Ferill 302. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 342  —  302. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (sameiginleg vernd).

Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið. Nefndinni bárust fimm umsagnir sem eru aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Með frumvarpinu er lagt til að gerð verði breyting á 44. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, sem felst í því að hámarkstími dvalarleyfa, sem veitt eru á grundvelli sameiginlegrar verndar í kjölfar fjöldaflótta, verði lengdur úr þremur árum í fimm.
    Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er markmið frumvarpsins að bregðast við þeirri stöðu sem gæti skapast í mars 2025 þegar þriggja ára heimild ráðherra um sameiginlega vernd í kjölfar fjöldaflótta vegna stríðsins í Úkraínu rennur út. Verði frumvarpið ekki að lögum munu allir einstaklingar sem hlotið hafa sameiginlega vernd skv. 44. gr. laga um útlendinga eiga rétt á efnislegri meðferð á umsókn um alþjóðlega vernd eða framlengdri dvöl á öðrum lagagrundvelli á næsta ári. Ljóst er að það myndi auka kostnað við málaflokkinn í heild vegna umsýslu og þjónustu sem fylgdi slíkum fjölda umsókna.
    Nefndin tekur undir markmið frumvarpsins og telur brýnt að stjórnvöldum verði heimilt að endurnýja dvalarleyfi á grundvelli fjöldaflótta í allt að fimm ár. Það sé ekki síst mikilvægt til að stuðla að auknum fyrirsjáanleika um framlengda dvöl fyrir þann hóp einstaklinga sem nýtur sameiginlegrar verndar hér á landi. Umsagnaraðilar benda m.a. á mikilvægi þess að umræddur hópur búi við aukinn fyrirsjáanleika og að ákvörðun ráðherra um beitingu sameiginlegrar verndar liggi fyrir með eðlilegum fyrirvara.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hluti nefndarinnar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Bergþór Ólason og Eyjólfur Ármannsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 12. nóvember 2024.

Bryndís Haraldsdóttir,
form., frsm.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir.
Jódís Skúladóttir. Líneik Anna Sævarsdóttir.