Ferill 317. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 326  —  317. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um eftirlit á landamærum.

Frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur.


     1.      Hversu oft hefur lögregla viðhaft sérstakt eftirlit við komu flugvéla erlendis frá síðustu 12 mánuði, í formi viðveru við landgöngu, vegabréfaeftirlits og spurninga til farþega flugvélar um tilgang komu og dvalarstað? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum, fjölda lögreglumanna við eftirlitið hverju sinni og landi þaðan sem flugvél er að koma.
     2.      Hver var tilgangur slíks eftirlits í framangreindum tilvikum?
     3.      Hver tekur ákvörðun um viðveru lögreglu við landganginn við komu flugvéla og á grundvelli hvaða laga og/eða reglugerða er það ákveðið?
     4.      Eru lögreglumönnum gefin fyrirmæli um að gefa einstaklingum af tilteknu þjóðerni, einu eða fleirum, sérstakan gaum við slíkt eftirlit?
     5.      Svari einstaklingur því til að tilgangur hans sé að sækja um alþjóðlega vernd hér á landi, hvaða leiðbeiningar eru honum veittar og hvert og í hvaða ferli er viðkomandi vísað?


Skriflegt svar óskast.