Ferill 298. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Prentað upp.

Þingskjal 339  —  298. mál.
Leiðréttur texti.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, Grindavíkurbæ, framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavík, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum ferðaþjónustunnar og Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og sex einstaklinga fyrir hönd fyrirtækja í Grindavík.
    Nefndinni bárust 18 erindi sem eru aðgengileg á síðu málsins á vef Alþingis ásamt tveimur minnisblöðum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Með frumvarpinu er lagt til að ríkissjóður ábyrgist 90% stuðningslána sem fjármálastofnanir veita rekstraraðilum sem stundað hafa atvinnustarfsemi í Grindavík á tilteknu tímabili og orðið fyrir verulegu tekjutapi vegna áhrifa jarðhræringanna á Reykjanesskaga.
    Nefndin telur mikilvægt að málið nái fram að ganga með það að markmiði að viðhalda atvinnustarfsemi rekstraraðila í Grindavíkurbæ, einkum minni rekstraraðila, eða eftir atvikum til að aðstoða rekstraraðila við að byggja upp starfsemi annars staðar á landinu.
    Í umsögnum um málið er ítrekað mikilvægi frekari stuðningsaðgerða við atvinnulífið í Grindavík. Nefndin tekur undir þau sjónarmið og telur stuðningslán vera lið í nauðsynlegum aðgerðum til að styðja við atvinnulíf í Grindavík. Auk þess er stefnt að framlengingu nokkurra tímabundinna stuðningsaðgerða, m.a. að framlengja tímabil rekstrarstuðnings vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ, sbr. lög nr. 15/2024. Stuðningslán ein og sér duga ekki til að bregðast við þeim vanda sem sum fyrirtæki standa frammi fyrir en þau geta nýst fyrirtækjum í ákveðnum tilvikum. Til lengri tíma litið þurfi jafnframt að skoða möguleika á frekari aðgerðum en það fellur þó ekki undir efni þessa frumvarp.

Reglugerðarheimild.
    Í 14. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að ráðherra geti kveðið nánar á um framkvæmd laganna í reglugerð. Nefndin áréttar það sem fram kemur í skýringum við ákvæðið að ráðherra megi útfæra nánar efnisákvæði frumvarpsins ef þess reynist þörf, svo sem vegna einhverra ófyrirséðra tæknilegra atriða við veitingu stuðningslána á grundvelli ákvæða frumvarpsins.

Breytingartillaga.
Undanþága frá lögum um ríkisábyrgðir.
    Í samráði við fjármála- og efnahagsráðuneytið leggur nefndin til að lög um ríkisábyrgðir, nr. 121/1997, gildi ekki um ábyrgðir ríkissjóðs á stuðningslánum samkvæmt frumvarpinu. Lögin eiga fyrst og fremst við þegar ríkissjóður veitir ábyrgðir vegna einstakra framkvæmda eða verka en ekki þegar veittur er almennur efnahagslegur stuðningur við fyrirtæki. Samsvarandi undanþága var jafnframt gerð vegna laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020.

    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Við bætist ný grein, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Breyting á öðrum lögum.

    Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á lögum um ríkisábyrgðir, nr. 121/1997: Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Ákvæði laga þessara gilda ekki um þær ábyrgðarskuldbindingar sem ríkissjóði er heimilt að undirgangast gagnvart lánastofnunum samkvæmt lögum um stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

Alþingi, 11. nóvember 2024.

Diljá Mist Einarsdóttir,
form.
Gísli Rafn Ólafsson,
frsm.
Ágúst Bjarni Garðarsson.
Guðmundur Ingi Kristinsson. Guðbrandur Einarsson. Jóhann Friðrik Friðriksson.
Oddný G. Harðardóttir . Steinunn Þóra Árnadóttir. Sigþrúður Ármann.