Ferill 299. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 341  —  299. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um brottfall laga um Bankasýslu ríkisins, nr. 88/2009.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund fulltrúa frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
    Nefndinni barst ein umsögn sem aðgengileg er undir málinu á vef Alþingis. Þá barst nefndinni minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
    Með frumvarpinu er kveðið á um brottfall laga um Bankasýslu ríkisins, nr. 88/2009. Í dag er hlutverk Bankasýslu ríkisins einungis að fara með eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Lagt er til að stofnunin verði lögð niður og fyrirkomulagið varðandi meðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum verði fært til samræmis við aðra meðferð eignarhluta ríkisins í félögum sem samkvæmt lögum um opinber fjármál er í höndum fjármála- og efnahagsráðherra.
    Í umsögn sem barst frá stjórn Bankasýslu ríkisins kom fram að stofnunin telur frumvarpið tímabært og hefur nú þegar hafið undirbúning að starfslokum stofnunarinnar.
    Í samráði við fjármála- og efnahagsráðuneyti leggur meiri hlutinn til tæknilegar breytingar á þrennum öðrum lögum sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.
    Að því sögðu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Við 3. gr. bætist þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:
     1.      Lög um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019: 3. málsl. 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða V í lögunum fellur brott.
     2.      Lög um stofnun opinbers hlutafélags til að stuðla að endurskipulagningu rekstrarhæfra atvinnufyrirtækja, nr. 75/2009: 2. málsl. 3. mgr. 2. gr. laganna fellur brott.
     3.      Lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002: Í stað orðanna „7. gr. laga um Bankasýslu ríkisins, nr. 88/2009“ í 7. mgr. 53. gr. laganna kemur: 44. gr. a í lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015.

Alþingi, 11. nóvember 2024.

Diljá Mist Einarsdóttir,
form.
Ágúst Bjarni Garðarsson,
frsm.
Jóhann Friðrik Friðriksson.
Sigþrúður Ármann. Steinunn Þóra Árnadóttir.