Ferill 318. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 327 — 318. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um fjármögnun fornminjasjóðs.
Flm.: Jódís Skúladóttir.
Alþingi ályktar að fela umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að tryggja viðunandi fjármagn til fornminjasjóðs svo að sjóðurinn búi við stöðugleika og eðlilegar verðbætur.
Greinargerð.
Eitt mikilvægasta hlutverk stofnunarinnar er umsjón fornminjasjóðs og að úthluta úr honum fjármagni til verkefna að fengnum umsögnum fagnefnda og annast umsýslu þeirra svo og að hafa eftirlit með framvindu verkefna sem fá styrk. Minjastofnun skal einnig ákveða aðra ráðstöfun fjár úr fornminjasjóði og húsafriðunarsjóði í samráði við húsafriðunarnefnd og fornminjanefnd.
Styrkjum úr fornminjasjóði er úthlutað til ýmissa verkefna sem falla undir lögbundnar skyldur stofnunarinnar og meðal verkefna sem styrkt eru úr sjóðnum eru fornleifarannsóknir, svo sem fornleifauppgröftur og fornleifaskráningar, miðlun upplýsinga um fornminjar, varðveisla og viðhald fornminja og rannsóknir á forngripum.
Þrengt hefur verið markvisst að fornminjasjóði undanfarin ár og fjármagn til lögbundinna verkefna hafa dregist verulega saman. Nauðsynlegt er að árlegt grunnframlag til fornminjasjóðs verði hækkað og tryggt til lengri tíma til að sjóðurinn búi við stöðugleika og eðlilegar verðbætur.
Undanfarin ár hefur fornminjanefnd þurft að berjast fyrir aukafjárveitingu í hvert sinn áður en kemur til úthlutunar úr sjóðnum og treysta á fjárlaganefnd Alþingis ár hvert. Lögbundinn og jafn mikilvægur sjóður, sem hefur staðið nánast í stað frá stofnun hvað fjármögnun varðar, getur ekki lifað við slíkan ófyrirsjáanleika.
Staðan í dag er sú að sjóðurinn hefur hlutfallslega aldrei verið eins lítill frá stofnun. Það má benda á að framlag til annarra sjóða hefur verið hækkað og má þar nefna t.d. safnasjóð sem nú er með grunnframlag allt að 200 millj. kr. Fornminjasjóður hefur hins vegar setið algjörlega eftir með óuppfært grunnfjármagn um 46,7 millj. kr. sem gerir sjóðinn nær því óstarfhæfan. Fjárþörfin miðað við umsóknir og fyrirliggjandi verkefni sem sjóðurinn þyrfti að mæta má ætla að sé um 320 millj. kr. Bæði fornminjanefnd og Félag fornleifafræðinga telja hins vegar í ljósi þess hve hraksmánarlega meðferð fornminjasjóður hefur fengið að hægt væri að setja lágmarksgrunnfjárhæð fyrir næsta fjárlagaár þar sem hægt væri að fallast á að byrja á að setja lágmarksgrunn sjóðsins við 120 millj. kr. sem væri þá 200 millj. kr. undir sannarlegri fjárþörf.
Fjárskortur fornminjasjóðs hefur keðjuverkandi áhrif á margvísleg önnur verkefni og framkvæmdaáætlanir sem Alþingi og sveitarfélög leggja aftur á móti mikla áherslu á að verði undið áfram. Það er gífurlega mikilvægt einmitt að vinna sér í haginn í þessum málaflokki svo að ekki standi upp á en það gerist ef málaflokkurinn og sjóðurinn er sveltur sem skýrsla starfshóps ráðuneytisins hefur komist nýverið að niðurstöðu um. Svo að þingheimur átti sig á þá má t.d. velta fyrir sér þeirri stöðu sem fornleifafræðingar standa frammi fyrir þegar þeir eru beðnir um að sinna lögbundnum skyldum sínum og ganga úr skugga um hvort skráningarskyldar menningarminjar kunni að leynast í jörðu og þeim gert að reyna að vinna slík verk að vetrarlagi þegar raunverulega er með öllu ófært, t.d. vegna snjóalaga og frosts í jörðu, að sinna þeim verkefnum. Slíkt yrði hins vegar fljótt afgreitt ef fjármagn fengist til að vinna í haginn inni á framkvæmdasvæðum, svo að dæmi sé tekið, á þeim tíma árs þegar hægt er að stunda lögbundnar rannsóknir. Það má vera ljóst að öll framkvæmdaverkefni sem lúta að þessum skyldum um minjaskráningar munu tefjast komi ekki til tryggð langtímafjármögnun til fornminjasjóðs.