Ferill 300. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 394  —  300. mál.

3. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. (nýsköpun, virðisaukaskattur o.fl.).

Frá 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar (ÁBG, JFF, VilÁ).


    Við 36. gr.
     a.      Við 1. mgr. c-liðar (10. gr. d) bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Af vörum skv. 1.–7. tölul. sem seldar eru í tollfrjálsum verslunum sem falla undir ákvæði 2. mgr. 104. gr. tollalaga, nr. 88/2005: 50% af gjaldi skv. 1.–7. tölul.
     b.      Í stað orðanna „sbr. þó 4. tölul.“ í 2. tölul. g-liðar (10. gr. h) komi: sbr. þó 8. tölul.