Ferill 309. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 318  —  309. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um fæðingarorlof feðra.

Frá Birgi Þórarinssyni.


     1.      Hefur ónýttum mánuðum í fæðingarorlofi meðal feðra fækkað frá því að lög nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, tóku gildi? Ef svo er, hvernig hefur slík þróun verið, sundurliðað eftir árum frá gildistöku laganna?
     2.      Hver hefur heildarfjöldi ónýttra orlofsmánaða verið frá gildistöku laga nr. 144/2020, sundurliðað eftir árum?
     3.      Hvernig hefur fjöldi ónýttra mánaða í fæðingarorlofi meðal feðra þróast frá árinu 2010?
     4.      Hefur verið gerð úttekt á töku feðra á fæðingarorlofi?
     5.      Hvaða aðgerðir hefur ráðuneytið farið í til þess að ýta undir töku feðra á fæðingarorlofi?
     6.      Hve oft hafa feður framselt sex vikur eða minna af orlofsrétti sínum til móður, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 144/2020?
     7.      Hve oft hafa mæður framselt sex vikur eða minna af orlofsrétti sínum til föður, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 144/2020?


Skriflegt svar óskast.