Ferill 314. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 323  —  314. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um undirritun og fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum.


Flm.: Steinunn Þóra Árnadóttir, Orri Páll Jóhannsson, Jódís Skúladóttir, Eva Dögg Davíðsdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Svandís Svavarsdóttir, Gísli Rafn Ólafsson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Andrés Jónsson, Halldóra Mogensen, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson, Oddný G. Harðardóttir.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni fyrir Íslands hönd að undirrita og fullgilda samning um bann við kjarnorkuvopnum sem samþykktur var á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York 7. júlí 2017 og tók gildi hinn 22. janúar 2021.

Greinargerð.

    Þingsályktunartillaga þessi er flutt í níunda sinn en hún var síðast lögð fram á 154. löggjafarþingi ( 105. mál) og gekk til utanríkismálanefndar. Tillagan er nú endurflutt óbreytt með uppfærðri greinargerð. Frá upphafi hafa umsagnir borist um málið, flestar jákvæðar.
    Kjarnorkuvopn eru stærstu og skelfilegustu vopn sem mannkynið hefur búið til. Umfang kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nagasakí árið 1945, þar sem heilar borgir voru nánast þurrkaðar út í sviphendingu, var slíkt að þær teljast einstakir viðburðir í hernaðarsögunni, sem er þó blóði drifin að öðru leyti. Sprengjur þær sem varpað var á Japan í lok seinni heimsstyrjaldarinnar teljast þó dvergvaxnar miðað við öflugustu flaugar sem finna má í vopnabúrum risaveldanna. Kjarnorkuveldin gætu eytt öllu lífi á jörðinni mörgum sinnum með þeim vopnum sem þau hafa yfir að búa. Sú hætta er stöðugt fyrir hendi að kjarnorkuvopnum verði beitt fyrir mistök eða slysni og er vert að minnast þess að risaveldin geyma hluta þessara vopna um borð í kafbátum sem sigla í sífellu um heimshöfin, þar á meðal umhverfis Ísland.
    Kjarnorkuvopn hafa ekki verið jafn mikið til umræðu í seinni tíð og þegar kalda stríðið stóð sem hæst. Eigi að síður hafa líkurnar á kjarnorkuátökum sjaldan verið meiri. Stjórnvöld í Rússlandi og Bandaríkjunum hafa varið gríðarlegum fjárhæðum í þróun kjarnorkuvopna síðustu árin og hernaðaryfirvöld tala stöðugt frjálslegar um möguleikann á beitingu þeirra í hernaði. Þar má nefna ítrekuð ummæli rússneskra ráðamanna í tengslum við stríðið í Úkraínu, þar sem látið er að því liggja að notkun kjarnorkuvopna sé raunhæfur valkostur. Eins vekja ítrekuð átök Ísraela við nágranna sína ugg, en almennt er álitið að Ísraelsríki hafi yfir kjarnorkuflaugum að búa.
    Nú búa níu ríki yfir kjarnorkuvopnum: Kína, Norður-Kórea, Frakkland, Indland, Ísrael, Pakistan, Rússland, Bretland og Bandaríkin. Samtals eru kjarnaoddarnir 12.100, þar af eru 9.400 hluti virkra herbirgða. Rússland og Bandaríkin eiga um 90% allra kjarnavopna og á hvort ríki um sig um 5.500 kjarnavopn.
    Í gegnum tíðina hefur alþjóðasamfélagið þrýst á um gerð ýmissa afvopnunarsamninga eða annarra samninga sem setja bönd á útbreiðslu og dreifingu kjarnorkuvopna. Samningurinn um að dreifa ekki kjarnavopnum frá árinu 1968 (e. Treaty on the Non-Proliferation of Nuclear Weapons, NPT), sem 191 ríki er aðili að, hefur löngum verið talinn mikilvægastur þeirra. 1 Sá samningur felur í sér bann við frekari útbreiðslu þessara háskalegu vopna en jafnframt leggur hann skyldur á herðar þeim ríkjum sem þegar búa yfir slíkum vopnum um að vinna að útrýmingu þeirra. Lítið hefur borið á efndum á þeim hluta samningsins.
    Fullkomið sinnuleysi kjarnorkuveldanna um að standa við sinn hluta NPT-samningsins varð að lokum til þess að hópur ríkja komst að þeirri niðurstöðu að alþjóðasamfélagið yrði að ganga lengra og leiða í lög algjört bann við kjarnorkuvopnum þar sem fullreynt væri að kjarnorkuveldin myndu sjálf stuðla að útrýmingu þeirra innan gildandi sáttmála. Slíkur samningur væri, líkt og t.d. varð raunin með samninginn um bann við jarðsprengjum, að frumkvæði þeirra ríkja sem ekki ráða yfir slíkum vopnum en myndi með tímanum leiða til þess að vopn þessi yrðu talin ólíðandi af alþjóðasamfélaginu.
    Hinn 7. júlí 2017 samþykktu 122 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna samning um bann við kjarnorkuvopnum. 2 Samningurinn tók gildi snemma árs 2021 eftir að fimmtíu ríki höfðu afhent aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna skjal um fullgildingu, staðfestingu, samþykki eða aðild. Árið 2024 hafa 93 ríki skrifað undir samninginn og þar af hafa 73 fullgilt hann. Af því leiðir að rúmlega helmingur ríkja heims hefur skrifað undir samninginn eða er aðili að honum. Þessar góðu undirtektir alþjóðasamfélagsins ýta undir þær vonir að samningur þessi komist með tímanum í hóp mikilsverðustu afvopnunarsamninga þjóða heims, á borð við samninga sem kveða á um bann við efnavopnum, sýklavopnum og jarðsprengjum.
    Það er til marks um mikilvægi þessa samkomulags að samtökin ICAN, sem unnu ötullega að gerð þess, hlutu friðarverðlaun Nóbels árið 2017. Líkt og segir í rökstuðningi norsku nóbelsnefndarinnar áttu samtökin stærstan þátt í að leiða saman þjóðir heims og undirbúa gerð þessa mikilvæga sáttmála. Á fimmta hundrað friðarhópar og félagasamtök um víða veröld standa saman að ICAN-samtökunum.
    Ríki um víða veröld hafa lagt hönd á plóg í baráttu fyrir samþykkt og gildistöku sáttmálans en Evrópulönd sem hafa undirritað hann eru Austurríki, Írland, Kasakstan, Liechtenstein, San Marínó og Vatíkanið. Illu heilli ákváðu nær öll aðildarríki NATO að sniðganga viðræður um gerð sáttmálans, enda byggist hernaðarstefna bandalagsins enn á því að áskilja sér rétt til að beita kjarnorkuvopnum að fyrra bragði. Þessa afstöðu hafa ráðamenn í NATO-ríkjum m.a. varið með því að þeir telji farsælla að vinna að kjarnorkuafvopnun innan NPT-samningsins. Í ljósi þess að viðræður um endurnýjun þess samnings sigldu í strand árið 2022 er vandséð að þau rök haldi lengur. Þá er vert að halda því til haga, líkt og ICAN-samtökin benda á, að samningur Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum og NPT-samningurinn eru ekki andstæðir samningar sem ganga hvor gegn hinum, heldur styðja þeir og styrkja hvor annan.
1     treaties.unoda.org/t/npt
2     disarmament.un.org/treaties/t/tpnw