Ferill 325. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 337 — 325. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um réttindi barna og foreldra og farsældarlögin.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Getur foreldri sem ekki á lögheimili á sama stað og barn byggt rétt sinn á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, og fengið m.a. aðild að teymisfundum og aðgang að upplýsingum og þjónustu er varðar barnið?
2. Ber sveitarfélögum að tryggja að báðum foreldrum sé gert kleift að taka þátt í öllu er varðar þjónustu og úrræði á vegum sveitarfélagsins fyrir barnið?
3. Hvernig tryggja lögin að barn njóti stuðnings beggja foreldra og þá sérstaklega þegar foreldrar búa ekki saman? Er þessi réttur barns tryggður samkvæmt farsældarlögum eða öðrum lögum?
4. Hafa verið gerðar úttektir á stöðu barna sem búa á tveimur heimilum? Ef svo er, hvaða niðurstöður hafa komið fram um réttindi þeirra til stuðnings á báðum heimilum?
5. Hver hefur framkvæmd farsældarlaganna verið þegar kemur að foreldrum sem deila forsjá en búa ekki saman? Er foreldrum mismunað á grundvelli lögheimilis barnsins?
6. Hver er staða barnalaga, nr. 76/2003, og samspil þeirra við farsældarlögin að því er varðar rétt foreldra til upplýsinga og þjónustu?
7. Hafa stjórnvöld sett fram leiðbeiningar um aðgang foreldris að upplýsingum um barn sitt og þá sérstaklega ef foreldri er ekki með sama lögheimili og barnið? Hvernig er tryggt að foreldrar fái nauðsynlegar upplýsingar til að styðja við barnið ?
8. Hafa stjúpforeldrar eða sambýlingar foreldra lagaleg réttindi til að taka þátt í málum barnsins? Ef svo er, hvernig eru þau réttindi skilgreind? Hvernig er börnum tryggður réttur til að fá stuðning stjúpforeldra eða annarra aðila á heimili sínu?
Skriflegt svar óskast.