Ferill 293. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 371 — 293. mál.
Svar
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um eftirlitsheimildir og eftirlit stofnana ráðuneytisins með almennum borgurum.
1. Hvaða almennu heimildir hafa stofnanir ráðuneytisins til þess að fylgjast með netnotkun fólks, m.a. á samfélagsmiðlum, t.d. til að sannreyna upplýsingar sem einstaklingur hefur gefið stofnun við málsmeðferð sem varðar hann sjálfan eða aðstandendur hans?
Hvað almennar heimildir varðar þá ber stjórnvöldum samkvæmt rannsóknarreglu stjórnsýslulaga að sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Í því felst að undirbúa verður málið og rannsaka með það að markmiði að afla nauðsynlegra upplýsinga um málsatvik. Í rannsóknarreglunni felst m.a. sú skylda stjórnvalds að sjá til þess, að eigin frumkvæði, að málsatvik stjórnsýslumáls séu nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Mál telst nægjanlega upplýst þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem eru nauðsynlegar til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Með vísan til rannsóknarreglunnar er stjórnvöldum heimilt að nýta sér upplýsingar sem birtar hafa verið opinberlega, svo sem á samfélagsmiðlum, til að upplýsa um málsatvik ef svo ber undir.
Þó ber að geta að heimildir til að afla upplýsinga af samfélagsmiðlum einstaklinga eru takmarkaðar á grundvelli persónuverndarlaga og almennra sjónarmiða um meðalhóf. Stjórnvöld verða því að vera vel meðvituð um takmarkanirnar og meta hvert og eitt tilvik sérstaklega með hliðsjón af þeim. Jafnframt þarf að hafa í huga að ef slíkar upplýsingar koma í ljós við meðferð málsins sem eru aðila í óhag ber að veita honum tækifæri til að koma andmælum á framfæri í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga.
2. Hafa stofnanir sem heyra undir ráðuneytið sértækar heimildir til þess að fylgjast með daglegu lífi fólks, eins og efni sem það deilir á samfélagsmiðlum? Ef svo er:
a. hvaða heimildir eru það,
b. eru takmarkanir á þeim heimildum,
c. er eftirlit með beitingu heimilda og þarf sérstakar ábendingar svo að eftirlit af þessu tagi sé viðhaft eða getur það verið að frumkvæði stofnunar?
Stofnanir ráðuneytisins hafa engar sértækar heimildir til að fylgjast með daglegu lífi fólks á netinu, svo sem á samfélagsmiðlum, eða annars staðar.
3. Veit ráðherra til þess að stofnanir sem heyra undir ráðuneytið hafi fylgst með samfélagsmiðlanotkun fólks á einhvern hátt?
Ekki er vitað um nein slík tilvik.