Ferill 288. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 352  —  288. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um viðskiptareikninga við Seðlabanka Íslands.


    Við vinnslu svarsins var óskað eftir upplýsingum frá Seðlabanka Íslands og byggist svarið á upplýsingum bankans.

     1.      Hver var meðalfjárhæð innstæðna á viðskiptareikningum við Seðlabanka Íslands í hverjum mánuði frá júní 2023, sundurliðuð eftir flokkum reikningseigenda?
    Seðlabankinn reiknar ekki sérstaklega meðalfjárhæð innstæðna á viðskiptareikningum. Seðlabankinn birtir opinberlega efnahagsreikning sinn á vefsvæði bankans. Þar má finna mánaðarlokatölur fyrir innstæður þeirra aðila sem eiga viðskiptareikning hjá Seðlabankanum.
    Sjá má í eftirfarandi töflu samantekt á mánaðarlokatölum frá júní 2023, sundurliðað eftir flokkum reikningseigenda (fjárhæðir eru í milljónum króna):

Dagsetning Innstæður fjármálastofnana á viðskiptareikningum Innstæða ríkissjóðs á viðskiptareikningum
30.6.2023 63.078 66.970
31.7.2023 70.765 49.654
31.8.2023 60.410 60.619
30.9.2023 69.204 47.122
31.10.2023 79.959 41.326
30.11.2023 43.521 86.457
31.12.2023 52.319 81.790
31.1.2024 82.305 61.860
29.2.2024 54.340 111.653
31.3.2024 61.081 66.441
30.4.2024 64.324 53.364
31.5.2024 67.405 72.219
30.6.2024 49.935 55.563
31.7.2024 86.661 67.640
31.8.2024 54.217 79.167
30.9.2024 57.908 64.779

     2.      Hver var fjárhæð greiddra vaxta til eigenda viðskiptareikninga við Seðlabanka Íslands í hverjum mánuði frá júní 2023, sundurliðuð eftir flokkum reikningseigenda?
    Sjá má í eftirfarandi töflu fjárhæð greiddra vaxta til eigenda viðskiptareikninga við Seðlabanka Íslands í hverjum mánuði frá júní 2023, sundurliðað eftir flokkum reikningseigenda (fjárhæðir eru í milljónum króna):

Dagsetning Greiddir vextir af innstæðum fjármálafyrirtækja á viðskiptareikningum Greiddir vextir af bundnum innlánum fjármálafyrirtækja Greiddir vextir af innstæðum ríkissjóðs á viðskiptareikningum
30.6.2023 489,4 1.162,2 383,5
31.7.2023 550,8 1.094,4 268,0
31.8.2023 570,4 1.472,7 301,2
30.9.2023 452,8 1.274,8 281,9
31.10.2023 555,3 1.166,0 357,0
30.11.2023 529,9 1.621,2 371,6
31.12.2023 532,9 1.035,6 565,2
31.1.2024 573,7 1.451,3 446,8
29.2.2024 504,2 965,2 745,2
31.3.2024 461,7 1.176,8 563,9
30.4.2024 579,6 1.186,6 463,6
31.5.2024 422,8 1.532,1 470,1
30.6.2024 428,4 1.361,5 256,5
31.7.2024 542,8 1.732,3 308,4
31.8.2024 530,6 1.177,8 585,8
30.9.2024 439,9 1.328,0 390,7

     3.      Hver er uppruni þess fjár sem er notað til að greiða vexti til eigenda viðskiptareikninga við Seðlabanka Íslands?
    Seðlabankinn greiðir vexti á innlánsreikninga við bankann.
    Þess má geta að frá fjármálahruninu árin 2008/2009 hefur staða bankakerfisins gagnvart Seðlabanka Íslands (eins og við á um fjölda annarra ríkja) einkennst af rúmri lausafjárstöðu viðskiptabanka og sparisjóða. Viðskiptabankar hafa því ekki verið háðir Seðlabankanum um lausafé nema í undantekningartilvikum. Það eru því vextir á bundnum innlánum Seðlabankans sem hafa mest áhrif á miðlun peningastefnunnar um þessar mundir en ekki vextir á lánum bankans gegn veði eins og áður. Með því að breyta vöxtum hefur Seðlabankinn eftir sem áður áhrif á útlán bankakerfisins og eftirspurn, sem hefur áhrif á verðbólguþrýsting og vöxt peningamagns óháð því hvort mismiklir vextir bætist við innlánsstofninn.