Ferill 303. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 312 — 303. mál.
Frumvarp til laga
um friðun Seyðisfjarðar fyrir sjókvíaeldi.
Flm.: Jódís Skúladóttir.
1. gr.
Markmið.
Við framkvæmd laganna skal byggt á vistkerfisnálgun og varúðarnálgun. Leitast skal við að fyrirbyggja hugsanleg spjöll á villtum nytjastofnum og vistkerfi þeirra ásamt því að tryggja hagsmuni þeirra sem nýta villta nytjastofna.
2. gr.
Friðunarsvæði.
3. gr.
Gildistaka.
Greinargerð.
Seyðisfirði var bætt við sem sjókvíaeldissvæði inn í strandsvæðisskipulag á röngum forsendum líkt og bent er á í skýrslu Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi frá janúar 2023. Við burðarþolsmat bar að taka tillit til þeirrar starfsemi sem fyrir var í firðinum en það var ekki gert. Má þar fyrst nefna þjóðaröryggi en sæstrengurinn Farice-1 liggur um Seyðisfjörð og er ein af þremur tengingum Íslands við umheiminn og tvær af þremur tengingum Færeyinga eru háðar honum. Ekki hefur verið sýnt fram á að öryggi strengsins verði tryggt við fyrirhugað sjókvíaeldi í firðinum. Þá hefur þjóðaröryggisráð aldrei fjallað um þá ógn sem öryggi strengsins stafar af sjókvíaeldi í Seyðisfirði og stofnanir ríkisins hafa ekki sinnt ítrekuðum athugasemdum frá rekstraraðila sæstrengsins, Farice ehf. Fyrirhugað kvíastæði á svæði SN2 í Selstaðavík er á C-svæði vegna ofanflóða. Kvíarnar eru þannig annaðhvort á snjóflóðahættusvæði eða innan helgunarsvæðis sæstrengsins. Þá er siglingaöryggi ógnað með áætluðu eldi en kvíastæðin í Sörlastaðavík eru innan hvíts ljósgeira frá Brimnesvita.
Seyðisfjarðarhöfn er önnur stærsta ferðamannagátt landsins, með reglubundnar ferjusiglingar til Evrópu til tæpra 50 ára. Hún er fjórða stærsta skemmtiferðaskipahöfn landsins en um 70.000 farþegar koma þangað með skemmtiferðaskipum á hverju ári. Sökum þessa má vera ljóst að af öryggisástæðum hentar Seyðisfjörður einkar illa undir starfsemi fiskeldis.
Afstaða Seyðfirðinga var staðfest í skoðanakönnun sveitarfélagsins Múlaþings og sýndi að 75% íbúa eru andvíg eldisáformum í firðinum og munu áætlanir um sjókvíaeldi því að líkindum hafa verulega neikvæð áhrif á samfélagið.
Ekki þarf að orðlengja um þá hættu sem mikilvægum og viðkvæmum laxveiðiám í næsta nágrenni stafar af áformunum en slysasleppingar myndu stöðugt vofa yfir. Þá er ljóst að sjókvíaeldi í Seyðisfirði er ósamrýmanlegt gildandi lögum um siglingaleiðir og snjóflóðavarnir og er fjarskiptaöryggi landsins verulega ógnað þegar litið er til Farice-sæstrengsins. Auk þess fara allar áætlanir um eldi í firðinum gegn vilja mikils meiri hluta íbúa.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Þá skal við framkvæmd laganna byggt á vistkerfisnálgun og varúðarnálgun. Með vistkerfisnálgun er lagt upp með að stjórnun á notkun lands, lagar og lifandi auðlinda sé samræmd og hvetji til verndunar og sjálfbærrar nýtingar með jafnrétti að leiðarljósi. Varúðarnálgun skal beitt þar sem vísindaleg óvissa og skortur er á upplýsingum um hvort ákveðnar aðgerðir og eftir atvikum aðgerðarleysi hafi óæskileg áhrif á umhverfið.
Um 2. og 3. gr.