10. gr.

    Í 1. mgr. er fjallað um lánskjör stuðningslána. Ljóst er að stuðningslánum fylgir takmörkuð útlánaáhætta fyrir lánastofnanir þar sem ríkissjóður ábyrgist þau nánast að fullu. Því er gert ráð fyrir að lánin beri jafnháa vexti og lánastofnanir fá af innlánum hjá Seðlabanka Íslands og séu óverðtryggð. Miðað er við vexti á sjö daga bundnum innlánum lánastofnana sem eru sem stendur meginvextir Seðlabankans. Hinn 21. október 2024 voru meginvextir Seðlabankans 9%.
    Í 2. mgr. er gert ráð fyrir að lánastofnanir geti innheimt þóknanir af lántökum til að standa undir umsýslukostnaði lánastofnananna við að veita og halda utan um stuðningslánin.

Um 11. gr.

    Miðað er við að lánastofnun og rekstraraðili geti samið um fyrirkomulag endurgreiðslu á láni en að jafnaði verði hægt að miða við að ekki verði greitt af lánunum fyrstu þrjú árin en að þau verði endurgreidd, að meðtöldum vöxtum, með jöfnum greiðslum síðustu þrjú ár lánstímans. Tímalínan tekur mið af því að mikil óvissa er um þróun jarðhræringa á Reykjanesinu. Ákvæðið hefur annars ekki áhrif á hefðbundin vanefndarúrræði lánveitanda, svo sem um gjaldfellingu láns vegna verulegra vanefnda lántaka. Lántaka er ávallt heimilt að greiða af stuðningsláni fyrir gjalddaga og þarf ekki að greiða uppgreiðsluþóknun.

Um 12. gr.

    Í ákvæðinu kemur fram að hafi aðili fengið stuðningslán umfram það sem hann átti rétt á, hvort sem hann átti ekki rétt á neinu stuðningsláni eða hann fékk hærra lán en hann átti rétt á, beri honum að endurgreiða lánastofnun þá fjárhæð sem ofgreidd var. Krafan beri sömu vexti og stuðningslánin almennt frá þeim degi sem ofgreitt var og þar til greitt er. Sé hún ekki greidd innan mánaðar frá því að rekstraraðila berist krafa um endurgreiðslu beri krafan dráttarvexti skv. 6. gr. laga um vexti og veðtryggingu, nr. 38/2001, sbr. 3. mgr. 5. gr. sömu laga.
    Í sambærilegu ákvæði í lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020, er sérstaklega fjallað um viðurlög við að veita af ásetningi eða gáleysi ófullnægjandi upplýsingar. Í ljósi ákvæða almennra hegningarlaga þykir ekki ástæða til að kveða sérstaklega á um slík viðurlög í þessari grein.

Um 13. gr.

    Í 1. mgr. kemur fram að ráðherra skuli semja við lánastofnanir um framkvæmd stuðningslána samkvæmt ákvæðum frumvarpsins. Nær það einkum til umsýslu láns sem veitt verða, uppgjörs ábyrgðar ríkissjóðs á þeim lánum og hvernig staðið verði að upplýsingagjöf til þess aðila sem muni annast umsýslu ríkisábyrgðarinnar. Gert er ráð fyrir að samkomulagið verði sambærilegt því sem Seðlabanki Íslands gerði við lánastofnanir vegna stuðningslána í heimsfaraldrinum. Í ljósi minna umfangs var ekki talin þörf á að Seðlabankinn væri milliliður vegna stuðningslána sem veitt verða á grundvelli frumvarpsins, nái það fram að ganga, þó að heimilt verði að semja við Seðlabankann í samræmi við heimild ráðherra í 2. mgr. greinarinnar.
    Í 2. mgr. kemur fram ráðherra sé heimilt að semja við ríkisaðila eða annan sérhæfðan aðila á almennum markaði um að annast umsýslu vegna ábyrgðar ríkissjóðs á stuðningslánum. Til greina kemur að verkefnið verði leyst innan húss í ráðuneytinu en einnig kemur til greina að semja við Seðlabanka Íslands eða Fjársýslu ríkisins um að annast það hlutverk. Þá þykir rétt að hafa heimild til að semja um umsýsluna við ytri aðila þó að ekki sé gert ráð fyrir að sú leið verði farin.

Um 14. gr.

    Lagt er til að ráðherra verði heimilað að setja reglugerð þar sem megi útfæra nánar efnisákvæði frumvarpsins ef þess reynist þörf, svo sem vegna einhverra ófyrirséðra tæknilegra atriða við veitingu stuðningslána á grundvelli ákvæða frumvarpsins.

Um 15. gr.

    Við setningu laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020, voru uppi álitamál um hvort lánastofnun sem samið hafði verið við um að annast framkvæmd á þeim stuðningslánum kynni að vera falið að fara með tiltekið opinbert vald. Ákvörðun um veitingu láns á grundvelli ákvæða frumvarpsins mun byggjast á þeim hlutlægu viðmiðum sem talin eru upp í 4. gr. ásamt því að umsækjandi þarf að heyra undir gildissvið skv. 1. gr. Fyrirkomulagið sem lagt er til í frumvarpinu gerir ráð fyrir að lánastofnun sem gert hefur samning við ráðherra um að annast stuðningslán verði skylt að veita stuðningslán að því gefnu að öll skilyrði séu uppfyllt. Með hliðsjón af þessu má færa rök fyrir því að ákvörðun um veitingu stuðningsláns með 90% ríkisábyrgð geti hugsanlega talist stjórnvaldsákvörðun í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og að um þær ákvarðanir gildi þar af leiðandi að óbreyttu ákvæði stjórnsýslulaga. Mikilvægt er að lánastofnunum verði kleift að taka ákvörðun um lánveitingar þar sem þær bera hluta áhættunnar á eigin forsendum og án þess að vera bundnar af þeim málsmeðferðar- og efnisreglum sem stjórnsýslulög mæla fyrir um.
    Skilyrði fyrir veitingu stuðningslána eru einnig háð hlutlægum skilyrðum. Lánastofnun verður því ekki falið eiginlegt mat á því hvort viðkomandi rekstraraðili eigi rétt á stuðningsláni eða ekki. Þannig er tryggt að þeir sem fullnægja skilyrðum 4. gr. fái stuðningslán með þeim kjörum sem mælt er fyrir um í 10. gr. Þar sem girt er fyrir að ákvörðun fari fram á grundvelli matskenndra viðmiða verður að telja að nægilega tryggt sé að málefnaleg sjónarmið ráði för. Í því ljósi er talið að ákvæði stjórnsýslulaga tryggi ekki réttarvernd umfram það sem leiðir af hinum fastmótuðu reglum sem um lánin gilda. Þvert á móti kynni málsmeðferð samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga að flækja beitingu úrræðisins meira en nauðsynlegt er og draga úr skilvirkni við afgreiðslu lánsumsókna sem drægi þannig úr ávinningi rekstraraðila. Af þeim sökum er lagt til að ákvæði stjórnsýslulaga gildi ekki um stuðningslán samkvæmt frumvarpi þessu. Með sömu rökum er talið rétt að undanskilja framangreindar ákvarðanir ákvæðum upplýsingalaga, nr. 140/2012, og laga um umboðsmann Alþingis, nr. 85/1997. Þess má einnig geta að með því að taka fram að stjórnsýslulög gildi ekki um stuðningslán er einnig skýrt að ákvarðanir um stuðningslán sæti ekki stjórnsýslukæru skv. VII. kafla laganna. Eftir atvikum kunna slíkar ákvarðanir hins vegar að sæta málskoti til úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki, sbr. 19. gr. a laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Þessi tillaga og rökstuðningur fyrir henni er sambærileg ákvæði 25. gr. laga nr. 38/2020, sbr. álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (þskj. 1380, 725. mál á 150. löggjafarþingi).

Um 16. gr.

    Greinin þarfnast ekki skýringar.