Ferill 311. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 320  —  311. mál.




Fyrirspurn


til menningar- og viðskiptaráðherra um kvartanir yfir fréttaflutningi Ríkisútvarpsins.

Frá Birgi Þórarinssyni.


     1.      Hversu margar kvartanir hafa borist Ríkisútvarpinu sl. fimm ár sem lúta að óviðeigandi fréttaumfjöllun stofnunarinnar og hvers eðlis voru þessar kvartanir?
     2.      Hefur stofnunin beðist opinberlega afsökunar á fréttaumfjöllun í kjölfar kvartana? Ef svo er, hversu oft var beðist afsökunar og hvers eðlis voru þær fréttaumfjallanir?
     3.      Telur ráðherra að Ríkisútvarpið hafi brotið lög með óviðeigandi fréttaumfjöllun á síðastliðnum fimm árum?
     4.      Til hvaða aðgerða hefur verið gripið af hálfu Ríkisútvarpsins til að koma í veg fyrir óviðeigandi fréttaumfjöllun?


Skriflegt svar óskast.