Ferill 302. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 395  —  302. mál.
3. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (sameiginleg vernd).

Frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur.


    Við 1. gr. bætist nýr stafliður sem verði a-liður, svohljóðandi: Lokamálsliður 2. mgr. fellur brott.

Greinargerð.

    Lagt er til að felld verði brott sú undantekning að dvalarleyfi á grundvelli sameiginlegrar verndar vegna fjöldaflótta skv. 44. gr. laganna geti ekki verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.