Ferill 315. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 324 — 315. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar, nr. 74/2024 (framlenging).
Frá matvælaráðherra.
1. gr.
2. gr.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er samið í matvælaráðuneytinu. Með því er lagt til að gerðar verði breytingar á lögum um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar, nr. 74/2024, í því skyni að framlengja tímabundið úrræði laganna um eitt ár þar sem enn ríkir óvissa um þróun jarðhræringa og eldsumbrota á Reykjanesskaga.
2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
Í kjölfar þess að ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákvað að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig var aðgangur að Grindavíkurbæ gerður hindrunarlaus frá og með 21. október 2024. Líkt og fram kom í tilkynningu framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur þá er hins vegar ljóst að jarðhræringum í og við Grindavíkurbæ er hvergi lokið og að aðstæður geta breyst hratt og nauðsynlegt getur reynst að rýma bæinn og nágrenni með skömmum fyrirvara og loka á nýjan leik.
Markmið laga um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar, nr. 74/2024, er að treysta áframhaldandi starfsemi í Grindavíkurbæ með því að gefa rekstraraðilum kost á að sækja um fjárhagsaðstoð til að bæta meiri háttar óbeint tjón á matvælum og fóðri af völdum hamfara í bænum, þ.m.t. vegna rýmingaraðgerða stjórnvalda sem tengjast þeim.
Í ljósi markmiðs laganna og þess að enn ríki óvissa um þróun jarðhræringa og eldsumbrota á Reykjanesskaga þykir nauðsynlegt að umrætt stuðningsúrræði verði framlengt um eitt ár.
3. Meginefni frumvarpsins.
Með frumvarpinu er lögð til sú breyting á lögum um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar, nr. 74/2024, að gildissviðsákvæði þeirra verði framlengt til 31. desember 2025, þ.e. að lögin gildi um einstaklinga og lögaðila sem stunda tekjuskattsskyldan atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi og verða fyrir tilgreindu tjóni skv. 6. gr. á tímabilinu frá og með gildistöku laganna til og með 31. desember 2025.
4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
Frumvarpið þykir ekki fela í sér álitaefni sem kalla á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar.
5. Samráð.
Frumvarpið er samið í matvælaráðuneytinu. Þar sem efni þess er sérlega brýnt í ljósi þeirrar óvissu sem ríkir í tengslum við jarðhræringar á Reykjanesskaga hefur reynst nauðsynlegt að víkja frá ákvæðum 9. gr. samþykktar ríkisstjórnarinnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og stjórnartillagna frá 24. febrúar 2023, hvað varðar frekara samráð um efni frumvarpsins.
6. Mat á áhrifum.
Mat á fjárhagsáhrifum hefur ekki breyst frá fyrirliggjandi mati sem fylgdi frumvarpi til laga um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar (1131. mál á 154. lögþ.). Líkt og rakið er í áhrifamati í greinargerð sem fylgdi því frumvarpi, þá ráðast áhrif á ríkissjóð af því framlagi sem sjóðurinn hlýtur í fjárlögum eða með millifærslum úr varasjóði hverju sinni. Þar segir enn fremur að gróflega megi áætla að ef til tjóns komi þá geti það numið allt að 400 millj. kr. að teknu tillit til eigin áhættu rekstraraðila. Af þeim sökum er miðað við að fjárveiting ríkissjóðs til sjóðsins, muni ekki nema hærri upphæð en því, óháð því hvort tjón hafi farið fram úr þeim mörkum.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Samkvæmt gildandi lögum þarf tjón að hafa orðið frá og með gildistöku laganna til 31. desember 2024. Líkt og rakið er í greinargerð sem fylgdi með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 74/2024, var upphaflegur gildistími hafður stuttur þar sem óvissa væri um framvindu jarðhræringa og eldsumbrota á svæðinu en að framlenging á úrræðinu yrði metin með tímanum. Þar sem óvissa ríkir enn um náttúruhamfarir á svæðinu þykir því nauðsynlegt að framlengja umrætt tímabil.
Um 2. gr.