Ferill 327. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Prentað upp.
Þingskjal 350 — 327. mál.
Leiðréttur texti.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um Mannréttindastofnun Íslands, nr. 88/2024 (frestun gildistöku).
Flm.: Birgir Ármannsson.
1. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2025. Ákvæði i–l-liðar 1. tölul. 12. gr. og ákvæði til bráðabirgða II öðlast gildi 1. janúar 2025.
2. gr.
Við samþykkt laga þessara skal hefja undirbúning að stofnun Mannréttindastofnunar Íslands, þar á meðal skal Alþingi kjósa fimm einstaklinga í stjórn svo skjótt sem verða má og eigi síðar en í mars 2025. Fyrir kosningu stjórnar er skrifstofustjóra Alþingis heimilt að gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru svo að stofnunin geti tekið til starfa 1. júlí 2025.
3. gr.
a. (IV.)
Frá samþykkt laga þessara og fram til 1. júlí 2025 skal það ráðuneyti sem fer með málefni réttindagæslu fyrir fatlað fólk tryggja að ekki verði rof á þjónustu réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Ráðuneytið skal tryggja samfellda þjónustu m.a. með ráðningu starfsfólks tímabundið til að sinna réttindagæslu fatlaðs fólks og gerð tímabundins þjónustusamnings við Mannréttindaskrifstofu Íslands.
b. (V.)
Frá 1. júlí 2025 færast skjöl sem varða störf réttindagæslumanna fatlaðs fólks til Mannréttindastofnunar Íslands.
4. gr.
Greinargerð.
Í lögum um Mannréttindastofnun Íslands er gert ráð fyrir að hlutverk réttindagæslumanna fatlaðs fólks gagnvart persónulegum talsmönnum færist til sýslumanns. Þannig gera lögin ráð fyrir að sýslumenn staðfesti val á persónulegum talsmönnum og hafi eftirlit með störfum þeirra. Undirbúningur að yfirfærslu þessa verkefnis frá réttindagæslumönnum til sýslumanna hefur gengið vel og ekkert er því til fyrirstöðu að þessi verkefnaflutningur eigi sér stað um áramót. Er því ekki talin ástæða til að fresta gildistöku ákvæða um persónulega talsmenn og hlutverk sýslumanna sem taka gildi 1. janúar 2025.
Lagt er til að ákvæði til bráðabirgða III í lögunum verði umorðað og sérstaklega tekið fram hvernig hátta beri undirbúningi að stofnun Mannréttindastofnunar. Þannig er lagt til að Alþingi kjósi í stjórn stofnunarinnar svo skjótt sem verða má og eigi síðar en í mars 2025. Einnig er lagt til að skrifstofustjóra Alþingis verði heimilt að gera ákveðnar undirbúningsráðstafanir áður en kosið verður til stjórnar Mannréttindastofnunar Íslands. Þannig er lagt til að skrifstofa Alþingis geti útvegað stofnuninni húsnæði, tæki, búnað og gert aðrar nauðsynlegar ráðstafanir, svo sem stofna nýjan ríkisaðila í opinberum kerfum, útvega kennitölu og bankareikning, gert ráðstafanir um prókúruhafa og fleira í þeim dúr.
Ekki er hreyft við ákvæði til bráðabirgða II í lögunum og því gert ráð fyrir niðurlagningu starfa réttindagæslumanna og annars starfsfólks réttindagæslu fyrir fatlað fólk frá og með 1. janúar 2025. Er því lagt til í frumvarpinu að við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða (IV) um skyldu félags- og vinnumarkaðsráðuneytis til að tryggja samfellu í þjónustu af hálfu réttindagæslunnar við fatlað fólk og heimildir þess til að gera tímabundnar ráðstafanir í því skyni. Einnig er lagt til nýtt ákvæði til bráðabirgða (V) til að árétta að öll gögn sem varða störf réttindagæslumanna fatlaðs fólks skuli færast til Mannréttindastofnunar Íslands 1. júlí 2025.