Ferill 244. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 343  —  244. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur um Kvíabryggju.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hyggst ráðherra ráðast í aðgerðir til að bæta aðstæður á Kvíabryggju, t.d. með framkvæmdum á húsnæði, til að laga aðbúnað starfsmanna og fanga og bæta aðstöðu til betrunar?
    
    Að mati ráðherra er nauðsynlegt að fjölga opnum rýmum í fangelsum auk þess sem ljóst er að ráðast þarf í endurbætur á opnu fangelsunum með hliðsjón af ýmsum kröfum svo sem um aðbúnað bæði starfsmanna og fanga. Í byrjun árs 2023 fékk ráðuneytið ráðgjöf til að greina möguleika sem eru til staðar til þess að bæta opnu fangelsin á Kvíabryggju og á Sogni sem og að fjölga þar rýmum. Ákveðið var að byrja á því að gera endurbætur á fangelsinu á Sogni og fjölga rýmum þar. Í ráðuneytinu er nú einnig unnið að heildarendurskoðun í fullnustumálum þar sem húsnæði fangelsanna eru meðal annars til skoðunar. Í þeirri vinnu verður farið ítarlega yfir tillögur og athugasemdir sem ráðuneytinu hafa borist.