Ferill 313. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 322  —  313. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um gerð manntals á Íslandi.


Flm.: Steinunn Þóra Árnadóttir.


    Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra gerð manntals á Íslandi. Gerð kostnaðar- og tímaáætlunar verksins verði lokið fyrir 1. mars 2025.

Greinargerð.

    Ísland á sér langa og merkilega sögu þegar kemur að manntölum. Manntalið árið 1703 er talið fyrsta nútímamanntalið þar sem íbúar heillar þjóðar voru skráðir með nafni, aldri, hjúskaparstétt, stöðu og heimili. Til marks um sögulegt mikilvægi þessa hefur manntal þetta verið sett á skrá UNESCO um minni heimsins. Það hefur verið prentað á bók og gert aðgengilegt með öðrum hætti. Manntöl þau sem unnin hafa verið í gegnum tíðina eru dýrmætar heimildir fyrir fræðafólk sem rannsakar fortíðina, en mikilvægi góðra manntala felst þó einkum í þeim tækifærum sem í þeim felast fyrir stefnumótun og faglega ákvarðanatöku í samtíðinni.
    Síðasta stóra íslenska manntalið, sem tekið var með hefðbundnum hætti þar sem gengið var hús úr húsi og upplýsinga aflað að undangenginni greinargóðri kynningu, fór fram árið 1981. Eftir það rofnaði samfellan í töku manntala hér á landi, þar sem hið opinbera tók í staðinn að treysta á önnur upplýsingakerfi sín, svo sem skattskrár og fasteignaskrár. Í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 763/2008 hefur á ný verið mörkuð sú stefna að vinna manntöl á um tíu ára fresti, það fyrsta miðaði við árslok 2011 og voru niðurstöður þess birtar á árunum 2014 og 2015.
    Þrátt fyrir heitið eru þessi nýju manntöl ekki eiginleg manntöl í hefðbundnum skilningi heldur er um að ræða samkeyrslu á ólíkum opinberum gagnagrunnum og niðurstaðan getur því aldrei orðið réttari en þau gögn sem úr þeim koma. Á síðustu misserum hafa ítrekað borist fregnir af stórum óvissuþáttum varðandi íbúafjölda landsins og hefur þurft að leiðrétta opinberar tölur og áætlanir í samræmi við það. Þetta felur í sér augljós vandamál fyrir hvers kyns áætlanagerð og getur haft veruleg áhrif á hag ríkissjóðs, til að mynda varðandi réttindasöfnun einstaklinga í sameiginlegum sjóðum almannatrygginga. Einnig er hætta á því að fólk sem hvergi eða illa fellur inn í opinber kerfi falli milli skips og bryggju hvað varðar þjónustu og velferð sem er bæði slæmt fyrir einstaklinginn og samfélagið allt.
    Þrátt fyrir ágæti ýmissa skráningarkerfa hins opinbera er það mat margra að hefðbundin manntöl séu sú leið sem tryggi fjölbreytilegust og best gögn. Í því sambandi má horfa til Írlands, þar sem síðasta manntal fór fram á árinu 2022. Auk hefðbundinna lýðfræðilegra upplýsinga var þar einnig spurt um ýmsa aðra þætti sem aðstandendum lék hugur á að vita, svo sem um reykingar, tíðni fjarvinnu og notkun á endurnýjanlegum orkugjöfum. Þá er í úttekt Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um málefni innflytjenda á Íslandi, sem birt var á vef Stjórnarráðsins í september 2024, bent á að þrátt fyrir skráningarkerfi skorti ýmsar lykilupplýsingar um innflytjendur á Íslandi, svo sem um fæðingarstað, auk annarra upplýsinga um heimilisaðstæður og þjóðfélagsstöðu.
    Það er því ljóst að þörf er á hefðbundnu manntali á Íslandi og því er forsætisráðherra falið að hrinda því verki í framkvæmd.