Ferill 297. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Prentað upp.
Þingskjal 344 — 297. mál.
Leiðrétt málefnasvið.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til fjáraukalaga V fyrir árið 2024.
Frá meiri hluta fjárlaganefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti sem komu og kynntu frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Nefndin kallaði ekki sérstaklega eftir umsögnum um málið þar sem mjög skammur tími er til að afgreiða það vegna fyrirhugaðra þingkosninga.
Efni frumvarpsins.
Tilefni til aukinna fjárheimilda í frumvarpinu eru af ýmsum toga, svo sem aukin vaxtagjöld, aukinn stuðningur við Úkraínu, vetrarþjónusta Vegagerðarinnar, aukin framlög vegna þjónustutengdrar fjármögnunar sérhæfðrar sjúkrahúsþjónustu og aðgerðir vegna ofbeldis gegn börnum og meðal barna.
Þá eru lagðar til tvær breytingar á 5. gr. fjárlaga yfirstandandi árs. Lagt er til að lántökuheimild ríkissjóðs verði hækkuð úr 230 ma.kr. í 250 ma.kr. þar sem fyrirséð er að staða ríkisvíxla verður hærri en lagt var upp með í fjárlögum. Skýrist hækkunin að mestu leyti af frestun á sölu hluta ríkissjóðs í Íslandsbanka hf. Þá er lagt til að heimild fyrir endurlán til Byggðastofnunar verði hækkuð úr 3 ma.kr. og verði allt að 5 ma.kr. á árinu 2024 vegna aukinnar eftirspurnar eftir lánum í kjölfar aðildar Byggðastofnunar að ábyrgðarkerfi Evrópska fjárfestingasjóðsins (EIF).
Helstu breytingar fjárheimilda í frumvarpinu.
Í frumvarpinu er lagt til að fjárheimildir málefnasviða verði auknar um 24,5 ma.kr. Það svarar til 1,6% hækkunar frá áður samþykktum fjárheimildum í fjárlögum ársins 2024. Þar vega þyngst aukin vaxtagjöld, 14,6 ma.kr., og breyting á frumgjöldum að fjárhæð 9,9 ma.kr. sem sundurliðuð er í eftirfarandi töflu, en einnig koma fram breytingar sem samþykktar hafa verið í fernum fjáraukalögum það sem af er árinu:
Frumvarp til fjáraukalaga V 2024: Helstu útgjaldamál eftir tilefnum og heimildir 2024.
| Fjárlög 2024 | m.kr. |
|
Frumgjöld
|
1.391.795 |
|
Vaxtagjöld
|
99.107 |
|
Heildargjöld
|
1.490.902 |
|
Fjáraukalög (I) nr. 7/2024 (stuðningsaðgerðir við íbúa og fyrirtæki í Grindavíkurbæ, bygging varnargarða og breyting á 6. gr. fjárlaga)
1
|
0 |
|
Fjáraukalög (II) nr. 17/2024 (breyting á 5. og 6. gr. fjárlaga)
1
|
0 |
|
Fjáraukalög (III) nr. 72/2024 (aðkoma ríkisins vegna kjarasamninga á almennum markaði)
|
13.494 |
|
Fjáraukalög (IV) nr. 99/2024 (áframhaldandi stuðningsaðgerðir vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga)
|
6.550 |
| Frumvarp til fjáraukalaga V 2024: Ný og aukin útgjaldatilefni | |
|
Breytingar á frumgjöldum
|
9.942 |
|
Áætlaður viðbótarkostnaður vegna vetrarþjónustu vegakerfisins á árinu 2024
|
2.900 |
|
Aukinn varnartengdur stuðningur við Úkraínu
|
1.500 |
|
Endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar, viðbótarframlag
|
900 |
|
Þjónustutengd fjármögnun sjúkrahúsa, viðbótarframlag
|
800 |
|
Aðgerðir vegna ofbeldis barna
|
703 |
|
Auknar heimildir vegna öryggisvistunar
|
500 |
|
Kostnaður vegna alþingiskosninga 2024
|
468 |
|
Uppbygging bráðaofanflóðavarna á Patreksfirði
|
420 |
|
Landhelgisgæslan: Viðgerð á hreyflum flugvélarinnar TF-SIF
|
350 |
|
Viðbót til Ábyrgðasjóðs launa í ljósi endurmats á útgjöldum sjóðsins
|
233 |
|
Styrkir vegna almenningssamgangna
|
229 |
|
Önnur útgjaldamál
|
939 |
|
Breytingar á vaxtagjöldum
|
14.574 |
|
Breytingar á heildargjöldum
|
24.516 |
|
Breytingar á heildargjöldum frá fjárlögum 2024 í %
|
1,6% |
| Heimildir 20242 | |
|
Frumgjöld
|
1.421.782 |
|
Vaxtagjöld
|
113.681 |
|
Heildargjöld
|
1.535.463 |
2 Fjárlög 2024 að viðbættum áður samþykktum fjáraukalögum fyrir árið 2024 og frumvarpi þessu.
Endurmetnar afkomuhorfur 2024 eftir framlagningu frumvarpsins.
Endurmetnar afkomuhorfur gera ráð fyrir að halli á rekstri ríkissjóðs verði rúmlega 75 ma.kr. eða 1,7% af vergri landsframleiðslu (VLF) á yfirstandandi ári í stað um 68 ma.kr. halla eða 1,5% af VLF samkvæmt frumvarpinu. Lækkun á afkomuhorfum ríkissjóðs frá fyrra mati nemur því 7–8 ma.kr. og má rekja til lægri tekna þar sem áætluð útgjöld eru óbreytt. Verði það niðurstaðan mun afkoma ríkissjóðs vera rúmlega 24 ma.kr. eða 0,5% af VLF lakari en gert var ráð fyrir í áætlun fjárlaga fyrir árið 2024.
Uppfærðar afkomuhorfur ársins 2024 og samanburður við áætlun fjárlaga fyrir árið 2024.
| ma.kr. | % af VLF | ||||||
| Þjóðhagsgrunnur | Fjárlög 2024 | Áætlun 2024 | Breyting | Fjárlög 2024 | Áætlun 2024 | Breyting | |
| Frumtekjur | 1.315,1 | 1.323,8 | 8,7 | 29,1 | 29,1 | 0,0 | |
| Frumgjöld | 1.290,2 | 1.304,1 | 13,9 | 28,5 | 28,7 | 0,2 | |
| Frumjöfnuður | 24,9 | 19,7 | -5,2 | 0,6 | 0,4 | -0,2 | |
| Vaxtatekjur | 41,4 | 37,0 | -4,4 | 0,9 | 0,8 | -0,1 | |
| Vaxtagjöld | 117,6 | 132,1 | 14,6 | 2,6 | 2,9 | 0,3 | |
| Vaxtajöfnuður | -76,2 | -95,1 | -18,9 | -1,7 | -2,1 | -0,4 | |
| Heildartekjur | 1.356,5 | 1.360,8 | 4,3 | 30,0 | 29,9 | -0,1 | |
| Heildargjöld | 1.407,7 | 1.436,2 | 28,5 | 31,1 | 31,6 | 0,4 | |
| Heildarjöfnuður | -51,2 | -75,4 | -24,2 | -1,1 | -1,7 | -0,5 |
Mestu lækkunina er að finna í tekjuskatti einstaklinga sem lækkar um 9,3 ma.kr. frá síðustu áætlun. VSK er lækkaður um 5,3 ma.kr. sem má einkum rekja til tekjuþróunar ársins. Af öðrum lækkunum frá síðustu tekjuáætlun má helst nefna lækkun erfðafjárskatts um 3,6 ma.kr., þar sem tekjur af bæði fyrirframgreiddum og almennum erfðafjárskatti hafa verið töluvert undir áætlun, og lækkun á áfengisgjaldi um 1 ma.kr.
Á móti minni tekjum af framangreindum sköttum er gert ráð fyrir meiri tekjum af tekjuskatti lögaðila og fjármagnstekjuskatti árið 2024. Hækkunin á tekjuskatti lögaðila nemur 7,0 ma.kr. og er tilkomin vegna góðrar útkomu tekjuskatts við álagningu opinberra gjalda á lögaðila. Hækkun fjármagnstekjuskatts má rekja til góðrar innheimtu það sem af er ári m.a. vegna þess að vaxtastig ársins er lítillega hærra en í fyrri hagspá.
Yfirlit yfir nokkra útgjaldaliði.
Samgöngu- og fjarskiptamál.
Lagt er til að fjárheimild málefnasviðsins verði aukin um 3.329 m.kr. Í fyrsta lagi er um að ræða aukningu um 2.900 m.kr. til að koma til móts við áætlaðan halla vegna vetrarþjónustu á vegakerfinu. Í öðru lagi kemur til aukning um 200 m.kr. vegna ófyrirséðs kostnaðar við viðgerð á Breiðafjarðarferjunni Baldri. Í þriðja lagi er um að ræða 153 m.kr. aukningu til þess að mæta kostnaði við að halda uppi óskertri þjónustu Loftbrúar það sem eftir er árs. Í fjórða lagi er 76 m.kr. aukning til að halda megi uppi flugsamgöngum milli Reykjavíkur og Húsavíkur annars vegar og Reykjavíkur og Vestmannaeyja hins vegar yfir vetrarmánuðina.
Fjölskyldumál.
Lagt er til að fjárheimild málefnasviðsins verði aukin um 1.128 m.kr. Í fyrsta lagi er gerð tillaga um 500 m.kr. hækkun vegna fjölgunar samninga sem gerðir hafa verið vegna öryggisvistunar ósakhæfra einstaklinga. Í öðru lagi er gerð tillaga um 438 m.kr. aukið framlag til aðgerða vegna ofbeldis barna. Í þriðja lagi er gerð tillaga um 190 m.kr. framlag til Barna- og fjölskyldustofu sem rekur lögbundin meðferðar- og neyðarúrræði fyrir börn og ungmenni með hegðunar- og tilfinningavanda.
Fjármagnskostnaður.
Vaxtakostnaður ríkissjóðs hækkar um 14.574,1 m.kr. Þar af hækka vaxtagjöld af ríkisvíxlum um 11 ma.kr. og vaxtagjöld af ríkisbréfum hækka um 5,5 ma.kr. Á móti lækka verðbætur um 0,8 ma.kr. vegna lægri verðbólgu og vextir af erlendum lánum lækka um tæplega 1 ma.kr. vegna þess að útgáfa græns skuldabréfs átti sér stað síðar en upphaflega var reiknað með.
Skattfrjáls eingreiðsla til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.
Í frumvarpinu er vakin athygli á því að gert er ráð fyrir að nýta 1,7 ma.kr. af svigrúmi málefnasviðs 27 Örorka og málefni fatlaðs fólks til að fjármagna skattfrjálsa eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega til samræmis við eingreiðslur í desember síðustu ára. Meiri hlutinn bendir á að um sérstakt verkefni er að ræða og kallar það á að Alþingi veiti heimild til að nýta afgang til að fjármagna verkefnið. Meiri hlutinn leggur til að sú heimild verði veitt og leggur auk þess til að veittar verði 800 m.kr. til að tryggja að fullnægjandi fjármögnun sé til staðar. Fjárhæð eingreiðslunnar á mann nemur 70.364 kr. á árinu 2024.
Hús íslenskunnar.
Á málefnasviðum mennta- og menningarmála er lögð til 313 m.kr. hækkun sem að stærstum hluta má rekja til 158 m.kr. framlags vegna aðgerða í samræmi við áhættugreiningu sem gerð var á handritageymslu í Eddu, húsi íslenskunnar. Greining leiddi í ljós að styrkja þyrfti öryggis- og hússtjórnarkerfið, tryggja brunadælur, bæta við loftgæðamælingum, frostvörnum og vatnslekaskynjurum o.fl. Meiri hlutinn bendir á að húsið er sérhannað og sérsmíðað til að varðveita handritin og kemur fyrrgreindur kostnaður því á óvart.
Algalíf.
Í frumvarpinu er Alþingi beðið um að taka afstöðu til tillögu um 52 m.kr. greiðslu til líftæknifyrirtækisins Algalífs vegna dóms sem féll í Landsrétti í október 2023. Í dómnum var fallist á viðurkenningarkröfu Algalífs á því að ákvörðun íslenska ríkisins að synja fyrirtækinu um greiðslu þjálfunaraðstoðar fyrir tímabilið 1. janúar 2018 til 31. maí 2020 hafi brotið gegn réttindum Algalífs skv. 11. og 17. gr. fjárfestingarsamnings á milli aðilanna.
Forsaga málsins er sú að hinn 28. janúar 2014 var gerður fjárfestingarsamningur milli íslenska ríkisins og Algalífs um framkvæmd verkefnis um smáþörungaframleiðslu. Síðar sama ár voru samþykkt á Alþingi lög um heimild til að staðfesta fjárfestingarsamning við Algalíf Iceland ehf. um smáþörungaverksmiðju á Reykjanesi, nr. 58/2014, þar sem þáverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra var veitt heimild til að staðfesta samninginn fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Skv. 17. gr. fjárfestingarsamningsins þarf að afla samþykkis Alþingis með sérstakri heimild í fjárlögum fyrir þjálfunaraðstoðinni. Alþingi er það þó í sjálfsvald sett hvort það samþykki beiðnina eða ekki, eða eins og segir í dómsorði: „Með þessu er þó ekkert fullyrt hver afstaða Alþingis kynni að vera til tillögu um slík fjárútlát, en í ljósi fyrirvara 17. gr. samningsins um samþykki Alþingis fellur það utan valdsviðs dómsins að taka afstöðu til slíkra atriða.“ Meiri hlutinn leggur til að framlagið verði samþykkt.
Almennur varasjóður.
Kal- og afurðatjón bænda. Á fundi nefndarinnar með fjármála- og efnahagsráðuneytinu kom fram að texti í skýringum um varasjóðsframlag til Bjargráðasjóðs vegna kaltjóns á ræktarlandi bænda í Norðfirði sé ekki alls kostar réttur. Hið rétta er að framlaginu er ætlað að bæta þau kaltjón sem urðu víðar á landinu og samþykkt var að bæta. Meiri hlutinn bendir á að gert er ráð fyrir að kal- og afurðatjón bænda verði bætt með framlögum til Bjargráðasjóðs. Í frumvarpinu er nú þegar miðað við að 230 m.kr. verði millifærðar úr almennum varasjóði til Bjargráðasjóðs vegna kaltjóns.
Í greinargerð frumvarpsins kemur fram yfirlit yfir ráðstafanir úr almennum varasjóði.
Breytingartillögur.
Meiri hlutinn leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á frumvarpinu:
A-liður 3. gr. orðist svo: Í stað fjárhæðarinnar „200 ma.kr.“ í 1. tölul. kemur: 230 ma.kr. Um er að ræða leiðréttingu vegna misritunar í frumvarpinu.
Á málefnasviði 09 Almanna- og réttaröryggi er lagt til að veittar verði 20 m.kr. til að fjármagna tvö stöðugildi við landamæragæslu á Akureyrarflugvelli.
Þá er gerð tillaga um 110 m.kr. framlag til Landhelgisgæslunnar. Í frumvarpinu er lagt til að veitt verði 350 m.kr. framlag til Landhelgisgæslunnar vegna viðgerðar á hreyflum flugvélarinnar TF-SIF þar sem fram kom tæring í þeim. Vegna viðgerðarinnar reyndist ekki unnt að taka þátt í haustverkefni á vegum Frontex með flugvélinni og er gert ráð fyrir að stofnunin hafi fyrir vikið orðið af áætluðum 110 m.kr. rekstrarafgangi. Gerð er tillaga um að Landhelgisgæslunni verði bætt sú fjárhæð.
Lagt er til að veitt verði 100 m.kr. framlag á málefnasviði 18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál til Kvikmyndasjóðs. Því er ætlað að gera sjóðnum kleift að taka þátt í verkefnum sem annars væri ekki unnt að ráðast í á árinu.
Lagt er til að veitt verði 150 m.kr. framlag á málefnasviði 23 Sjúkrahúsþjónusta vegna kostnaðar í tengslum við myglu á hjúkrunarheimilinu Hlíð. Sjúkrahúsið á Akureyri hefur orðið fyrir töluverðum kostnaðarauka vegna 10 öldrunarsjúklinga með gilt færni- og heilsumat sem eiga að vera á hjúkrunarheimilinu Hlíð en komast ekki í viðeigandi úrræði vegna myglunnar. Ofan á mikla nýtingu rúma hjá sjúkrahúsinu, skort á starfsfólki og mikil veikindi hjá stofnuninni auka þessar aðstæður á hjúkrunarþyngd. Kostnaðarauki þess stafar fyrst og fremst af launakostnaði hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og annarra heilbrigðisstétta, auk lyfjakostnaðar.
Þá er lagt til að veitt verði 83 m.kr. framlag á málefnasviði 23 Sjúkrahúsþjónusta til að kaupa nýjan skyggniröntgenbúnað á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Aðeins er eitt skyggniröntgentæki á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hefur komið upp alvarleg bilun í því sem gerir það m.a. að verkum að ekki er hægt að framkvæma púlserandi skyggningu. Þá virðist tækið ekki lengur uppfylla kröfur Geislavarna ríkisins. Talið er að ekki borgi sig að gera við tækið.
Á málefnasviði 25 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta er gerð tillaga um 80 m.kr. til Ljóssins. Framlaginu er ætlað að tryggja að rekstur Ljóssins verði í jafnvægi á árinu. Öll nefndin stendur að baki tillögu þessari.
Gerð er tillaga um 200 m.kr. sérstakt viðbótarframlag á málefnasviði 27 Örorka og málefni fatlaðs fólks sem ætlað er að fjármagna 25% kostnaðarhlutdeild ríkissjóðs vegna þeirra NPA-samninga sem eru nú þegar í gildi. Öll nefndin stendur að baki tillögu þessari.
Þá er lagt til að framlög á málefnasviði 27 Örorka og málefni fatlaðs fólks verði hækkuð um 800 m.kr. til að fjármagna skattfrjálsa eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega til samræmis við eingreiðslur í desember síðastliðin ár. Kemur framlagið til viðbótar við heimild til að nýta eftirstöðvar á málefnasviðinu til að fjármagna eingreiðsluna. Fjárhæð eingreiðslunnar nemur 70.364 kr. á mann á árinu 2024.
Á málefnasviði 29 Fjölskyldumál er lagt til að millifærðar verði 150 m.kr. af fjárfestingu yfir á rekstur. Upphaflega var gert ráð fyrir að fjárfest yrði í úrræðum á Stuðlum en horfið hefur verið frá því vegna áforma um að leigja þess í stað tímabundnar vistunareiningar.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem hér hefur verið gerð grein fyrir og lagðar eru til í sérstökum þingskjölum.
Alþingi, 11. nóvember 2024.
| Njáll Trausti Friðbertsson, form., frsm. |
Bryndís Haraldsdóttir. | Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir. | |
| Stefán Vagn Stefánsson. | Sigþrúður Ármann. | ||