Ferill 268. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 340 — 268. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Evu Dögg Davíðsdóttur um sérstaka móttöku fyrir konur innan heilsugæslunnar.
1. Hver er framtíðarsýn ráðherra hvað varðar sérstaka móttöku fyrir konur í Heilsugæslunni Mjódd, sem sinnir sérstaklega kvenheilsu?
Þjónusta kvenheilsu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er nýbreytni sem hefur þróast frá því að hún hóf starfsemi sína í lok árs 2021. Áhersla er lögð á mikilvægi heildstæðrar nálgunar á heilsu kvenna. Í tilskipun frá ráðherra kemur fram að tryggja þurfi aðgengi að réttum og gagnreyndum upplýsingum fyrir heilbrigðisstarfsfólk, konur og almenning. Einnig kemur fram að skipa eigi móttöku fyrir konur með áherslu á breytingaskeið kvenna, getnaðarvarnir, ráðgjöf um ofbeldi og afleiðingar þess og á sjúkdóma sem herja sérstaklega á konur.
Verkefni kvenheilsu er m.a. að vinna að frumgerð fræðsluefnis fyrir almenning um breytingaskeið á Heilsuveru og að þróun fræðslu um getnaðarvarnir og fleira á fræðsluvef sem tengist kvenheilsu.
Framtíðarsýn ráðherra felur í sér áframhaldandi stuðning og eflingu þessara þjónustuþátta, þar á meðal að tryggja aðgengi að fræðslu og upplýsingum á Heilsuveru. Fræðsla fyrir heilbrigðisstarfsfólk er mikilvæg, sér í lagi um heilbrigðisvandamál sem ekki hafa fengið athygli samfélagsins í takt við þau áhrif sem þau geta haft á lífsgæði kvenna. Þar má nefna endómetríósu, en aukin fræðsla hefur orðið til þess að þjónusta við þann sjúklingahóp hefur eflst til muna. Sama má gera gagnvart fleiri sjúkdómum, t.d. fjölblöðrueggjastokkaheilkenni (PCOS) sem vegna vaxandi þekkingar greinist æ oftar hérlendis.
2. Hefur ráðherra lagt mat á árangur verkefnisins? Ef svo er, hverjar eru helstu niðurstöður þess mats?
Heilbrigðisráðuneyti hefur fylgst með þjónustunni þróast ár frá ári. Helstu starfsemistölur eru að rúmlega 950 konur hafa sótt fræðslu um breytingaskeið frá upphafi starfseminnar. Um 470 konur hafa komið í einstaklingsviðtöl varðandi breytingaskeið hjá kvensjúkdómalækni, ljósmóður og hjúkrunarfræðingi, auk símtala og eftirfylgdar. Boðið var upp á paranámskeið um breytingaskeið en því var hætt fljótlega þar sem þátttaka var dræm. Ríflega 150 konur hafa sótt námskeið um lífsstíl á breytingaskeiði og eftir það og einhverjar fengið einstaklingsráðgjöf í kjölfarið. Þá hafa 577 konur komið í hópfræðslu um fitubjúg og ríflega 360 konur sótt einstaklingsfræðslu til læknis eða ljósmóður/hjúkrunarfræðings, auk símtala og eftirfylgdar um það vandamál. Fyrr á þessu ári var byrjað að bjóða upp á hópfræðslu hjá sjúkraþjálfurum um meðferð við fitubjúg og hafa ríflega 70 konur nýtt sér þjónustuna. Einstaklingsmóttaka fyrir getnaðarvarnaþjónustu var opnuð í júlí 2024 og skráðar komur eru um 70 talsins síðan þá, auk eftirfylgni og símaviðtala. Ljóst er miðað við nýtingartölur að þörfin fyrir þjónustu er til staðar.
3. Hefur ráðherra áform um að bæta við fleiri sérstökum móttökum sem sérhæfa sig í kvenheilsu, til viðbótar við þá þjónustu sem þegar er veitt í Mjódd?
Ljóst er að þörf hefur verið á þjónustu Heilsubrúar á sviði kvenheilsu og eftirspurn mikil. Ráðherra hefur skýra framtíðarsýn um að bæta aðgengi að sérhæfðri kvenheilsuþjónustu með því að þróa og auka hana umfram þá þjónustu sem nú er veitt á heilsugæslunni í Mjódd. Miðlægur stuðningur Heilsubrúar mun styðja við þá stefnu að auka einstaklingsmiðaða þjónustu, þar á meðal með nýjum móttökum fyrir getnaðarvarnir og kynheilbrigði á fleiri heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu.
Fram undan er innleiðing á nýrri einstaklingsfræðslu um getnaðarvarnir og kynheilbrigði á annarri heilsugæslustöð en þessi þróun markar fyrstu skrefin í að bæta og efla þjónustu til langframa. Með þessu móti er stefnt að því að tryggja að konur um allt land fái jafnan aðgang að þjónustu sem mætir þörfum þeirra á öllum lífsskeiðum. Einnig er áætlað að þróa áfram sérhæfða þjónustu fyrir konur með áherslu á heildræna nálgun á heilsu þeirra undir handleiðslu fagfólks og með stöðugri þróun klínískra leiðbeininga og fræðsluefnis.
4. Hvað líður þróun og útgáfu fræðsluefnis fyrir almenning og klínískra leiðbeininga fyrir fagfólk sem eiga að styðja við starfsemi móttökunnar?
Útgáfa og þróun fræðsluefnis fyrir almenning og klínískra leiðbeininga fyrir heilbrigðisstarfsfólk er í stöðugri þróun. Nú þegar hefur fræðsluefni um breytingaskeið verið birt á Heilsuveru og nær það til fjölmargra þátta sem tengjast kvenheilsu, svo sem fræðslu um getnaðarvarnir, kynheilbrigðis og líkamlegra áskorana kvenna á ólíkum æviskeiðum.
Þróun fræðsluefnis fyrir heilbrigðisstarfsfólk heldur einnig áfram. Vinna stendur yfir við að útbúa fræðslu og verklagsleiðbeiningar um meðferð fitubjúgs og ítarlegar klínískar leiðbeiningar um getnaðarvarnamóttöku. Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu (ÞÍH) hefur þegar útbúið klínískar leiðbeiningar um breytingaskeið og kynnt þær fyrir fagfólki á heilsugæslustöðvum.
Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fer með áframhaldandi þróun fræðslu um kvenheilsu fyrir bæði skjólstæðinga og starfsfólk og hefur það að markmiði að styrkja upplýsingamiðlun og aðgengi að faglegri og árangursríkri heilbrigðisþjónustu fyrir konur á öllum æviskeiðum.