Ferill 292. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 374  —  292. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um eftirlitsheimildir og eftirlit stofnana ráðuneytisins með almennum borgurum.


     1.      Hvaða almennu heimildir hafa stofnanir ráðuneytisins til þess að fylgjast með netnotkun fólks, m.a. á samfélagsmiðlum, t.d. til að sannreyna upplýsingar sem einstaklingur hefur gefið stofnun við málsmeðferð sem varðar hann sjálfan eða aðstandendur hans?
    Við meðferð stjórnsýslumála hjá stofnunum ráðuneytisins er helst til þess að líta að þær eru bundnar af stjórnsýslulögum, nr. 37/1993, og lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018. Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Í þeirri reglu felst einnig að stjórnvöld hafa almenna heimild í stjórnsýslumáli til að kynna sér upplýsingar um málsaðila á internetinu, svo sem á samfélagsmiðlum, ef atvikum er svo háttað í máli að tilefni sé til slíkrar rannsóknar og þær eru taldar hafa þýðingu í málinu. Í dómaframkvæmd hafa slíkar rannsóknarleiðir verið staðfestar, svo sem í Héraðsdómi Reykjavíkur frá 8. apríl 2022 í máli nr. E-2229/2021 og í dómi sama dómstóls frá 7. október 2021 í máli E-715/2021 Við rannsókn stjórnsýslumáls ber jafnframt að gæta annarra grundvallarreglna í stjórnsýslulögum, svo sem 13. gr. um andmælarétt.
    Það stjórnvald sem ber ábyrgð á meðferð stjórnsýslumáls og er bært til að taka ákvörðun í því telst almennt vera ábyrgðaraðili við vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem unnið er með við úrlausn málsins. Ábyrgðaraðili ber ábyrgð á því að ganga úr skugga um að viðhlítandi heimildir séu til staðar fyrir vinnslu persónuupplýsinga samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga ásamt því að öllum meginreglum um vinnslu persónuupplýsinga sé fylgt. Ábyrgðaraðilum ber jafnframt ávallt að tryggja að ákvæðum persónuverndarlöggjafarinnar sé fylgt að öðru leyti.

     2.      Hafa stofnanir sem heyra undir ráðuneytið sértækar heimildir til þess að fylgjast með daglegu lífi fólks, eins og efni sem það deilir á samfélagsmiðlum? Ef svo er:
                  a.      hvaða heimildir eru það,
                  b.      eru takmarkanir á þeim heimildum,
                  c.      er eftirlit með beitingu heimilda og þarf sérstakar ábendingar svo að eftirlit af þessu tagi sé viðhaft eða getur það verið að frumkvæði stofnunar?

    Umfram þær almennu stjórnsýsluheimildir sem nefndar hafa verið hefur einungis lögregla sértækar heimildir, annars vegar samkvæmt lögreglulögum, nr. 90/1996, og hins vegar lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, svo sem til að fylgjast með efni sem deilt er á vefsíðum (sbr. t.d. 27. gr. reglugerðar nr. 516/2011, sbr. 89. gr. laga nr. 88/2008, og 15. gr. a laga nr. 90/1996). Eftirlit með beitingu heimilda lögreglu fer fram í innra og ytra eftirlit lögreglu, auk eftirlits ríkissaksóknara.

     3.      Veit ráðherra til þess að stofnanir sem heyra undir ráðuneytið hafi fylgst með samfélagsmiðlanotkun fólks á einhvern hátt?
    Ákvarðanir Útlendingastofnunar og úrskurðir kærunefndar útlendingamála hafa byggt á skoðun viðkomandi stofnana á samfélagsmiðlum. Ráðherra er að öðru leyti ekki kunnugt um einstök mál og ráðherra hefur ekki afskipti af rannsókn lögreglu á einstökum sakamálum og hefur því ekki upplýsingar um hvort lögregla hefur fylgst með samfélagsmiðlanotkun borgara í þágu slíkrar rannsóknar.