Ferill 334. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 397  —  334. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, nr. 16/2024 (lögheimili).

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.


1. gr.

    Við 2. málsl. 3. mgr. 1. gr. laganna bætist: og þá er heimilt að víkja frá skilyrði um lögheimili ef þinglýstur eigandi festi kaup á húsnæðinu í þeim tilgangi að aðstoða nána fjölskyldumeðlimi við að eignast heimili.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Í 3. mgr. 1. gr. laga um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, nr. 16/2024, er kveðið á um það skilyrði að fasteign sem ætluð er til íbúðar og keypt á grundvelli laganna skuli hafa verið hinn 10. nóvember 2023 í þinglýstri eigu einstaklings sem jafnframt var með skráð lögheimili í húsnæðinu. Frá skilyrði um lögheimili er heimilt að víkja ef tímabundnar aðstæður skýra að viðkomandi hafi ekki verið með skráð lögheimili í íbúðarhúsnæðinu. Í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum segir að þær tímabundnu aðstæður sem vísað er til í ákvæðinu gætu verið persónulegar, svo sem nám, vinna eða annað sem skýrir skráningu á lögheimili annars staðar tímabundið.
    Með frumvarpi þessu er lagt til að rýmkuð verði heimild eignaumsýslufélagsins til að víkja frá skilyrði laganna um að eigandi húsnæðis skuli hafa haft þar skráð lögheimili. Þannig verði sérstaklega mælt fyrir um í lögunum að heimilt verði að víkja frá skilyrði um lögheimili ef eigandi húsnæðis festi kaup á því í þeim tilgangi að aðstoða nána fjölskyldumeðlimi við að eignast heimili. Með nánum fjölskyldumeðlimum er átt við börn eiganda, foreldra hans eða aðra einstaklinga sem tengdir eru eiganda nánum fjölskylduböndum. Með því er leitast við að ná utan um þann hóp sem fellur að óbreyttu ekki undir gildissvið laganna. Sem dæmi hafa foreldrar sem keypt hafa íbúðir handa börnum sínum ekki fallið undir ákvæði laganna og þær því ekki keyptar af eignaumsýslufélaginu. Með breytingunni er ekki hróflað við öðrum skilyrðum laganna og því óbreytt að þau gilda einungis um íbúðarhúsnæði innan þéttbýlismarka Grindavíkur sem er í eigu einstaklinga.
    Frestur til að sækja um sölu á íbúðarhúsnæði í Grindavík á grundvelli laganna er ekki liðinn. Af þeim sökum liggja ekki fyrir nákvæmar upplýsingar um áhrif breytingarinnar á ríkissjóð en gera verður ráð fyrir að þau geti orðið á bilinu 1–2 milljarðar kr.