Ferill 253. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 311 — 253. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur um Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
1. Hversu margir íbúar voru skráðir á hverja heilsugæslustöð hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands 1. september síðastliðinn?
Alls eru 18.801 skráðir skjólstæðingar á átta heilsugæslustöðvum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE), sjá töflu.
Fjöldi skráðra skjólstæðinga á heilsugæslustöðvum HVE 1. september 2024.
| Heilsugæsla | Ágúst 2024 |
| Heilsugæslan Akranesi | 8.781 |
| Heilsugæslan Borgarnesi | 4.004 |
| Heilsugæslan Búðardal | 784 |
| Heilsugæslan Grundarfirði | 802 |
| Heilsugæslan Hólmavík | 487 |
| Heilsugæslan Hvammstanga | 1.170 |
| Heilsugæslan Ólafsvík | 1.511 |
| Heilsugæslan Stykkishólmi | 1.262 |
| Fjöldi skráðra | 18.801 |
2. Hversu mörg stöðugildi voru í hverri heilbrigðisstétt hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands 1. september síðastliðinn?
Á HVE eru fastráðnir starfsmenn í 13 heilbrigðisstéttum, samtals 221 stöðugildi, sjá töflu. Þá eru 105,4 stöðugildi hjá starfsstéttum sem flokkast ekki sem heilbrigðisstarfsmenn, fjölmennastir eru almennir starfsmenn eða 63 stöðugildi.
Fjöldi stöðugilda á HVE 1. september 2024.
| Heilbrigðisstarfsstéttir | Stöðugildi |
| Geislafræðingar | 2,63 |
| Heilbrigðisgagnafræðingar | 12,7 |
| Hjúkrunarfræðingar | 70,4 |
| Iðjuþjálfar | 2 |
| Lífeindafræðingar | 5,5 |
| Ljósmæður | 10,84 |
| Lyfjafræðingar | 1 |
| Læknar | 29 |
| Næringarfræðingar | 0,25 |
| Sálfræðingar | 6,05 |
| Sjúkraflutningamenn* | 5 |
| Sjúkraliðar | 69,7 |
| Sjúkraþjálfari | 6,1 |
| Samtals | 221,17 |
| * Auk sjúkraflutningamanna í föstu starfi eru 66 í tímavinnu um svæðið. | |
3. Hver ber ábyrgð á húsnæðismálum heilsugæslustöðva hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands?
Samkvæmt b-lið 3. tölul. 4. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands fer fjármála- og efnahagsráðuneyti með húsnæðismál ríkisstofnana. HVE er með leigusamning við Framkvæmdasýslu – Ríkiseignir (FSRE) fyrir stærstum hluta húsnæðis stofnunarinnar. Nokkrar íbúðir fyrir starfsmenn í heilsugæslu leigir HVE á almennum markaði. FSRE hefur umsjón með fasteignum ríkisins, sér um að afla nýs húsnæðis og selja húsnæði sem stofnanir óska eftir að losna við auk þess að stýra framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar.
Á haustin kallar FSRE eftir samantekt frá HVE með helstu þáttum sem stofnunin vill koma á framfæri varðandi viðhald og endurbætur sem þörf er á innan starfsstöðva HVE fyrir næsta ár. Þetta er framkvæmdaáætlun sem uppfærð er árlega og byggist að miklu leyti á ábendingum sem koma frá umsjónarmönnum hverrar starfsstöðvar. Mörg verkefnanna eru minni háttar eða húsnæði þarfnast endurbóta að hluta. Verklagið er þannig að þau verkefni sem ekki næst að koma í framkvæmd færast yfir á næsta ár á eftir.
4. Hvaða úrbætur og framkvæmdir á húsnæði eru áætlaðar næstu fimm ár hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands?
Ekki er skilgreind sérstök fimm ára áætlun um framkvæmdir með FSRE en samhliða árlegri framkvæmdaáætlun sem kallað er eftir eru verkefni sem metin eru í mikilli þörf sett í forgang og er þá um að ræða stærri og kostnaðarsamari verkefni. Tvö slík verkefni eru og hafa verið í forgangi síðastliðin ár.
Í nokkur ár hefur verið unnið með FSRE og heilbrigðisráðuneytinu að hönnun og undirbúningi að endurbótum á slysa-, göngu- og speglanadeild á 1. hæð í C-álmu á Akranesi þar sem núverandi húsnæði rúmar ekki vaxandi starfsemi. Verkefnið hefur verið á framkvæmdalista HVE frá árinu 2018. Samhliða þessu verkefni hefur verið unnið að hönnun vegna endurbóta á 2. hæð E-álmu þar sem húsnæði hefur staðið að mestu ónotað frá árinu 2012 en þangað á að flytja á speglana- og dagdeild auk rýmis sem þar verður fyrir skrifstofu og tölvudeild. Vonir standa til að þetta verkefni fari í útboð á næstu vikum.
Innrétting á gistirými fyrir skjólstæðinga háls- og bakdeildar á 4. hæð HVE í Stykkishólmi hefur verið á forgangslista. Auk þessara verkefna eru önnur verkefni sem snúa að þörf fyrir heildarendurbætur á húsnæði heilsugæslustöðva HVE á næstu árum og má þar m.a. nefna þörf á stækkun heilsugæslu á Akranesi og endurbótum á heilsugæslustöðinni í Borgarnesi. Fyrsta skrefið í undirbúningi í Borgarnesi var tekið í vor þegar FSRE fól hönnuði að hefja vinnu í samráði við starfsmenn heilsugæslunnar þar sem verkefnið er að skoða öll rými með tilliti til skipulags og endurhönnunar.
5. Var mæðravernd, ungbarnavernd og heimahjúkrun í boði á öllum þjónustusvæðum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands 1. september síðastliðinn?
Ungbarnavernd og heimahjúkrun er í boði á öllum heilsugæslustöðvum HVE. Mæðravernd sem ljósmæður sjá um er í boði á Akranesi, Borgarnesi, Ólafsvík, Grundarfirði, Stykkishólmi og Hvammstanga. Í Búðardal sér læknir um mæðravernd en konum stendur til boða að fara í skoðun í Borgarnesi eða á Akranesi kjósi þær það. Mæðravernd er ekki á Hólmavík og þar þarf að sækja þjónustuna annað, yfirleitt á Akranes. Símaráðgjöf á meðgöngu er hægt að fá hjá ljósmæðrum á fæðingardeild HVE á Akranesi. Ómskoðanir á meðgöngu fyrir allt upptökusvæði HVE eru framkvæmdar á Akranesi.