Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 349, 155. löggjafarþing 6. mál: kosningalög (kjörskrá).
Lög nr. 124 14. nóvember 2024.

Lög um breytingu á kosningalögum, nr. 112/2021 (kjörskrá).


1. gr.

     Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
     Þrátt fyrir 6. málsl. 2. mgr. 3. gr. og 2. mgr. 32. gr. skal ákvörðun Þjóðskrár Íslands um að taka kjósanda á kjörskrá gilda frá þeim tíma sem hún var tekin enda hafi umsókn þess efnis borist Þjóðskrá Íslands eftir 1. desember 2023 en fyrir 19. nóvember 2024. Fullnægjandi umsókn um að vera tekinn á kjörskrá sem berst Þjóðskrá Íslands 19. nóvember 2024 eða síðar gildir frá 1. desember 2024.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi og falla úr gildi 1. desember 2024.

Samþykkt á Alþingi 12. nóvember 2024.