Ferill 310. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 319 — 310. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um jafnrétti milli kynja við skipun skiptastjóra.
Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur.
1. Hversu margir lögmenn hafa verið skipaðir skiptastjórar samkvæmt lögum nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl., frá árinu 2014 til dagsins í dag? Óskað er sundurliðunar eftir umdæmum héraðsdómstóla og kyni.
2. Telur ráðherra að við skipun skiptastjóra sé gætt jafnréttis milli kynja líkt og kveðið er á um í i-lið 1. mgr. 4. gr. reglna um fjárhæð skiptatrygginga og skipun skiptastjóra og umsjónarmanns með nauðasamningsumleitunum nr. 5/2024?
3. Telur ráðherra nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að tryggja að jafnréttis verði gætt við skipun skiptastjóra? Ef já, hvaða?
Skriflegt svar óskast.