Ferill 320. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 354  —  320. mál.

3. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla).

Frá Ingu Sæland.


    Við 1. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi: Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þeir einstaklingar sem eiga rétt á greiðslu ellilífeyris skv. 17. gr. og hafa óskertan ellilífeyri almannatrygginga skulu fá eingreiðslu að fjárhæð 70.364 kr. Hafi lífeyrisþegi fengið greiddar bætur hluta úr ári skal eingreiðslan vera í hlutfalli við greiðsluréttindi hans á árinu. Eingreiðsla þessi, sem skal innt af hendi eigi síðar en 31. desember 2024, skal ekki teljast til tekna greiðsluþega og ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna.

Greinargerð.

    Lagt er til að tryggja þeim ellilífeyrisþegum sem fá á árinu 2024 óskertan ellilífeyri almannatrygginga sambærilega eingreiðslu og mælt er fyrir um í 1. gr. frumvarpsins til öryrkja og endurhæfingarlífeyrisþega. Um er að ræða tekjulægsta hóp ellilífeyrisþega sem hafa svo lágar lífeyristekjur að þær leiða ekki til skerðingar á ellilífeyri þeirra. Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins næði tillagan til rúmlega 1.915 manns. Kveðið er á um að eingreiðslan skuli ekki teljast til tekna greiðsluþega og teljast þannig skattfrjáls. Auk þess er kveðið á um að hún skuli ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna.