Ferill 326. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 338  —  326. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn (MiCA, DORA og CRR III).


Frá meiri hluta utanríkismálanefndar (JFF, BirgÞ, BjG, BHar, LE, SigÁ).


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi fyrirhugaðar ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn:
     1.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn um að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 um markaði fyrir sýndareignir og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010 og (ESB) nr. 1095/2010 og tilskipunum 2013/36/ESB og (ESB) 2019/1937 (MiCA).
     2.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn um að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2554 frá 14. desember 2022 um stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann og um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 1060/2009, (ESB) nr. 648/2012, (ESB) nr. 600/2014, (ESB) nr. 909/2014 og (ESB) 2016/1011, og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2556 frá 14. desember 2022 um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB, 2011/61/ESB, 2013/36/ESB, 2014/59/ESB, 2014/65/ESB, (ESB) 2015/2366 og (ESB) 2016/2341 að því er varðar stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann (DORA).
     3.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn sem fellir inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1623 frá 31. maí 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar kröfur vegna útlánaáhættu, leiðréttingaráhættu vegna útlánavirðis, rekstraráhættu, markaðsáhættu og úttakslágmark (CRR III).

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að Alþingi heimili staðfestingu á þremur ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Stefnt er að því að sameiginlega EES-nefndin taki umræddar ákvarðanir um að fella framangreindar gerðir (fskj. I–VII) inn í EES-samninginn í desember 2024. Innleiðing gerðanna hér á landi kallar á lagabreytingar og því þyrftu íslensk stjórnvöld að öllu óbreyttu að setja stjórnskipulegan fyrirvara við ákvarðanirnar.
    Það er afstaða allra EFTA-ríkjanna innan EES að þau hafi ríka hagsmuni af því að gerðirnar öðlist gildi gagnvart þeim á sama tíma og í Evrópusambandinu, um eða eftir næstu áramót. Hefur samstarfsríkið Liechtenstein lýst sérstökum og mikilsverðum hagsmunum vegna gildistöku MiCA og Noregur sömuleiðis vegna CRR III. Til þess að tryggja tímanlega gildistöku og í ljósi aðstæðna er nauðsynlegt að umræddar ákvarðanir verði teknar án stjórnskipulegs fyrirvara af Íslands hálfu. Verði tillaga þessi til þingsályktunar samþykkt felst í ályktuninni að ríkisstjórninni verði heimilt að samþykkja umræddar ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar án þess að setja stjórnskipulegan fyrirvara. Samkvæmt efni ákvarðananna er stjórnvöldum veittur 6–12 mánaða frestur frá gildistöku til að innleiða efni þeirra í landsrétt.
    Til að tryggja að ríkisstjórnin geti staðfest hinar fyrirhuguðu ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar þannig að gerðirnar öðlist gildi á EES-svæðinu á sama tíma og í Evrópusambandinu hefur meiri hluti utanríkismálanefndar samþykkt að leggja fram þingsályktunartillögu þessa. Við meðferð málsins fékk nefndin fulltrúa utanríkisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, Seðlabanka Íslands, Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Rafmyntaráðs Íslands á sinn fund. Gerðu þessir aðilar ekki athugasemdir við staðfestingu þessara ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar.

2. Fyrirhuguð ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn (MiCA).
    Fyrirhuguð ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn fellir inn í samninginn reglugerð 2023/1114 um markaði fyrir sýndareignir og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010 og (ESB) nr. 1095/2010 og tilskipunum 2013/36/ESB og (ESB) 2019/1937 (MiCA).
    Reglugerð 2023/1114 (hér eftir MiCA-reglugerðin eða MiCA) tilheyrir stafrænum fjármálapakka ESB sem fyrst var kynntur árið 2020, líkt og reglugerð (ESB) 2022/2554 frá 14. desember 2022 um stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann (DORA) og reglugerð (ESB) 2022/858 um tilraunaregluverk fyrir innviði markaða sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni (DFTR). Stafræna fjármálapakkanum er ætlað að stuðla að því að umgjörð fjármálamarkaða mæti nútímaþörfum, efldri samkeppni og nýsköpun, auk þess sem hugað er að fjárfestavernd, net- og upplýsingaöryggi, svo og fjármálastöðugleika.
    Stafræni fjármálapakkinn, þ.m.t. MiCA, á rætur að rekja til aðgerðaáætlunar framkvæmdastjórnar ESB í tengslum við fjártækni frá árinu 2018. Á grunni aðgerðaáætlunarinnar unnu Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin (ESMA) og Evrópska bankaeftirlitsstofnunin (EBA) skýrslu um sýndareignir (þ.e. verðmæti á stafrænu formi sem hægt er að nota sem greiðslu eða fjárfestingu og hægt er að miðla en engin opinber ábyrgð er tekin á, t.d. Bitcoin) og hvernig ákveðnar sýndareignir kunna að bera einkenni sem gera það að verkum að þær falla undir gildandi regluverk ESB á sviði fjármálamarkaða. Í þessu samhengi má nefna sýndareignir sem uppfylla hugtaksskilyrði fjármálagernings eins og það hugtak er skilgreint í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB (MiFID II). Sýndareignir falla þó að mestu leyti utan gildissviðs gildandi regluverks Evrópusambandsins á fjármálamarkaði. Þá hefur verið talið að erfitt geti verið að beita gildandi regluverki gagnvart sýndareignum sem þó heyra undir gildissvið þess. MiCA er ætlað að fylla í þetta tómarúm með samræmdum reglum um sýndareignir.
    Annað tilefni MiCA er tilkoma svokallaðra stöðugleikamynta (e. stablecoins), sem er einn undirflokkur sýndareigna. Með stöðugleikamyntum er í einfölduðu máli átt við sýndareignir hvers virði er bundið við eða tengt annarri eign, svo sem gjaldmiðil, vísitölu eða fjármálagerning. MiCA kveður á um ákveðnar verndarráðstafanir til að bregðast við áhættu sem stöðugleikamyntir kunna að skapa m.a. í tengslum við fjármálastöðugleika.
    Í tillögu framkvæmdastjórnar ESB varðandi MiCA kemur fram að markmið tillögunnar séu fjórþætt. Endurspegla markmiðin framangreinda umfjöllun um tilefni og nauðsyn MiCA. Í fyrsta lagi er markmiðið að stuðla að réttarvissu með það fyrir augum að örugglega megi þróa sýndareignir og hagnýtingarmöguleika dreifðrar færsluskrártækni í fjármálaþjónustu í fyrirsjáanlegu lagaumhverfi. Í öðru lagi er tillögunni ætlað að stuðla að nýsköpun og virkri og heilbrigðri samkeppni. Í þriðja lagi er markmið tillögunnar að tryggja fullnægjandi neytenda- og fjárfestavernd og heilleika markaða fyrir sýndareignir. Í fjórða og síðasta lagi er yfirlýst takmark tillögunnar að bregðast við áhættu sem aukin notkun sýndareigna, sérstaklega stöðugleikamynta, kann að hafa í för með sér fyrir fjármálastöðugleika og framkvæmd peningastefnu.
    Efnisákvæði reglugerðar (ESB) 2023/1114 hafa verið útfærð nánar í undirgerðum sem innleiddar verða í reglugerðum og reglum Seðlabanka Íslands.
    Aðlaganir í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar varðandi MiCA snúa fyrst og fremst að því að laga efni gerðanna að tveggja stoða kerfi EES-samningsins, ekki síst að því er varðar vísanir til heimilda og hlutverka Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar og Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar, sem í tilviki EFTA-ríkjanna innan Evrópska efnahagssvæðisins eru falin Eftirlitsstofnun EFTA. Í MiCA er gert ráð fyrir því að Evrópski seðlabankinn gefi út álit til viðkomandi eftirlitsstjórnvalds, sem er Seðlabanki Íslands í tilviki Íslands, í tengslum við eignatengda tóka (sem er tegund sýndareignar sem felur í sér skuldbindingu til að viðhalda stöðugu virði gagnvart einum eða nokkrum gjaldmiðlum sem hafa stöðu lögeyris, einni eða fleiri tegundum hrávöru eða einni eða nokkrum sýndareignum, eða blöndu af slíkum eignum) sem vísa til evru, þ.e. varðandi útgáfu, umsókn um starfsleyfi, skýrslugjöf, afturköllun starfsleyfis og breytingu á birtri hvítbók. Eftir atvikum er einnig gert ráð fyrir slíku áliti af hálfu seðlabanka viðkomandi aðildarríkis þegar aðili gefur út eignatengdan tóka og aðilinn hefur staðfestu í ESB-ríki sem ekki hefur evru sem opinberan gjaldmiðil eða ef eignatengdi tókinn vísar í annan gjaldmiðil innan ESB en evruna. Þannig er gert ráð fyrir að Seðlabanki Íslands myndi gefa álit ef um væri að ræða eignatengdan tóka sem vísaði í íslenska krónu. Eftirlitsstjórnvaldi er heimilt að veita leyfi fyrir útgáfu eignatengds tóka að öllum skilyrðum reglugerðarinnar uppfylltum. Skilyrði verða ekki uppfyllt ef álit viðkomandi seðlabanka, þar á meðal Seðlabanka Íslands þegar það á við, er neikvætt.
    Í aðlögun við upptöku reglugerðarinnar í EES-samninginn er gert ráð fyrir því að Eftirlitsstofnun EFTA gefi út álit til viðkomandi eftirlitsstjórnvalds (sem er Seðlabanki Íslands í tilviki Íslands) ef eignatengdi tókinn vísar ekki til evru en ef eignatengdi tókinn vísar til evru þá er það einungis Seðlabanki Evrópu sem gefur út álit til viðkomandi eftirlitsstjórnvalds þar sem það er hlutverk Seðlabanka Evrópu sem seðlabanka evrunnar. Hér er um að ræða sameiginlegar einsleitar kröfur um markaðssetningu á eignatengdum tókum innan EES.
    Öll EFTA-ríkin innan EES hafa lagt áherslu á skjóta upptöku gerðarinnar í EES-samninginn. Í aðlögun er kveðið á um að þau fái tólf mánuði til að innleiða reglugerðina, frá dagsetningu ákvörðunar um upptöku gerðarinnar í EES-samninginn að telja.
    Innleiðing MiCA kallar á lagabreytingar í formi heildstæðs lagabálks þar sem ekki er til heildstæður lagabálkur um markaði fyrir sýndareignir. Meginefni slíks lagabálks verður lögfesting MiCA og nauðsynlegra ákvæða þar að lútandi, einkum um heimildir eftirlitsaðila til upplýsingaöflunar, aðfararhæfi ákvarðana Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og EFTA-dómstólsins, viðurlög fyrir brot, starfsleyfisveitingu af hálfu fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands ásamt heimild ráðherra til að setja reglugerðir og Seðlabanka Íslands til að setja reglur. Þá kallar innleiðingin á breytingar á öðrum lögum, t.d. lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018, í tengslum við þjónustuveitendur sýndareigna, og lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Gert er ráð fyrir gerðin verði innleidd með setningu nýrra laga um markaði fyrir sýndareignir.
    Ekki er á þessu stigi gert ráð fyrir teljandi áhrifum á fjárhag ríkisins. Fjármálaeftirlitið mun hafa eftirlit með því að farið sé að fyrirhuguðum lögum, enda fer það almennt með eftirlit með fjármálastarfsemi, sbr. lög um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, nr. 87/1998. Lagasetningin kann þó að leiða til aukinna útgjalda hjá Fjármálaeftirlitinu sökum aukins eftirlits með mörkuðum fyrir sýndareignir. Þau útgjöld eru þó minni háttar en gætu falið í sér viðbótarstöðugildi hjá Fjármálaeftirlitinu og þar með breytingu á lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og skilavald, nr. 99/1999. Lagasetningin leiðir til aukinna krafna gagnvart fyrirtækjum sem hafa umsýslu með sýndareignir og þar með aukinn kostnað en jákvæðu áhrifin af lagasetningunni felast m.a. í samræmdu regluverki og aukinni neytendavernd. Unnið er að frekara kostnaðarmati við innleiðingu og nánari upplýsingar um kostnað verður að finna í fyrirhuguðu frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra til laga um markaði fyrir sýndareignir til innleiðingar.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku reglugerðar 2023/1114 til samræmis við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði nefndin ekki athugasemdir við upptöku reglugerðarinnar í EES-samninginn.

3. Fyrirhuguð ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn (DORA).
    Fyrirhuguð ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn mun fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
     1.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2554 frá 14. desember 2022 um stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann og um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 1060/2009, (ESB) nr. 648/2012, (ESB) nr. 600/2014, (ESB) 909/2014 og (ESB) 2016/1011 (DORA).
     2.      Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2556 frá 14. desember 2022 um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB, 2011/61/ESB, 2013/36/ESB, 2014/59/ ESB, 2014/65/ESB, (ESB) 2015/2366 og (ESB) 2016/2341 að því er varðar stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann.
    Markmið gerðanna er að stuðla að stafrænum rekstrarlegum viðnámsþrótti fjármálastofnana með samræmdum kröfum um áhættustýringu og viðbúnað, svo að lágmarka megi rof á mikilvægri fjármálaþjónustu með tilheyrandi neikvæðum efnahags- og samfélagslegum áhrifum, varðveita fjármálastöðugleika og tryggja öfluga vernd fjárfesta og neytenda.
    Í stórum dráttum kveður reglugerð (ESB) 2022/2554 á um meginreglur og kröfur til umgjarðar áhættustýringar og viðbúnaðar af hálfu aðila á fjármálamarkaði að því er varðar net- og upplýsingaöryggi, þ.m.t. um netöryggisprófanir og vöktun áhættu sem steðjað getur að fyrirtæki á fjármálamarkaði frá þriðja aðila sem veitir upplýsinga- og fjarskiptatækniþjónustu. Aðilar á fjármálamarkaði skulu uppfylla kröfur reglugerðarinnar í samræmi við meðalhófsreglu, að teknu tilliti til stærðar og áhættusniðs, eðlis, umfangs og flækjustigs starfsemi og kerfislegs mikilvægis.
    Með reglugerðinni er tilkynningarskylda um alvarleg atvik í eða tengd net- og upplýsingakerfum samræmd gagnvart lögbæru yfirvaldi (hér Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands) og krafa gerð um skráningu og flokkun allra atvika. Valkvætt verður að tilkynna um áhættu eða ógn sem ekki hefur raungerst. Upplýsingum verður safnað miðlægt um alvarleg atvik á öllu Evrópska efnahagssvæðinu í því skyni að efla enn frekar þekkingu og viðbragð við mögulegum ógnum. Þá er með reglugerðinni komið á fót nýjum eftirlitsramma með allra stærstu alþjóðlegu tækniþjónustuveitendum sem sérstaklega verða útnefndir sem mikilvægir á sameiginlegum innri markaði fjármálaþjónustu (e. Union Oversight Framework). Ef slíkur mikilvægur þriðji aðili frá Íslandi eða öðru EFTA-ríki innan EES væri útnefndur undir eftirlitsrammann yrði Eftirlitsstofnun EFTA falið hlutverk aðaleftirlitsaðila í samræmi við tveggja stoða kerfi EES-samningsins. Á meðal undirliggjandi viðmiða fyrir útnefningu er að upplýsinga- og fjarskiptatækniþjónusta sé veitt í fleiri en einu ríki. Loks er vert að geta þess að reglugerðin kveður á um heimildir til miðlunar upplýsinga um netógnir sem steðjað geta að stafrænum rekstrarlegum viðnámsþrótti aðila á fjármálamarkaði, enda sé slíkt samstarf formgert og hlíti nánar tilgreindum skilyrðum.
    Efnisákvæði reglugerðar (ESB) 2022/2554 eru nánar útfærð í undirgerðum, sem innleiddar verða í reglugerðum og reglum Seðlabanka Íslands.
    Aðlaganir í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn (DORA) taka fyrst og fremst mið af tveggja stoða kerfi EES-samningsins, ekki síst að því er varðar vísanir til heimilda og hlutverka evrópsku fjármálaeftirlitsstofnananna, sem í tilviki EFTA-ríkjanna innan EES er falið Eftirlitsstofnun EFTA. Öll EFTA-ríkin innan EES hafa lagt áherslu á skjóta upptöku gerðanna í EES-samninginn. Í aðlögun er kveðið á um að þau fái tólf mánuði til að innleiða, frá dagsetningu ákvörðunar um upptöku gerðarinnar í EES-samninginn að telja.
    Upptaka reglugerðar (ESB) 2022/2554 og tilskipunar (ESB) 2022/2556 í EES-samninginn og innleiðing þeirra hér á landi kallar á lagabreytingar. Gert er ráð fyrir að gerðirnar verði innleiddar með nýjum lögum um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar og um breytingar á ýmsum lögum, í samræmi við ákvæði II. þáttar IX. kafla reglugerðarinnar og tilskipunina. Nánar tiltekið verður um breytingartillögur að ræða á ákvæðum laga um verðbréfasjóði, vátryggingastarfsemi, rekstraraðila sérhæfðra sjóða, fjármálafyrirtæki, skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, markaði fyrir fjármálagerninga, greiðsluþjónustu, lánshæfismatsfyrirtæki, afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignaskráningu fjármálagerninga og fjárhagslegar viðmiðanir. Enn fremur er gert ráð fyrir breytingu á lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, nr. 78/2019, enda gerir reglugerð (ESB) 2022/2554 ráð fyrir að hún teljist sérlög andspænis almennari netöryggisgerð Evrópusambandsins. Ekki er gert ráð fyrir frávikum frá lágmarkskröfum gerðanna við innleiðingu hér á landi. Stefnt er að því að gera sambærilegar kröfur til innlendra lífeyrissjóða, sem starfa á grundvelli laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997.
    Fyrirhuguð lagasetning hefur áhrif á flesta aðila á fjármálamarkaði. Tæknileg áhætta hefur engin landamæri. Afar brýnt er að stuðla að því að milda neikvæð áhrif af atvikum í upplýsinga- og fjarskiptatækni á samfelldan og hagkvæman hátt, eftir því sem unnt er. Ný heildarlög leysa af hólmi og samræma núgildandi regluverk (ákvæði í ýmsum lögum og stjórnvaldsfyrirmæli). Samræming regluverks er ekki síður hagkvæm fyrir eftirlitsaðila en markaðinn, með tilliti til framfylgni, nánari reglusetningar, þjálfunar, leiðbeininga o.s.frv. Innleiðingin hefur líklega í för með sér einhvern kostnað fyrir fyrirtækin, en að sama skapi miðar lagasetning að frekari eflingu viðnámsþróttar fyrir áföllum og þannig gæti hún einnig dregið úr eða komið í veg fyrir kostnað vegna áfalla eða áhættu. Um eftirlitsskylda aðila sem falla undir gildissvið laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, nr. 78/2019, (NIS1-tilskipun ESB) gilda þegar lögbundnar lágmarkskröfur til áhættustýringar og tilkynningarskylda um atvik. Smærri fyrirtæki falla almennt undir einfaldaðan áhættustýringarramma DORA. Endurskoðun samninga og ferla um aðhald gagnvart ytri þjónustuveitendum verður meðal annars mikilvæg fyrir alla aðila á fjármálamarkaði sem DORA nær til. Fyrirséð þykir að innleiðingin mun undirbyggja frekari samvinnu og samhæfingu meðal ólíkra aðila á sviði netöryggismála, einkaaðila ekki síður en stjórnvalda.
    Áformuð lagasetning felur í sér aukin verkefni fyrir Seðlabanka Íslands, einkum Fjármálaeftirlitið, enda eru kröfur reglugerðar (ESB) 2022/2554 ítarlegar og að ýmsu leyti nýmæli. Eftirlit með framkvæmdinni krefst úttekta, gæðaprófa, gagna- og upplýsingaöflunar frá aðilum á fjármálamarkaði (svo sem vegna utanaðkomandi tækniþjónustuveitenda) og verður þörf á uppfærslu innanhússkerfa Seðlabankans af þeim sökum. Fjármálaeftirlitið fær með fyrirhuguðum lögum heimild til álagningar stjórnvaldssekta vegna brota gegn ákvæðum þeirra. Ákvæði um tilkynningarskyldu vegna alvarlegra atvika sem tengd eru upplýsinga- og fjarskiptatækni og verulegra netógna krefjast sólarhringsvöktunar af hálfu eftirlitsaðila, enda er meðal annars gert ráð fyrir tímanlegri framsendingu viðeigandi upplýsinga til annarra stjórnvalda innan lands (þar á meðal netöryggissveitar Fjarskiptastofu) og evrópsku fjármálaeftirlitsstofnananna. Greining þarf jafnframt að eiga sér stað við móttöku eftirlitsaðila á upplýsingum um atvik erlendis, tryggja þarf viðeigandi ráðstafanir eða áframmiðlun innan lands og reynt getur á þátttöku Fjármálaeftirlitsins í sameiginlegu evrópsku viðbragðsteymi. Þá er gert ráð fyrir að Seðlabankinn haldi utan um framkvæmd netöryggisprófana, þ.m.t. ógnamiðaðra innbrotsprófana sem stærri aðilum verður skylt að framkvæma reglulega, og kemur til skoðunar að bankinn haldi úti samstarfsvettvangi aðila á fjármálamarkaði um netógnir skv. 45. gr. reglugerðarinnar. Gera má ráð fyrir að viðbótarkostnaði vegna aukinna verkefna Fjármálaeftirlits Seðlabankans verði mætt með hækkun eftirlitsgjalds, auk þess sem gert er ráð fyrir sérstöku gjaldi á grundvelli gjaldskrár Seðlabankans að því er varðar ógnamiðaðar innbrotsprófanir. Ekki er talið að innleiðingin hafi bein áhrif á afkomu ríkissjóðs. Unnið er að frekara kostnaðarmati við innleiðingu og nánari upplýsingar um kostnað verður að finna í framangreindu frumvarpi.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku gerðanna til samræmis við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði nefndin ekki athugasemdir við upptöku þeirra í EES-samninginn. Gerðirnar fengu jafnframt efnislega umfjöllun í efnahags- og viðskiptanefnd sem gerði ekki athugasemdir við upptöku þeirra í EES-samninginn.

4. Fyrirhuguð ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn (CRR III).

    Fyrirhuguð ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn fellir inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1623 frá 31. maí 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar kröfur vegna útlánaáhættu, leiðréttingaráhættu vegna útlánavirðis, rekstraráhættu, markaðsáhættu og úttakslágmark (CRR III).
    Reglugerð (ESB) nr. 575/2013 setur fram varfærniskröfur til banka og annarra lánastofnana, þar á meðal kröfur um eigið fé sem er ætlað að stuðla að því að lánastofnanir geti staðist áföll án þess að verða ógjaldfærar og treysta þar með fjármálastöðugleika. Reglugerð (ESB) 2024/1623 er að miklu leyti ætlað að gera eiginfjárkröfur til lánastofnana áhættunæmari til að endurspegla betur áhættu sem þær standa frammi fyrir án þess að auka verulega heildareiginfjárkröfur til þeirra. Aukin áhersla er lögð á áhættu í tengslum við umhverfis- og félagslega þætti og stjórnarhætti. Þá er leitast við að draga úr kostnaði lánastofnana við upplýsingagjöf og bæta aðgengi að upplýsingum frá lánastofnunum.
    Í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar er gert ráð fyrir hefðbundnum aðlögunum sem gæta að tveggja stoða kerfi EES-samningsins.
    Reglugerð (ESB) 2024/1623 tekur í meginatriðum gildi í Evrópusambandinu 1. janúar 2025. Talið er æskilegt að gerðin taki gildi á sama í tíma í EFTA-ríkjunum innan EES til að lánastofnanir þar sitji við sama borð og lánastofnanir í Evrópusambandinu og samstarf og upplýsingaskipti eftirlitsaðila geti áfram gengið eðlilega fyrir sig, þar á meðal samstarf og upplýsingaskipti Seðlabanka Íslands og Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar. Stefnt er að því að sameiginlega EES-nefndin samþykki að taka gerðirnar upp í EES-samninginn sem fyrst en endanleg dagsetning liggur ekki enn fyrir. Gert er ráð fyrir að reglugerðin verði innleidd hér á landi með breytingum á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
    Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á fjárhag ríkissjóðs eða verulegum áhrifum á kostnað lánastofnana.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku reglugerðar (ESB) 2024/1623 til samræmis við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði nefndin ekki athugasemdir við upptöku hennar í EES-samninginn.



Fylgiskjal I.


Drög að ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn (MiCA).

www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0338-f_I.pdf



Fylgiskjal II.


Reglugerð 2023/1114 um markaði fyrir sýndareignir og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010 og (ESB) nr. 1095/2010 og tilskipunum 2013/36/ESB og (ESB) 2019/1937.


www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0338-f_II.pdf



Fylgiskjal III.


Drög að ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn (DORA).


www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0338-f_III.pdf



Fylgiskjal IV.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2554 frá 14. desember 2022 um stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann og um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 1060/2009, (ESB) nr. 648/2012, (ESB) nr. 600/2014, (ESB) nr. 909/2014 og (ESB) 2016/1011.


www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0338-f_IV.pdf

Fylgiskjal V.


Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2556 frá 14. desember 2022 um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB, 2011/61/ESB, 2013/36/ESB, 2014/59/ESB, 2014/65/ESB, (ESB) 2015/2366 og (ESB) 2016/2341 að því er varðar stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann.


www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0338-f_V.pdf



Fylgiskjal VI.


Drög að ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn (CRR III).


www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0338-f_VI.pdf



Fylgiskjal VII.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1623 frá 31. maí 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar kröfur vegna útlánaáhættu, leiðréttingaráhættu vegna útlánavirðis, rekstraráhættu, markaðsáhættu og úttakslágmark.


www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0338-f_VII.pdf